þriðjudagur, 28. apríl 2009
Flensa úr svínum
Óhugnalegar þessar fréttir af svínaflensu frá Mexico. Það er nú meira óáranið sem gengur yfir heiminn. Vonandi að þetta verði ekki jafn stór "bóla" og ýmsar þær hremmingar sem hafa dunið á okkur undanfarið í efnahagsmálum, bankahrun, olíubóla, fasteignabóla m.m. Annars er söngæfing í kvöld með hljómsveit. Síðasta æfingin fyrir tónleikana um þarnæstu helgi. Kveðja.
mánudagur, 27. apríl 2009
Á virkum degi.
Þetta er bjartur og fallegur dagur segir veðurmaðurinn. Best að eyða restinni utandyra í stað þess að hanga inni og horfa á fréttirnar á ruv 99. Kveðja.
sunnudagur, 26. apríl 2009
Á kosningarkveldi
Jæja þá er niðurstaðan að koma í ljós. Það er í raun frekar fátt sem kemur á óvart í þessum kosningum. Skoðanakannanir eru það nákvæmar og eru það nærri kosningum að þær lýsa hvers er að vænta mjög vel. Sjálfstæðisflokkurinn hefur orðið fyrir áfalli eftir 18 ára stjórnarsetu og slæmt gengi í aðraganda kosninganna sérstaklega varðandi þessi slæmu styrkjamál. En kúrsinn er settur og ég hef fulla trú á því að hann geti unnið sína fyrri stöðu. Ég tel að endurreisnarstarfið muni skila flokknum vel á veg í næstu framtíð verði haldið áfram á sömu braut öflugs grasrótastarfs og gegnsæis í starfseminni. Samfylkingin er orðinn stærsti flokkurinn á Íslandi nú um stundir. Væntanlega hefur hún fylgisaukninguna út á það að vilja skilyrðislausa ESB aðild eins sérstakt og það verður að telja. Það er dálítið einkennandi fyrir tíðarandann að heimta skyndilausnir í öllum málum. Fylkingin virðist ekki þurfa að taka á sig neina ábyrgð af bankahruninu í þessari umferð. Vinstri grænir fá góða kosningu á grundvelli þess að hafa verið utan stjórnar og Framsókn nær að rétta stöðu sína aðeins þrátt fyrir ábyrgð sína á einkavæðingu bankanna. Svo mikil sveifla í pólitíkinni er fyrst og fremst til marks um það ójafnvægi sem er í íslensku samfélagi. Oft er það svo eftir kosningar að þær marka nýtt upphaf. Því miður fær maður ekki slíka tilfinningu nú heldur er þessi niðurstaða frekar staðfesting á þeirri gríðarlegu óvissu sem við munum búa við á næstu árum í ljósi efnahagsaðstæðna okkar. Það er þó óþarfi að leggja árar í bát og byrja að örvænta - koma dagar koma ráð. Jæja læt þetta duga í bili. Óska þeim sem leiða endurreisina í íslensku samfélagi alls hins besta - hverjir svo sem þeir verða. Kveðja.
föstudagur, 24. apríl 2009
Kvöldið fyrir kosningar
Það sló mig þegar ég opnaði þessa síðu nú í kvöld að ég hef ekkert fjallað um kosningarnar og þann slag sem farið hefur fram í fjölmiðlum milli flokkanna um að betra sé að kjósa einn umfram annan. Ég hlustaði á viðræður við formenn flokkanna í kvöld með foreldrunum. Þetta var svona eins og að horfa á kappleik, hver hélt með sínu manni og úthúðaði andstæðingunum. Niðurstaða mín er að við erum ásamt djúpri efnahagslægð/krísu í djúpri stjórnmálakrísu. Stjórnmálamennirnir reyna að höfða til kjósenda með sömu slagorðunum og áður. En gömlu brellurnar sem gengu út á að lofa hinu og þessu eiga augljóslega ekki við lengur. Við þurfum að skera niður 50 - 60 milljarðar króna í ríkisfjármálum í október. Það er ekkert svigrúm til þess að fara í stórfellda niðurfærslu skulda - auðvitað verður að skoða hvert og eitt mál. Við þurfum að semja um gríðarlega skuldapakka í nágrannalöndum okkur. Er trúverðugleiki í málflutningi formannanna? Af hverju telur þetta fólk sig fallið til forystu - gengur það með sjálfhverfar væntingar um að það sé útvalið til þess að leiða þjóðina út úr þessum vandræðum? Getur þetta fólk skapað Íslandi trúverðugleika meðal nágrannaþjóðanna að nýju? Þetta voru spurningarnar sem leituðu á hugann milli þess sem maður lifði sig inn í kappræðurnar til þess að njóta allavega skemmtanagildis þáttarins sem var takmarkað. Slegðið var upp margvíslegum loforðum, mörgum lítt hugsuðum og óljósum sem samin eru upp af spunameisturum og auglýsingastofum - eitthvað sem geti höfðað til kjósenda sem flestir eru ekki í góðu jafnvægi vegna ástandsins. Einhvern veginn hef ég ekki sannfæringu fyrir því eins og forsætisráðherrann sagði að nú væri sögulegt tækifæri til að koma á félagslegum gildum með tveggja flokka vinstri stjórn. Ég held að nú sé lítið svigrúm fyrir hægri og vinstri isma. Ég tel að eigi að leysa þann vanda sem við stöndum frammi fyrir verði að setja dægurþras stjórnmálanna til hliðar og skipa þjóðstjórn eins og átti að gera strax í október í fyrra næstu tvö til þrjú árin. Tími Jóhönnu er ekkert kominn - hann er löngu liðinn. Þannig er bara staða málsins. Forveri Jóhönnu sagði í fimm dálka viðtali við Viðskiptablaðið 29. ágúst 2008 að það væri engin kreppa á Íslandi. Það vita allir að Samfylkingin hefur varið útrásarvíkingana með kjafti og klóm.Og þjónar enn vilja þeirra með því að berjast fyrir ótímabærri inngöngu í ESB. Nóg í bili. Kveðja.
