Íslendingar unnu Frakka 29 - 21 í dag á EM í handbolta í Búdapest í Ungverjalandi. Svona leiki sér maður á 10 til 20 ára fresti. Hvílík frammistaða og leikgleði sem OKKAR menn sýndu í þessum leik. Þeir léku samhæfðir eins og einn maður. Er það Covid að þakka að við erum búnir að koma að mönnum í liðinu sem annars hefðu setið meira og minna á varamannabekknum. Er þetta Ísland í dag? Besta fólkið situr alltaf á varamannabekknum vegna þess að fyrir eru einhverjir sjálfskipaðir einstaklingar? Spyr sá sem ekki veit.
laugardagur, 22. janúar 2022
miðvikudagur, 29. desember 2021
Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár
Kæru lesendur
Bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár. Þessi síða hefur nú ekki verið sú virkastsa í netheimum en hún hefur verið starfrækt frá 2004, eða um 17 ár og það 18. anda er að byrja eftir tvo daga.
Vona að þið eigið góð áramót og nýtt ár verði ykkur gjöfult til sjávar og sveita.
Kveðja,
Sveinn
miðvikudagur, 1. desember 2021
Björg Árnadóttir - minning
Þetta voru góð ár og uppbyggileg. Nærvera og
umhyggja fyrir okkur unga fólkinu var einlæg og mildileg. Það var oft glatt á
hjalla á Digranesveginum hjá þeim hjónum. Þau voru um margt ólík. Björg var
fíngerð kona, glaðlynd og skemmtileg. Ármann
stór og kröftugur, glímukonungur Íslands í 13 ár var hægari í fasi. Það var þó
aldrei langt í glettnina.
Þau hjón voru meðal frumbyggja í Kópavogi,
þeirra sem byggðu upp þetta samfélag. Björg var verkstjóri um árabil í
frystihúsi Barðans í Kópavogsdal. Þar kynntumst við mörg fiskvinnslustörfum undir
hennar verkstjórn og það var ekki slegið slöku við. Verkstjórinn sá til þess að
enginn tími fór til spillis og að gæðin væru fyrsta flokks. Ármann var líka
mikill verkmaður. Það var sérstakt fréttaefni þegar hann og Davíð á
Arnbjarnarlæk byggðu hitaveitulagnir inn í borgina á þessum árum, þvílík voru
afköstin og dugnaðurinn.
Björg og Ármann voru bakhjarlar Kefas,
óháðs kristins safnaðar í Kópavogi. Söfnuðurinn á glæsilegt guðshús í efri
byggðum Kópavogs með fallegu útsýni yfir Elliðavatn og hæðir Heiðmerkur. Það
hallar á engan þó að frá því sé sagt að Ármann hafi byggt þetta guðshús fyrir
eiginkonu sína eins og presturinn gat um í minningarræðu sinni. Blessuð sé
minning Bjargar.
laugardagur, 20. nóvember 2021
Líffræði/hagfræðingur
Ég man þegar ég var sendur úr MR niður á tjörn að skoða vistskerfi hennar. Það var fróðlegt og skemmtilegt. Hugtakið "ecosystem" var nýtt og var að vinna sér sess. Ég man líka samtal við prófessor í líffræði upp til fjalla þegar ég trúði honum fyrir áhuga mínum á líffræði. Svarinu gleymi ég ekki: Sveinn þú hefur unnið að einu mikilvægasta líffræðiverkefni síðustu áratuga, fiskveiðistjórnun. Þú hefur verið einskonar líffræði/hagfræðingur! Það er helst við aðstæður eins og þessar í björtu lygnu veðri að við sjáum skýrar - samhengi hlutanna. Þá man ég ráðstefnuna fyrir tveimur árum þegar ég stóð frammi fyrir 230 ungum Japönum í Tokyo sem vildu fræðast um stjórnkerfi fiskveiða á Íslandi. Ég minnist þess ekki að margir þeir sem gapa hæst um umhverfismál í dag hafi haft eða komið að því að verja þetta verkefni. Þeirra verkefni er sýnilegra stærra og mikilvægara, bjarga skal öllum heiminum með góðu eða illu. Þeir minna mig stundum á gömlu byltingarsinnana sem döguðu uppi á áttunda áratug síðustu aldar.
