Ég var að gera mér grein fyrir því að ég er búinn að vera að blogga af og til í 20 ár! Geri aðrir betur! Ég man þegar ég fór að skrifa fyrstu línurnar að það var ekki auðvelt. Ég byrjaði á þessu til þess að fylgja unga fólkinu inn á nýja braut, - tjá sig á blogginu. Þau eru öll löngu hætt þessu pári en ég er enn að. Auðvitað er þetta misjafnt að gæðum. Það sem upp úr stendur er að ég hef skrifað á þessa bloggsíðu til þess að segja frá atburðum, efni sem ég hef viljað geyma hérna. Fyrstu árin var ég duglegri að skrifa pistla. Svo tók Facebook við og áhuginn beindist í þá átt. Pistlum fækkaði á blogginu auðvitað. Ég líklegast búinn að vera á Facebook nokkuð virkur síðan 2008 eða 16 ár.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli