Það sem hagfræðingurinn hefði átt að segja var að þessi leigukrafa væri gott dæmi um það hvernig verðbólgudraugurinn vinnur í samfélaginu. Hann fékk sig þó ekki til þess til að skemma annars notanlega stund. Sá gamli gat þó gert sitt til að draga úr verðbólgunni, þótt í litlu væri með því að segja formlega upp leigunni. Það var gert eigin hendi með penna aftan á nýja samninginn. Engin ástæða til að gera það í tölvupósti. Það eina sem truflar mig er að í stjórn þessa fyrirtækis situr forystumaður í samninganefnd atvinnurekenda. Það liggur fyrir að á þeim vettvangi er ekki talið svigrúm til launahækkana.
Brekkutúnsannáll
"Núna er allt að gerast"
fimmtudagur, 16. janúar 2025
Af samskiptum við Eik hf
föstudagur, 15. nóvember 2024
Kraftblökkin til Íslands
Það má kaupa ýmislegt í Seattle: Flugvélar hjá Boeing. Hugbúnað hjá Microsoft! “Vitið” hjá Google! Lækningu á fínustu sjúkrahúsum. Setjast niður á Starbucks og fá sér kaffi og með því. Við Íslendingar höfum sótt hingað ýmislegt síðustu áratugina. Þið þekkið öll þessi Seattle vörumerki. En ég er viss um að fá ef einhver ykkar viti að hingað sóttum við eina mestu tæknibyltingu í síldveiðum fyrir um 65 árum! Það var kraftblökkin til síldveiða. Hann sótti þessa nýjung hingað afi hennar Sirrýjar, Ingvar Pálmason útgerðarmaður/skipstjóri frá Norðfirði um 1960. Hann var á sjötugsaldri! Átti eftir að starfa við sölu og kynningu hennar fram yfir níunda áratuginn! Ingvar hefur verið ofarlega í huga okkar í þessari heimsókn hingað til Seattle eftir 8 tíma flug beint frá Keflavík. Hann fór fyrst til New York, líklegast í lest þaðan einhverja daga til Seattle? Það fylgir ekki sögunni. Heim kominn hófst vinnan við að sannfæra landann um gagnsemi þessarar tæknibyltingar! Það var ekki þrautarlaust, fyrr en Haraldur Ágústsson skipstjóri og áhöfn hans náðu tökum á þessu byltingarkennda tæki 1964.
Ingvar fékk fálkaorðuna fyrir störf sín á sviði sjávarútvegs.
laugardagur, 9. nóvember 2024
Trump sigraði!
Trump 47. forseti USA! Er það ekki eins og við var að búast? Hann barðist af mikilli elju. Það er ekki hægt annað en virða það. Nú er að vona að val hans verði gæfuspor fyrir USA og okkur líka. Síðast en ekki síst getur hann þakkað Demókrataflokknum slælegan undirbúning. Ég færði rök fyrir því í hér í aðdraganda kosninganna. Það hefur allt raungerst og óþarft að tíunda það frekar. Svo virðist sem stórir hópar kristinna manna hafi einnig fylgt sér um Trump. En afkoma fólks var í fyrirrúmi. Skipti megin máli samkvæmt könnunum.
föstudagur, 1. nóvember 2024
Í aðdraganda forsetakosninga í USA
Það sem vekur mesta furðu í aðdraganda þessara kosninga í USA, í voldugasta ríki heimsins, er hvað undirbúningur kosninganna er tilviljanakenndur hjá Demókrötum. Fáir virtust hafa trú á því að Trump ætti möguleika á að verða aftur forseti í byrjun þessa árs. Eitthvað var verið að tala um það í sumar að Biden væri orðinn of gamall. Hann sagðist eigi að síður ætla að bjóða sig fram. Í fyrstu kappræðunni kom í ljós að hann er búinn á því karlinn. Trump hafði öll trompin á sinni hendi í lok kappræðanna. Það varð auðvitað “panik” hjá Demókrötum. Háværar raddir voru uppi um að Biden yrðu að draga sig í hlé. Hann samþykkir það loks. Þá er ákveðið að varaforsetinn Kamala Harris taki keflið og hlaupi í skarðið sem frambjóðandi þeirra! Þremur mánuðum fyrir kosningar! Hún hefur nánast ekkert verið í umræðunni, allavega ekki á erlendum vettvangi. Ef Trump vinnur þessar kosningar er sigurinn ekkert annað en gjöf frá Demókrötum á silfurfati! Það álykta ég á grundvelli lélegs undirbúnings í aðdraganda kosninganna. Hvernig gat það farið framhjá þeim að blessaður Biden var orðinn of gamall til að standa í svona þrasi.
laugardagur, 5. október 2024
Heimurinn vill láta blekkjast!
