Háttsemi Trumps minnir mig á kvikmynd sem ég sá ungur drengur með Andy Griffith: A face in the crowd. Myndin var framleidd 1957 og fjallar um illa innrættann flæking sem kemst til áhrifa fyrst í svæðisútvarpi og síðar vinsælum sjónvarpsþætti. Hann hvetur fólk til aðgerða gegn ýmsum m.a. stjórnmálamönnum og fyrirtækjum. Fólk flykkist í hópum heim til þeirra, sem útvarpsmaðurinn sigar því á. Þar kemur að framleiðendur á bak við þættina gerir sér grein fyrir því að nauðsynlegt sé að sýna hið rétta andlits þessa siðblinda sjónvarpsmanns. Árið 2008 ákvað Bókasafn bandaríska þingsins að þessi mynd yrði varðveitt í Þjóðarmyndasafni USA vegna menningarlegs, sögulegs og fagurfræðilegs mikilvægis. Andy Griffith varð stjarna eftir þessa mynd. Nú er spurning hvort ekki sé ráð að sýna nýjum kynslóðum þessa mynd. Þannig má ef til vill minnka áhrif komandi lýðskrumara, sem nota fjölmiðla sér til framdráttar. (Heimild: Wikipedia og minni shh)
Sýnir færslur með efnisorðinu Kvikmyndir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Kvikmyndir. Sýna allar færslur
fimmtudagur, 7. janúar 2021
fimmtudagur, 10. apríl 2014
Vonlaus leit
Ég hef eytt töluverðum tíma í að fylgjast með leitinni að malasísku flugvélinni MH 370. Lítið um það annað að segja en að vonandi finnast svörtu kassarnir fljótt þannig að svör fáist um afdrif vélarinnar. Þessi fréttaflutningur um hvarfið hefur minnt mig á ameríska bíómynd sem ég sá í Kópavogsbíó sem drengur. Hún heitir ESCAPADE IN JAPAN og var framleidd 1957. Myndin gæti hafa verið sýnd hér svona tveimur árum síðar. Hún fjallaði um flugvél sem fer í hafið nálægt Japan. Allir bjargast en drengur sem er í flugvélinni verður viðskila og er bjargað af japönskum fiskimanni. Sonur fiskimannsins og ameríski drengurinn verða vinir. Lögreglan kemur að leita drengsins í þorpinu en strákarnir verða hræddir og flýja. Þeir fara um Japan á flótta með lögregluna á hælunum. Auðvitað endar þetta allt vel að hætti ameríska mynda. Allir hlæja, gráta, fallast í faðma og já, "happy ending." Heilabúið er furðulegasta verkfæri. Líklega hefur mér dottið þetta í hug þegar maður með heimsbyggðinni vonaði að einhver myndi lifa af. Á netinu fann ég þennan "poster" um myndina. Ameríska strákinn lék Jon Provost sem síðar varð þekkt barnastjarna í kvikmyndum um hundinn Lassy.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
