Í dag þann 25. maí 2020 var ég við jarðarför Kristins Kjartanssonar, góðs félaga í Söngfélagi Skaftfellinga og göngufélaga til margra ára. Kynni okkar hófust árið 2003 þegar ég byrjaði í kórnum, en hann hafði verið þar í mörg ár. Hann var mikill söngmaður og góður félagi. Nikkan hans var aldrei langt undan á samkomum og ferðalögum. Ljúfmennska hans, prúðmennska og glettni var eins skaftfellsk og hugsast getur, þar sem hæverskan var í fyrirrúmi. Hann var Mýrdælingur, frá Þórisholti. Margs er að minnast frá liðnum árum. Tónleikar og tónleikaferðir um landið, oftast þó um Skaftafellssýslurnar tvær. Söngatriði með þeim bræðrum Kristni og Kjartani á aðalfundi útvegsmanna á Suðurnesjum. Fjölmargar gönguferðir okkar oftast um Elliðaárdal og Heiðmörk ásamt göngufélögum í Skálmurum. Gengið var allan ársins hring þegar við vorum duglegust. Einn af hátindum í ferðum okkar Skálmara var þegar við opnuðum formlega svokallaða Hellismannaleið frá Rjúpnavöllum, í Áfangagil þaðan í Landmannahelli og að lokum endað í Landmannalaugum. Á lífsleiðinni kynnist maður nýju fólki og þótt kynnin hefjist eftir miðjan aldur er eins og viðkomandi hafi alltaf þekkst. Þannig vil ég lýsa kynnum mínum af Kristni. Ég þakka honum samfylgdina og votta Guðrúnu og fjölskyldu hans samúð mína. Blessuð sé minning Kristins.
Sýnir færslur með efnisorðinu Kórinn. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Kórinn. Sýna allar færslur
þriðjudagur, 26. maí 2020
mánudagur, 1. júlí 2019
Nordklang 2019 Helsinborg
Undanfarna daga, 26. til 29. júlí höfum við í Söngfélagi Skaftfellinga verið á sönghátíð, sem haldin er í Helsingborg og kallast Nordklang 2019. Engin orð ná að lýsa þeim hughrifum sem maður upplifir á atburði sem þessum. Það eitt að sitja með 1000 manns að morgni og syngja tvö lög saman áður en vinnuhópar byrja að starfa er einstök upplifun. Allir glaðir, allir gera sitt besta og sungið út, þannig að krafturinn smýgur inn í sálina og fyllir hana gleði. Við í Söngfélagi Skaftfellinga vorum í sama vinnuhópnum Folkmusik, sem Jóhanna Thür frá Hagakirkju í Gautaborg stjórnaði af einstakri lipurð og fagmennsku. Söngfélagið kom fram í Knutpunkten á Járnbrautastöðinni í Helsingborg og söng þar nokkur íslensk lög. Alls staðar bros og þakklæti. Hátíðinni lauk í gær með söngveislu þar sem hver vinnuhópur söng eitt eða tvö lög eftir atvikum, sem hóparnir höfðu verið að æfa í vinnuhópum. Þetta var ógleymanleg stund. Þið sem viljið upplifa svona viðburð getið skellt ykkur í kór. Hátíðin verður haldin næst á Íslandi 29. júní 2022.
