föstudagur, 15. nóvember 2024

Kraftblökkin til Íslands

Það má kaupa ýmislegt í Seattle: Flugvélar hjá Boeing. Hugbúnað hjá Microsoft! “Vitið” hjá Google! Lækningu á fínustu sjúkrahúsum. Setjast niður á Starbucks og fá sér kaffi og með því. Við Íslendingar höfum sótt hingað ýmislegt síðustu áratugina. Þið þekkið öll þessi Seattle vörumerki. En ég er viss um að fá ef einhver ykkar viti að hingað sóttum við eina mestu tæknibyltingu í síldveiðum fyrir um 65 árum! Það var kraftblökkin til síldveiða. Hann sótti þessa nýjung hingað afi hennar Sirrýjar, Ingvar Pálmason útgerðarmaður/skipstjóri frá Norðfirði um 1960. Hann var á sjötugsaldri! Átti eftir að starfa við sölu og kynningu hennar fram yfir níunda áratuginn! Ingvar hefur verið ofarlega í huga okkar í þessari heimsókn hingað til Seattle eftir 8 tíma flug beint frá Keflavík. Hann fór fyrst til New York, líklegast í lest þaðan einhverja daga til Seattle? Það fylgir ekki sögunni. Heim kominn hófst  vinnan við að sannfæra landann um gagnsemi þessarar tæknibyltingar! Það var ekki þrautarlaust, fyrr en Haraldur Ágústsson skipstjóri og áhöfn hans náðu tökum á þessu byltingarkennda tæki 1964. 

Ingvar fékk fálkaorðuna fyrir störf sín á sviði sjávarútvegs.

laugardagur, 9. nóvember 2024

Trump sigraði!

Trump 47. forseti USA! Er það ekki eins og við var að búast? Hann barðist af mikilli elju. Það er ekki hægt annað en virða það. Nú er að vona að val hans verði gæfuspor fyrir USA og okkur líka. Síðast en ekki síst getur hann þakkað Demókrataflokknum slælegan undirbúning. Ég færði rök fyrir því í hér í aðdraganda kosninganna. Það hefur allt raungerst og óþarft að tíunda það frekar. Svo virðist sem stórir hópar kristinna manna hafi einnig fylgt sér um Trump. En afkoma fólks var í fyrirrúmi. Skipti megin máli samkvæmt könnunum.

föstudagur, 1. nóvember 2024

Í aðdraganda forsetakosninga í USA

Það sem vekur mesta furðu í aðdraganda þessara kosninga í USA, í voldugasta ríki heimsins, er hvað undirbúningur kosninganna er tilviljanakenndur hjá Demókrötum. Fáir virtust hafa trú á því að Trump ætti möguleika á að verða aftur forseti í byrjun þessa árs. Eitthvað var verið að tala um það í sumar að Biden væri orðinn of gamall. Hann sagðist eigi að síður ætla að bjóða sig fram. Í fyrstu kappræðunni kom í ljós að hann er búinn á því karlinn. Trump hafði öll trompin á sinni hendi í lok kappræðanna. Það varð auðvitað “panik” hjá Demókrötum. Háværar raddir voru uppi um að Biden yrðu að draga sig í hlé. Hann samþykkir það loks. Þá er ákveðið að varaforsetinn Kamala Harris taki keflið og hlaupi í skarðið sem frambjóðandi þeirra! Þremur mánuðum fyrir kosningar! Hún hefur nánast ekkert verið í umræðunni, allavega ekki á erlendum vettvangi. Ef Trump vinnur þessar kosningar er sigurinn ekkert annað en gjöf frá Demókrötum á silfurfati! Það álykta ég á grundvelli lélegs undirbúnings í aðdraganda kosninganna. Hvernig gat það farið framhjá þeim að blessaður Biden var orðinn of gamall til að standa í svona þrasi.