Sumarið 2022 hefur liðið sem örskotsstund. Verkefnin hafa verið næg heima og heiman. Hæst bar koma Sigrúnar og Malachi með Amelíu í fyrsta skipti og Daníel og koma Valdimars og Stellu með Lilju og Bjarna. Þetta var eiginlega fyrsti almennilegi fjölskylduhittingurinn eftir covid fárið. Ég hef verið að vinna í sumar sem leiðsögumaður og bílstjóri. Þrátt fyrir töluvert regn í sumar hefur þetta verið ágætis tími. Þetta er nú svona það helsta sem á dagana hefur drifið.
þriðjudagur, 30. ágúst 2022
föstudagur, 15. apríl 2022
Ég fékk covid
Ég fékk covid 19 í apríl og einhverja kveisu í kjölfarið. Var út í Svíþjóð og lá þar meira og minna allan tímann í rúminu. Ég tók þetta rapit próf og það staðfesti grun minn. Ég var búinn að fara þrisvar í bólusetningu og gæta fyllstu varúðar en það dugði ekki til. Hef náð mér nokkuð vel að nýju en hef verið frekar slappur eftir þessa leiðinda sýkingu. Kveðja
föstudagur, 25. febrúar 2022
Rússar fari frá Úkraínu
Pútín minnir okkur á hversu varnarlaus við erum gagnvart hervaldi. Ég hef takmarkað vit á geopólitík. Veit ekki hvað er rétt eða rangt í þessum kröfum Rússa. Ég er hinsvegar á móti beitingu hervalds. Við höfum nú átt nokkuð friðsæla áratugi í Evrópu. Þá undanskil ég átökin í fyrrum Júgóslavíu þar sem 800 þúsund manns létu lífið! Rússland sem reiddi sig á Vesturveldin til þess lifa af innrás Þjóðverja í WWII! Af hverju beita þeir grannríki slíku ofríki? Vantar þá matvæli? Þegar þeir misstu tökin á Mið-Evrópu misstu þeir stóran hluta af matvæla forðarbúri sínu. Ég hef enga trú á að Rússar geti í skjóli hervalds kúgað milljónir manna um ókomna framtíð. Á einhverju stigi fellur þetta pútínska veldi saman. Fólk vill svigrúm til að lifa sínu lífi óhað svona ofbeldismönnum.
laugardagur, 22. janúar 2022
Sögulegur leikur Íslendinga
Íslendingar unnu Frakka 29 - 21 í dag á EM í handbolta í Búdapest í Ungverjalandi. Svona leiki sér maður á 10 til 20 ára fresti. Hvílík frammistaða og leikgleði sem OKKAR menn sýndu í þessum leik. Þeir léku samhæfðir eins og einn maður. Er það Covid að þakka að við erum búnir að koma að mönnum í liðinu sem annars hefðu setið meira og minna á varamannabekknum. Er þetta Ísland í dag? Besta fólkið situr alltaf á varamannabekknum vegna þess að fyrir eru einhverjir sjálfskipaðir einstaklingar? Spyr sá sem ekki veit.
miðvikudagur, 29. desember 2021
Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár
Kæru lesendur
Bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár. Þessi síða hefur nú ekki verið sú virkastsa í netheimum en hún hefur verið starfrækt frá 2004, eða um 17 ár og það 18. anda er að byrja eftir tvo daga.
Vona að þið eigið góð áramót og nýtt ár verði ykkur gjöfult til sjávar og sveita.
Kveðja,
Sveinn
miðvikudagur, 1. desember 2021
Björg Árnadóttir - minning
Þetta voru góð ár og uppbyggileg. Nærvera og
umhyggja fyrir okkur unga fólkinu var einlæg og mildileg. Það var oft glatt á
hjalla á Digranesveginum hjá þeim hjónum. Þau voru um margt ólík. Björg var
fíngerð kona, glaðlynd og skemmtileg. Ármann
stór og kröftugur, glímukonungur Íslands í 13 ár var hægari í fasi. Það var þó
aldrei langt í glettnina.
Þau hjón voru meðal frumbyggja í Kópavogi,
þeirra sem byggðu upp þetta samfélag. Björg var verkstjóri um árabil í
frystihúsi Barðans í Kópavogsdal. Þar kynntumst við mörg fiskvinnslustörfum undir
hennar verkstjórn og það var ekki slegið slöku við. Verkstjórinn sá til þess að
enginn tími fór til spillis og að gæðin væru fyrsta flokks. Ármann var líka
mikill verkmaður. Það var sérstakt fréttaefni þegar hann og Davíð á
Arnbjarnarlæk byggðu hitaveitulagnir inn í borgina á þessum árum, þvílík voru
afköstin og dugnaðurinn.
Björg og Ármann voru bakhjarlar Kefas,
óháðs kristins safnaðar í Kópavogi. Söfnuðurinn á glæsilegt guðshús í efri
byggðum Kópavogs með fallegu útsýni yfir Elliðavatn og hæðir Heiðmerkur. Það
hallar á engan þó að frá því sé sagt að Ármann hafi byggt þetta guðshús fyrir
eiginkonu sína eins og presturinn gat um í minningarræðu sinni. Blessuð sé
minning Bjargar.
laugardagur, 20. nóvember 2021
Líffræði/hagfræðingur
Ég man þegar ég var sendur úr MR niður á tjörn að skoða vistskerfi hennar. Það var fróðlegt og skemmtilegt. Hugtakið "ecosystem" var nýtt og var að vinna sér sess. Ég man líka samtal við prófessor í líffræði upp til fjalla þegar ég trúði honum fyrir áhuga mínum á líffræði. Svarinu gleymi ég ekki: Sveinn þú hefur unnið að einu mikilvægasta líffræðiverkefni síðustu áratuga, fiskveiðistjórnun. Þú hefur verið einskonar líffræði/hagfræðingur! Það er helst við aðstæður eins og þessar í björtu lygnu veðri að við sjáum skýrar - samhengi hlutanna. Þá man ég ráðstefnuna fyrir tveimur árum þegar ég stóð frammi fyrir 230 ungum Japönum í Tokyo sem vildu fræðast um stjórnkerfi fiskveiða á Íslandi. Ég minnist þess ekki að margir þeir sem gapa hæst um umhverfismál í dag hafi haft eða komið að því að verja þetta verkefni. Þeirra verkefni er sýnilegra stærra og mikilvægara, bjarga skal öllum heiminum með góðu eða illu. Þeir minna mig stundum á gömlu byltingarsinnana sem döguðu uppi á áttunda áratug síðustu aldar.