fimmtudagur, 23. apríl 2009
Gleðilegt sumar!
Kirkjufell Loksins loksins eftir langan vetur er sumarið komið. Dagarnir lengjast, loftið hlýnar og maður fyllist þessari gleði yfir því að geta notið komandi sumardaga: "Þakka ykkur fyrir komuna. Ég vil aðeins biðja ykkur um eitt - haldið áfram að syngja og dansa." Þannig kvaddi hótelstýran okkur kórfélaganna um síðustu helgi þegar við vorum að fara aftur í bæinn. Á göngu okkar um bæinn kom fólk út í dyr og þakkaði okkur fyrir sönginn. Það er ekki til meiri forréttindi en að fá að vera öðrum gleðigjafi - þetta ættum við hafa í huga nú þegar víða kreppir að - lítið bors - velviljuð orð - samhugur þetta er það sem þarf til. Kveðja.
sunnudagur, 19. apríl 2009
Söngfélag Skaftfellinga - söngferðalag
Í Grundarfjarðarkirkju.Við í Söngfélagi Skaftfellinga höfum verið á söngferðalagi um Vesturland þessa helgi. Hófum ferðina vestur í Grundarfjörð á föstudaginn og æfðum okkur í kirkjunni á staðnum. Kórnum var óvænt boðið í fimmtíu ára afmæli sem stóð fram eftir kvöldi með söng og dansi á föstudagskvöldið. Á laugardag var ekið í Stykkishólm og þar haldnir tónleikar í kirkjunni. Síðan voru tónleikar í Grundafjarðarkirkju í beit. Báðir þessir tónleikar tókust mjög vel en áheyrendur hefðu mátt vera fleiri. Lögin voru fjölmörg og fjölbreytileg - en óhætt að segja að gamlir smellir eins og "Úr fjarlægð" hafi fengið bestar undirtektir. Á leiðinni út í Stykkishólm var komið við í Bjarnarhöfn og þar voru safn og kirkja heimsótt undir leiðsögns Hildibrandar Bjarnasonar. Ferðin tókst í alla staði mjög vel. Kórfélagar minntust sérstaklega Sigurlínu Sjafnar Kristjánsdóttur, formanns kórsins sem lést fyrr í mánuðinum. Þess má geta að Friðirk Vignir Stefánsson kórstjórinn okkar var "Tóni" eða orgelleikari í Grundarfirði í átján ár. Þessi ferð vestur var svona ákveðið "come back" fyrir kórstjórann okkar. Á laugardagskvöldið var sameiginlegur hátíðarkvöldverður með ennmeiri söng og dansi. Mynd Jón Pétur Sveinsson. Kveðja.
miðvikudagur, 15. apríl 2009
Að lokum
Út á Vättern. Svona var útsýnið af tólftu hæðinni í dagsbirtunni. Hér sér út á Vättern eins langt og augað eygir. Í nærmynd er þakið á Tändsticks Museet (Eldspítusafnið). Þetta eru byggingarnar þar sem verksmiðjurnar voru áður til húsa og búið er að breyta þeim í stórmerkilegt atvinnuvegasafn Jönköping bæjar. Þarna eru einnig minni búðir og markaður á laugardögum. Það fer vel á því að óska Valda mínum til hamingju með afmælið. Það var á ljúfum degi sem þessum fyrir 27 árum sem hann fæddist.
Í átt að miðbænum. Þetta er útsýni úr íbúðinni til austurs í átt að miðbænum. Í Jönköping og Huskvarna búa að sögn um 150 þúsund manns. Háskólinn er mjög fyrirferðamikill í samfélaginu og hefur verið lagt mikið fé til uppbyggingar hans á undanförnum árum. Fullt af veitingahúsum eru þar og mikið af fólki á ferli. Upplifun dagsins var þegar afgreiðslumaðurinn í búðinni saup hveljur þegar hann sá kretitkort merkt Landsbankanum. Hún er mikil ábyrgð þeirra sem rændu "okkur" óflekkuðu orðspori.
Jönköping frá hæsta punkti. Keyrðum upp að kirkju og samkomuhúsi sem heitir Fjällstugan. Þar er þessi mynd tekin. Miðbær Jönköping er þar sem bryggjusporðurinn stendur út í vatnið en fjær sér til Huskvarna.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