Heimurinn vill láta blekkjast! Rómverjarnir sögðu: Mundi vult decipi. Datt þetta í hug þegar Jón Gnarr hefur nú enn einu sinni komið fram á sjónarsviðið og vill til forystu í flokki Evrópusinna, Viðreisn. Þau hafa verið óheppinn með talsmenn þannig að þau fara gömlu Samfylkingarleiðina og hafa kallað til fulltyngis hann ,Jón karlinn Gnarr með "fimm háskólagráður." Las í dag stefnu hans í blaðaviðtali. Hann vill stöðva straum innflytjenda. Slík afstaða gæti nú gefið honum nokkuð mörg atkvæði. Síðan vill hann ganga í Evrópusambandið og taka upp evru! Hann gerir sér ekki grein fyrir því enn að ESB aðild byggir á fjórfrelsi. Eitt af þessum frelsum er óheftur flutningur fólks milli landa ESB (27 lönd). Hann hefur augljóslega ekki enn gert sér grein fyrir því að í þessu verður ekki bæði haldið og sleppt. Það skiptir ef til vill engu máli, hann verður líklegast "brúða" í höndum Evrópusinna. Hann hefur reynslu í því stórleikarinn okkar sbr þegar hann kóaði sem borgarstjóri fyrir Dag B Eggertsson þar síðasta kjörtímabil, sem þá í raun réði. Nýr formaður Samfó ætlar sér sjálf stórt hlutverk og þarf augljóslega ekki "brúðu" til að flytja mál sitt eins og Samfó forðum daga í borginni. Já heimurinn vill láta bekkjast!
föstudagur, 6. september 2024
Utan til náms
17. júní 1975 í heimsókn til Oslo ákváðum við Sirrý að hefja nám erlendis þá um haustið. Við vorum að íhuga að flytja til Noregs, en eftir heimkomu varð niðurstaðan sú að við flyttum til Gautaborgar. Engan þekktum við þar, en fengum nafn Sigríðar Hannesdóttur, sem bjó þar, skólasystur Björns, stjúpa Sirrýjar. Hún veitti okkur ómetanlega aðstoð þegar við vorum að koma okkur fyrir og skrá okkur í háskólann. Það sem réði m.a. valinu á Gautaborg var að þar var kennd félagsráðgjöf og hagfræði við háskólann
Á leiðinni út í flugvél Flugfélags Íslands í byrjun september þetta ár var einnig Sigurður tengdafaðir minn á leið í viðskiptaferð til Noregs að skoða fiskiskip. Með honum í för var útvegsmaður frá Stöðvarfirði, Guðmundur Björnsson, sem ég heyrði síðar að gárungarnir hafði kallað gælunafninu Lilla. Það var ekkert lítið við þennan mann. Guðundur var mjög gildur, en vart meðalmaður á hæð. Þegar hann settist í sætið varð að losa um annan armin af sætinu, svo að hann gæti sest.
Ég gleymi aldrei orðaskiptum þessa ágæta manns og flugfreyjunnar þegar hún reyndi að spenna utan um hann framlengda sætisólina: ”Svona vina, þetta er alger óþarfi hjá þér að reyna þetta, þú getur verið viss um að ég fer ekkert!” Það reyndust orð að sönnu. Hann sat fastskorðaður í sæti sínu alla leiðina, haggaðist ekki. Leiðir okkar lágu ekki aftur saman eftir þessa flugferð. Ég man ekki hvað við ræddum á leiðinni, en í minningunni fór vel á með okkur. Man þó að mér þótti mikið til þessa manns koma, sem var að fara til útlanda að kaupa togara. Hann var fyrsti starfandi útvegsmaðurinn, sem ég kynntist. Seinna átti fyrir mér að liggja að vera í þjónustu íslenskra útvegsmanna í rúma þrjá áratugi. Enginn veit sína ævi o.s.f.
miðvikudagur, 4. september 2024
Örlög íslenskra fyrirtækja
Eru það örlög íslenskra fyrirtækja, ef þau sýna árangur í starfsemi að enda í eigu erlendra aðila? Marel hf, Össur hf, Keraces hf, Nói Sirius hf, svo nokkur séu nefnd. Hvenær verða önnur lykilfyrirtæki líka seld eins og Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur? Þetta þarf að ræða með skýrum hætti. Í sjávarútvegi eru lög sem banna erlendum aðilum meirihluta eignarhald og skipstjóri á íslenskum fiskiskipum verður að vera íslenskur ríkisborgari. Þetta er að sjálfsögðu til að koma í veg fyrir að fiskimiðin lendi í erlendum höndum. Af hverju eru ekki sambærileg ákvæði varðandi jarðarkaup erlendra fjárfesta á jörðum? Það er eins og tíðarandinn vinni gegn öllu því sem íslenskt er.