Ég hefði auðvitað átt að segja hvaða fasteignafyrirtæki þetta var sem gékk svona fram af mér fyrir rúmu ári. Ætlaði bara að loka þessum kafla í lífinu með skemmtisögu. En þetta var engin alvöru skemmtisaga. Mér var misboðið og þótti þessi krafa svívirðileg! Nú hefur framkvæmdastjórinn lokið störfum hjá þessu félagi og kveður með þeim ummælum að tekjur Eikar hf hafi verið hærri en annarra félaga í sambærilegum rekstri: Jú, hann nefnir það líka að starfsmennirnir séu ánægðir!, skv mbl:
"Hvernig verður svona verðbólga til, spurði ungi lögfræðingurinn gamla hagfræðinginn." Sá gamli dróg upp nokkur dæmi um það, Hann var svolítið upp með sér að ungi maðurinn hefði áhuga á að ræða við hann.
Annars var erindið að segja upp skrifstofuaðstöðu sem gamli hagfræðingurinn hafði leigt hjá fína fyrirtækinu í 8 ár. Grunnleigan er vísitölutryggð og allur rekstrarkostnaður greiddur aukalega. Það var ekki næg leigugreiðsla fyrir fína fyrirtækið. Nú skyldi grunnleigan hækka umfram vísitölu um 30%!!!
Það sem hagfræðingurinn hefði átt að segja var að þessi leigukrafa væri gott dæmi um það hvernig verðbólgudraugurinn vinnur í samfélaginu. Hann fékk sig þó ekki til þess til að skemma annars notanlega stund. Sá gamli gat þó gert sitt til að draga úr verðbólgunni, þótt í litlu væri með því að segja formlega upp leigunni. Það var gert eigin hendi með penna aftan á nýja samninginn. Engin ástæða til að gera það í tölvupósti. Það eina sem truflar mig er að í stjórn þessa fyrirtækis situr forystumaður í samninganefnd atvinnurekenda. Það liggur fyrir að á þeim vettvangi er ekki talið svigrúm til launahækkana.