laugardagur, 11. september 2021
Af Sigrúnu Jónsdóttur og Vestmönnum
Við fórum á sýningu Sigrúnar Jónsdóttur heitinnar https://kirkjan.is/frettir/frett/2021/08/27/Kirkjulistakonu-minnst/ á höklum í Seltjarnarneskirkju í dag. Afar fróðleg sýning á höklum hennar og ýmsum öðrum listmunum. Áttum þar líka fróðlegt spjall um írska munka sem bjuggu á Íslandi fyrir landnám norrænna manna. Vestmannaeyjar komu upp í umræðunni og sagan af þrælum Hjörleifs sem þangað flúðu. Getur verið að þar hafi verið írskt klaustur sem norrænir menn hafi eytt við komuna til landsins. Allavega er þar í 173 metra hæð kross af keltneskri gerð hogginn í klett. Á Seltjarnarnesi má sjá hringlaga minjar sem gætu verið írskar. Þá komu til tals hellarnir á Suðurlandi sem taldir eru frá Írum. Við rifjuðum upp gamalt samtal við Vilhjálm Eyjólfsson frá Hnausum í Meðallandi . Hann var þess fullviss að hér hafi verið Írar fyrir landnám. Að vísu hafði ég einn fyrirvara um veru Íra hér á landi, sem fræðimaður hafði bent á, að aðeins norrænir víkingar hefðu búið yfir þekkingu og siglingatækni til að sigla á opnu hafi. Viðmælendur mínir blésu á þennan fyrirvara og fullyrtu að Írar hefðu haft þessa þekkingu líka. Hvað haldið þið?
þriðjudagur, 17. ágúst 2021
Af Afgönum
Afganistan, Talibanar, villimenn, dópsalar og hyski? Nú er svo komið að þeir eru búnir að leggja að velli USA og NATO ríkin eins og Sovétríkin sálugu fyrir 30 árum. Það tók þá um 20 ár. Hvað segir það okkur? Það er ekki hægt að kúga þjóðir til hlíðni með aðstoð leppa. Hélt að heimsbyggðin hefði lært það 1975 í Víetnam! Nei, módelið varð að reyna aftur til að tjékka á því hvort það gengi örugglega ekki. Trump samþykkti að sleppa 5.000 vígamönnum Talibana, sem auðvitað tóku strax til vopna. Við lærðum snemma í sögubókum það ráð breska heimsveldisins fyrr á tímum að farsælast væri að sniðganga þetta fjallasvæði. Þarna væru snarbrjálaðir menn og valmúa bændur til framleiðslu á heróíni. Þeir virðast hafa ákveðna skoðun á jafnrétti kynjanna og menntun kvenna. Það sé eina leiðin í þeim efnum að kúga þær. Er það ásættanlegt 2021?
Stofnþjóð Sþ
Við Íslendingar fengum að vera ein af stofnþjóðum Sameinuðu þjóðanna þó að við hefðum ekki lýst stríði á hendur Þjóðverjum. Þór Whitehead bendir á þessa staðreynd í umfjöllun um komu Churchill til Íslands fyrir 80 árum. Þetta er þörf ábending nú í ljósi umræðu um okkur sem NATO þjóð. Við fengum inngöngu í þann klúbb af því að þessi eyja var okkar. Það var ekki vegna þess að við værum stríðandi afl. Það er gott að hafa það í huga þegar rætt er um ábyrgð okkar við brotthvarf NATO frá Afganistan. Við höfum ekki farið með hervaldi þar, þótt einhverjir fáir einstaklingar hafi fengið skrifstofustörf gegnum NATO. Við höfum engar skyldur við Afgana umfram aðrar þjóðir í þessu tilliti. Það er mikilvægt að skerpa á friðelsku okkar með jöfnu millibili. Það er illa gert að vera stilla Katrínu forsætisráðherra upp og lýsa yfir einhverri ábyrgð í þessu máli, sjálfum hernámsandstæðingnum. Kommon!

