Í stuttu máli hefur verið í nógu að snúast undanfarna mánuði. Í des, jan og febrúar var ég leiðsögumaður ýmist sitjandi eða ökuleiðsögumaður hjá Snæland Grímssyni hf aðallega í verkefni fyrir ferðaskrifstofuna TUI. Þetta er líklega stærsta ferðaskrifstofa í heimi. Allavega ein af þeim stærstu. Hingað komu Bretar í heimsókn, tvö holl í hverri viku. Farið var Gullna hringinn, Suðurströnd og í Norðurljósaferðir. Í mars fórum við til Svíþjóðar og höfum að mestu verið í Hässleholm/Malmö. Skelltum okkur eina viku til Tenerife í sólina og áttum þar góða daga. Nóg í bili.
þriðjudagur, 11. apríl 2023
sunnudagur, 29. janúar 2023
Nýtt ár nýjar væntingar
Sæl og blessuð öll.
Nýtt ár og nýjar væntingar. Gleðilegt ár. Ég hef verið upptekinn við leiðsögn það sem af er janúar og mun vinna við það í febrúar líka. Framhaldið er frekar óljóst inn í árið. Leyfi ykkur að fylgjast með eftir því sem verkefnum fram vindur. Kveðja.
þriðjudagur, 13. desember 2022
Þögnin er líka góð...
fimmtudagur, 29. september 2022
Tvær sprautur
Þáði í dag bæði fjórðu covid sprautuna og innflúensu sprautu í einni og sömu heimsókninni. Ég fékk svo covid í mars í Gautaborg. Allur er varinn góður. Þetta er fyrsta skipti sem ég læt sprauta mig gegn inflúensu.
miðvikudagur, 28. september 2022
Á suðurströndinni
Ég var á suðurströndinni í gær. Þetta er 400 km akstur fram og til baka. Keyrt á Seljalandsfoss frá Reykjavík og í Reynisfjöru. Viðkoma við jaðar Sólheimajökuls og beðið meðan gestir fara í gönguferð á jökulinn (3 tímar). Síðan keyrt að Skógarfossi. Eftir stutt stopp brunað í bæinn með "tæknistoppi." Vorum komin í bæinn rétt um 20.00 þ.e. 12 tíma ferð. Mikið blaðrað á leiðinni austur en fólkinu gefið frí á leiðinni suður að mestu.
þriðjudagur, 30. ágúst 2022
Sumarið ´22
Sumarið 2022 hefur liðið sem örskotsstund. Verkefnin hafa verið næg heima og heiman. Hæst bar koma Sigrúnar og Malachi með Amelíu í fyrsta skipti og Daníel og koma Valdimars og Stellu með Lilju og Bjarna. Þetta var eiginlega fyrsti almennilegi fjölskylduhittingurinn eftir covid fárið. Ég hef verið að vinna í sumar sem leiðsögumaður og bílstjóri. Þrátt fyrir töluvert regn í sumar hefur þetta verið ágætis tími. Þetta er nú svona það helsta sem á dagana hefur drifið.
föstudagur, 15. apríl 2022
Ég fékk covid
Ég fékk covid 19 í apríl og einhverja kveisu í kjölfarið. Var út í Svíþjóð og lá þar meira og minna allan tímann í rúminu. Ég tók þetta rapit próf og það staðfesti grun minn. Ég var búinn að fara þrisvar í bólusetningu og gæta fyllstu varúðar en það dugði ekki til. Hef náð mér nokkuð vel að nýju en hef verið frekar slappur eftir þessa leiðinda sýkingu. Kveðja
