miðvikudagur, 22. mars 2017
Á ferð um gömlu Jerúsalem
Við vorum svolítið fegnir ég og búddistinn frá Víetnam að trúfélagahverfin voru bara fjögur í gömlu Jerúsalem. Leiðsögumaðurinn hafði farið með okkur ansi hratt í gegnum þau. Kristna, múslíma, gyðinga og armenska hverfið. Við stóðum tveir fyrir framan Grátmúr gyðinganna í ferðarlok og veltum því fyrir okkur hvort þetta væri mannkyninu til framdráttar öll þessi trúarbrögð. Vorum nú eiginlega á því báðir að réttast væri að tóna þau aðeins niður. Hann spurði mig, hvort ég hefði horft í augun á múslímunum, hann hefði ekki þorað því. Hinsvegar hefði hann mætt konu í gyðingahverfinu með þau fallegustu augu sem hann hefði séð, brún og möndlulaga. Við áttum nú engin algild svör við trúarbragða spurningunni, sem var þó í huga okkar beggja. Hann sagði mér að hann hefði nú trúna fyrir sig og stundaði hana heima fyrir. Auðvitað var ég með hugann við minningu föður míns, sem helgaði líf sitt trúnni á Jesú Krist. Aldrei kom hann þó á þennan stað. Valdi frekar að heimsækja lítið klaustur á Mallorka oft og hlusta þar á lög eftir Chopin? Fegurðin skiptir sköpum. Núna langar mig að leita að fallegu klassísku gítarlagi, sem ég heyrði í Jerúsalem og aftur í morgun hér í Tel Aviv.
mánudagur, 6. febrúar 2017
Ono á Borgarlistasafninu
John Lennon sagði víst einhverju sinni um Yoko Ono að hún væri “the World's most famous unknown artist." Allir þekkja nafn hennar en fæstir verkin. Þetta átti um mig þar til ég fór í Borgarlistasafnið á föstudaginn var. Gékk þar inn og skyldi lítið sem ekkert í þeirri sýningu sem þar var í hennar nafni. Eftir stutta örkynningu með safnverði um sýninguna fannst mér þó ég skilja listamanninn betur. Hvítu taflmennirnir á skákborðinu fyrir báða aðila. Málverkið, sem mátti heilsast í gegn um, negla í og bæta um betur með málingu. Glerbrotin sem sýningargestum var ætlað að raða saman að nýju. Vasinn sem hún braut á sýningu fyrir margt löngu og bað svo fólk um að koma með brotin aftur mörgum árum saman. Spakmælin og svo síminn sem bíður eftir því að hringt sé í en ekki er hægt að hringja úr. Sú eina sem getur hringt inn er Yoko sjálf. Að lokum stuttmyndin sem sýnir hvar gestum og gangandi er veitt heimild til að klippa af henni spjarirnar og hversu varnarlaus hún er við þessar aðstæður. Hvet ykkur eindregið til þess að skoða þessa sýningu, sem er meira í átt við gjörning en hefðbundna listaverkasýningu. Örsýning safnvarðar er eiginlega nauðsynleg fyrir leikmanninn.
sunnudagur, 15. janúar 2017
Nýja testamentið og Davíðssálmar.
Gideonsfélagið gaf mér 10 ára gömlum fyrir nær 55 árum Nýja testamentið og Davíðssálma í lítilli bók. Þessi bók sem hér má sjá á mynd hefur fylgt mér í gegnum lífið. Hún hefur reynst mér dýrmætt veganesti og ég haft hana á náttborðinu og oft á tíðum gripið til hennar og leitað trausts og halds með því að lesa hana. Nú er svo komið að trúarveikir hafa komið því til leiðar að Gideonfélögum er bannað að gefa börnum þessa bók í skóla. Það er miður og í raun óskiljanlegt að þeim skuli látið það eftir.
Í DV á blaðsíðu 2 var sagt frá því í dag að maður með hvítt skegg hafi verið staðinn að því að gefa börnum Nýja testamentið fyrir utan skóla á Akranesi. Frá þessu var sagt eins og hér væri um grunsamlegt og varhugavert athæfi að ræða. Þessi frétt sló mig illa og það rifjaðist upp þegar tekin var sú ákvörðun að banna að gefa börnum bókina í skólum. Þessi bók er grunnurinn að þeim gildum sem okkar samfélag byggir á. Hvernig má það vera að það geti ekki samræmst starfi skóla í kristnu samfélagi að gefa börnum Nýja testamenntið? Það er enginn neyddur til að taka við bókinni eða lesa hana. Hinsvegar hefur bókin verið fjöldanum gott veganesti á lífsleiðinni og í raun hverjum manni nauðsynleg lesning.
sunnudagur, 27. nóvember 2016
Sumarhús Dalí
Sumarhús Dalís er fróðlegt að heimsækja, ef maður hefur áhuga á listamanninum Dalí. Keyrður er fjallavegur til þorps út við Costa Brava ströndina sem heitir Cadaqués 240 km fyrir norðan Tarragona. Þaðan liggur leiðin til Portlligat, sem er pínulítið fiskiþorp og þar er sumarhúsið. Hann dvaldi þarna löngum fram til 1982 þar til konan hans Gala lést á þessum stað. Eftir það kom hann þangað ekki aftur, en dvaldi í Gala Dali Castle i Púbol og helgaði líf sitt minningu hennar. Hún stóð honum mjög nærri og var módel í fjölmörgum mynda hans.
