fimmtudagur, 16. október 2014

Krafan er aukin verðmætasköpun - Viðvarandi hagræðing



Inngangur

Hún er vel þekkt sagan af útgerðarmanninum sem sagði við fyrrum formann LÍÚ fyrir rúmum 20 árum að áður en langt um liði yrði hægt að halda aðalfundi samtakan í kaffistofu LÍÚ. Hann var þar að vísa til þess að útgerðum í sjávarútvegi færi ört fækkandi.
Vissulega hefur útgerðarfélögum fækkað síðastliðna áratugi en þau hafa jafnframt mörg stækkað umtalsvert. Það var og hefur verið almenn krafa að nauðsynlegt sé að í sjávarútveginum sé starfandi fjölbreytileg flóra fyrirtækja. Þannig séu mestar líkur á að greinin skili mestum ávinningi til samfélagsins.
Krafa um sjálfbærni
Sjávarútvegurinn er atvinnugrein sem er stór á alþjóðlegan mælikvarða og sem slík er hún undirstöðuatvinnugrein fyrir fjölbreytilegar stoðgreinar og nýsköpunarfyrirtæki sem byggja á viðskipum við greinina. Nýafstaðin sjávarútvegssýning er glöggt dæmi um þetta.
Það hefur verið undirliggjandi viðhorf í samfélaginu og skrifað í lög að sjávarútvegurinn eigi að vera sjálfbær bæði út frá líffræðilegum og hagrænum sjónarmiðum þ.e. ekki sé veitt meira en  fiskistofnarnir þoli og hagkvæmni og efnahagslegur ávinningur sé hafður að leiðarljósi.

Aukin verðmætasköpun
Þessar leikreglur hafa kallað á aukna verðmætasköpun í greininni og nánara samband við kröfur markaðsins. Hagræðing í greininni hefur verið viðvarandi og útgerðum hefur fækkað og þær hafa stækkað. Aukin áhersla hefur verið á ferskar afurðir og bætt gæði. Enn eru frekari tækifæri í þessum efnum eftir því sem kröfur markaðarins vaxa og tækninni fleygir fram. Minnist í því sambandi ummæla forystumanns í sjávarútvegi sem sæi fyrir sér að í framtíðinni yrði komið með aflann lifandi til hafnar og hann seldur þannig til þess að mæta síauknum kröfum um ferskleika afurða.
Sá sem hér heldur á penna þykist ekki sjá fyrir um framtíðina í atvinnugreininni að öðru leyti en því að hlutverk hennar verður áfram að selja hágæða sjávarafurðir á sem hæstu verði á hverjum tíma.
Alþjóðleg samkeppni

Samkeppnisaðilar okkar í nálægum löndum fylgjast náið með okkur og munu leitast við að ná sambærilegum eða betri árangri til framtíðar. Í Noregi er vaxandi umræða um nauðsyn þess að endurskilgreina þær kröfur sem gerðar eru til atvinnugreinarinnar með aukinni áherslu á hagræn og viðskiptaleg sjónarmið í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja þar sem því verður við komið. Sá tími líður senn undir lok að jafnvel hinir ríku frændur okkar í Noregi geti rekið sjávarútvegsfyrirtæki á félagslegum grunni.

Höfundur er hagfræðingur LÍÚ.
Skoðun í Fiskifréttum 16.10.2014

Engin ummæli: