Leiðir okkar Sigurðar tengdaföður míns hafa legið saman í rúmlega fimm áratugi. Ég var menntaskólapiltur er ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir einkadóttur hans.
Sigurður var einstaklega
viðræðugóður og áhugasamur um flest dægurmál hverju sinni. Hann var einstaklega
fróður um margt. Hann hafði þann eiginleika að geta dregið fram viðhorf
viðmælanda án þess þó endilega að blanda eigin afstöðu til mála. Þá var hann
oft í hlutverki greinandans.
Það var gefandi að heimsækja hann
og fræðast og finna stuðning hans í þeim
verkefnum sem við fengumst við. Einkennandi fyrir Sigurð var að hann var vakinn
og sofinn yfir velferð fjölskyldu sinnar. Hann fylgdist mjög vel með börnum
sínum og barnabörnum alla tíð. Alltaf sá hann jákvæð tækifæri á vegferð þeirra
og hvatti þau til dáða.
Sigurður varði tíma sínum gjarnan
í að afla upplýsinga um ýmsar nýjungar varðandi tæknilegar framfarir.
Sérstaklega voru orku- og virkjunarmál honum hugleikin í seinni tíð,
sérstaklega virkjun sjávarfalla. Hann var vel að sér í notkun tölva og
snjallsíma og var fljótur að losa sig við reiknistokkinn þegar tölvan kom til skjalanna.
Veraldarvefurinn gaf honum tækifæri til þess að sinna hugðarefnum sínum og afla
nauðsynlegra gagna. Hann horfði til framtíðar, nýrra tækifæra og nýrra
verkefna. Þar naut hann sín best.
Sigurður átti fjölbreyttan
starfsferil. Hann var stúdent frá MR 1955 og stundaði nám í verkfræði í
Þýskalandi. Vann við landmælingar í Persíu og á Íslandi fram til 1962 er hann
hóf störf hjá I Pálmasyni hf sem framkvæmdastjóri.
Faðir Sigurðar, Ingvar Pálmason
frá Norðfirði, skipstjóri og útgerðarmaður, stofnaði fyrirtækið. Starfsemi þess
var fyrstu árin í kringum kraftblökkina, sem leiddi til byltingar í
uppsjávarveiðum Íslendinga. Jafnframt sérhæfði fyrirtækið sig í eldvörnum og
var um tíma leiðandi á því sviði.
Í þjónustu við sjávarútveginn og
eldvarnir nýttust starfskraftar Sigurðar vel.
Síðar gékk hann til liðs við Securitas hf sem
sölustjori á sviði eldvarna. Eftir að eftirlaunaaldr i var náð starfrækti hann
fyrirtæki sem sérhæfði sig í sölu misturkerfa.
Sigurður hafði einstaka ánægju af
ferðalögum og fór reglulega í viðskiptaferðir til þess að fylgjast með nýjungum
á sínu sviði. Auk þess sem hann hafði ánægju af að ferðast bæði erlendis og
innanlands á nýja og áður óþekkta staði. Hann heimsótti bæði börn sín og
barnabörn sem búið hafa erlendis og lét sig ekki vanta á tímamótum þegar tvö af
börnum hans luku doktorsnámi í USA og Svíþjóð.
Í einni af síðustu ferðum okkar
saman til Belgíu í heimsókn til sonar okkar og fjölskyldu, fundum við svo vel
þá ánægju sem hann hafði af ferðalögum og samveru með fólkinu sínu. Það minnti
okkur á gamla tíma þegar hann heimsótti okkur reglulega til Gautaborgar á
námsárunum.
Þetta voru ógleymanlegar stundir
sem líða okkur seint úr minni.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Sigurði fyrir samfylgdina og þann velvilja sem hann ávallt sýndi mér. Blessuð sé
minning hans