Áhugi minn á Dalí vaknaði í gegnum Kanasjónvarpið á sínum tíma. Þar var stundum umfjöllun um þennan sérstæða listamann. ( Þið munið sjónvarpinu sem var lokað á Keflavíkurflugvelli af því að það átti að hafa slæm uppeldisáhrif á óhörnuð íslensk ungmenni.)
Það hefur verið draumur minn að heimsækja þennan stað í áratugi og nú loksins rættist hann. Minnist sérstaks þáttar um list Dalís sem var tekinn upp á þessum stað, en ég man ekki lengur hvar ég sá þennan þátt, hvort það var á RÚV, SR eða í Kanasjónvarpinu.
Verð að bæta því við að sjón er sögu ríkari. Það kom mér á óvart hvað Dalí var fjölhæfur listamaður, eftir að hafa skoðað verk hans líka í Figureres, en þar er stórt safn með verkum hans. Skartgripirnir, málverkin, fígurnar, húsgögnin og allt það sem fyrir augun bar.
Frá Tarragona
Það hefur svo margt komið mér á óvart þennan tíma hérna á Spáni. Ég hafði ákveðna staðalmynd af landinu, sem byggði á mjög þröngri sýn á landi og þjóð, já fordómum. Í stuttu máli var Spánn í mínum huga sólarstrendur, letilíf og frekar óspennandi og ég hafði engan áhuga á að elta allan þann fjölda ferðamanna sem þangað fór í "hvítum" buxum í áraraðir. Þessar bráðum sex vikur sem við höfum dvalið hérna í Tarragona hafa gjörbreytt þessu viðhorfi. Hvílíkt land, fólk, menning og saga! Ég gæti skrifað langan pistil um þetta en ég ætla aðeins að segja nokkur orð um fólkið hér í Katalóníu. Það vekur fyrst athygli gestsins hvað hér er mikið af fallegu og myndarlegu fólki, sem samsvarar sér vel í líkamsburði. Maður nánast sér ekki fólk sem stríðir við vigtarvandamál. Það hlýtur að skrifast á mataræðið. Það vekur athygli hvað fólk er snyrtilega til fara og kurteist. Vandamál mitt er að ég skil ekki spænsku né katalónsku og það gerir samtöl erfiðari því flestir sem ég hef hitt skilja ekki mikið í ensku. Ég hef þó notið samvista við fræðimenn við háskólann hér í Tarragona sem tala ensku. Maður hefur meira að segja þurft að grípa til þýsku sem ég hef ekki reynt að tala í áratugi. Allt hefur þetta gengið einhvern veginn. Nú veit ég að sólarstrendur og sangrían er annar heimur í þessu landi, "business," sem er nánast aðskilinn hluti af daglegu lífi Katalóníumanna. Skreppi maður út í Salou, þar sem ferðamenn dveljast á sólarströndu er um aðra veröld að ræða. Þar er nú eins og að horfa yfir autt leiksvið. Enginn á ferli og hús og strendur bíða þess að nýtt ferðamannatímbabil hefjist. Spænski menningarheimurinn er viðfemur og hann býður upp á góða tilbreytingu frá hinum engilsaxneska, sem maður þekkir mun betur.
fimmtudagur, 17. nóvember 2016
Af hverju ESB?
Katalóníumenn eru 9 milljónir alls. Þeir tala sérstakt tungumál. Eiiga mörg þúsund ára sögu. Þá dreymir um sjálfstæði. Þeir hafa miklar áhyggjur af framtíð evrunnar og efnahagsmálum sínum. Atvinnuleysi sem er þó mun minna en almennt á Spáni. ca 18,%. Fjöldi fjölskyldna lifir á eftirlaunum afa og ömmu. Við erum 0,3 milljónir manna. Sjálfstæð þjóð með eigin gjaldmiðil og stjórn okkar mála, Atvinnuleysi er 2 til 3%, samt eru til hópar sem vilja gefa upp á bátinn okkar sjálfstæði og ganga í ESB og taka upp evruna. Er það nema von að maður verði hugsi.
Labels:
Hagfræði,
Samfélagsmál,
Stjórnmál
miðvikudagur, 9. nóvember 2016
Trump vann forsetakosningarnar !!
Framkvæmdamaðurinn Trump er á leiðinni í Hvíta húsið. Það sem kemur fyrst upp í hugann er skoðanamyndandi áhrif fjölmiðla og skoðanakannana og hversu hrapalega vitlaust var spáð fyrir sigri Hillary Clinton. Bak við eyrað voru þó samtöl við nokkra Ameríkana úr ólíkum áttum, sem sögðu að Trump myndi sigra. Annað truflaði mig, það var hversu mikil umræða var um Trump á félagsmiðlum, þótt hún væri aðallega neikvæð. Þriðja atriðið var hvernig hann vann keppinautana í forvalinu. Ted Bush t.a.m. hafði ekkert í hann í kappræðum. Fjórða var samtal við spænskan lögfræðing hér í Tarragona, sem búið hefur í USA. Hann fullyrti að Trump væri ameríski draumurinn holdi klæddur, hann yrði sigurvegari kosninganna. Kom þetta á óvart? Já, en samt ekki.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