Labels:
Kórinn,
Menning,
Norræn samskipti,
Tónlist
mánudagur, 1. maí 2017
Söngfélag Skaftfellinga, vortónleikar 2017
Hér er hægt að nálgast tóndæmi frá tónleikunum Söngfélag Skaftfellinga, vortónleikar 2017
mánudagur, 24. apríl 2017
Um uppsveitir Borgarfjarðar
Þessa helgi (21. 0g 22. apríl 2017) fór Söngfélag Skaftfellinga í sína árlegu vorferð. Að þessu sinni var farið um uppsveitir Borgarfjarðar og endað í Borgarnesi, þar sem sungið var í Brákarhlíð og á Landnámssetrinu fyrir gesti og gangandi. Fyrri daginn var lagt af stað frá Reykjavík kl. 10.00. Keyrt var um Hvalfjörð og stoppað við Ferstiklu, en þar var lokað. Þá var næst komið að Fossatúni þar sem fyrrum plötuútgefandinn Steinar Berg rekur þjónustu fyrir ferðamenn. Sungum við nokkur lög fyrir Steinar og starfsfólk hans og gesti. Næst var komið við á Hvanneyri og þar var landbúnaðarsafn skólans skoðað og sungið fyrir fólkið. Frá Hvanneyri var ekið upp í Hvítársíðu, þar sem við gistum á gististaðnum Á á Hvítarsíðu. Við borðuðum kvöldverð og gistum þarna um nóttina. Í dag var ekið um Hvítársíðu í Húsafell að Barnafossum og komið í Reykholt. Þar var sungið í Reykholtskirkju fyrir gesti og gangandi og sr. Geir Waage. Að því loknu var ekið í Borgarnes og sungið á Landnámssetrinu í hádeginu og síðan á dvalarheimilinu Brákarhlíð eins og áður sagði. Það er einstaklega gefandi að ferðast um með þessum hætti. Deila geði með söngfélögum, koma fram og syngja fyrir fólk og ríka þannig umhverfið og gefa með sér af afrakstri vetrarins í söng. Nú um næstu helgi verða vortónleikar kórsins í Seltjarnarneskirkju og vonandi koma sem flestir til að njóta afraksturs vetrarins í söngiðkun okkar sunnudaginn 30. apríl kl. 14.00.
þriðjudagur, 24. maí 2016
Söngfélag Skaftfellinga
Þá er lokið viðburðarríkum söngvetri Söngfélags Skaftfellinga 2015/2016. Hér að neðan er yfirlit yfir vetrarstarfið. Eins og skýrsla stjórnar ber með sér er Söngfélagið líflegur kór karla og kvenna og ein meginstoð í starfsemi Skaftfellingafélagsins.
Skýrsla stjórnar veturinn 2015/2016
Fyrsta æfing kórsins var haldin þriðjudaginn 15.
september í Skaftfellingabúð. Æfingar
voru á þriðjudögum eins og undanfarin ár. Langur laugardagur var haldinn fyrir
áramót þriðjudaginn 31. október.
Helstu viðburðir á dagskrá kórsins var fjölsótt
aðventuhátíð sem haldin var 6. desember. Þá voru sjúkrastofnanir heimsóttar 8.
desember. Farið var á geðdeild LSH og Landakot. Að auki sáum við um söng í guðsþjónustu
í Seltjarnarneskirkju og heimsóttum Hjúkrunarheimilið Eir þann sama dag, 27.
desember.
Æfingar á vorönn hófust þriðjudaginn 12. janúar í
Skaftfellingabúð. Langur laugardagur var haldinn 20. febrúar. Farið var í
kvöldheimsókn til Gerðubergskórsins föstudaginn 11. mars og sungu kórarnir
nokkur lög í Fella- og Hólakirkju. Þetta var vel sóttur atburður og þótti
takast vel.
Kórinn söng við Skaftfellingamessu 13. mars og í
framhaldi var boðið upp á messukaffi á vegum kórsins og Skaftfellingafélagsins.
Að þessu sinni komu kirkjukórar Víkur, Ása og Prestbakkakirkju og sungu einnig
við messuna. Sameiginlegur kvöldverður með kórunum var á Hótel Holti
laugardagskvöldið 12. mars.
Lokatónleikar voru haldnir 1. maí í Seltjarnarneskirkju
eins og undanfarin ár. Þrír undirleikarar spiluðu undir í hluta laganna, þeir
Jón Rafnsson bassaleikari, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Karl Olgeirsson á píanó. Tónleikarnir tókust mjög
vel og voru vel sóttir. Eftir tónleikana var svo boðið í vorkaffi
Skaftfellingafélagsins og kórsins í Skaftfellingabúð.
Vorferð kórsins var farin austur í Vík í Mýrdal helgina
7.-8. maí og og tókst mjög vel. Rúmlega þrjátíu manns fóru í þessa ferð og var
sungið á fjórum stöðum: Dvalarheimilinu Lundi á Hellu, veitingahúsinu Svörtu
Fjöru í Mýrdal, Dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík og svo tónleikar á Icelandairhoteli
í Vík. Gist var á Hótel Kötlu að Höfðabrekku og borðaður sameiginlegur
kvöldverður. Allt var þetta hin besta skemmtun og tókst í alla staði mjög vel.
Virkir söngfélagar hafa verið 35 í vetur en heldur
kvarnaðist úr hópnum er leið á starfsárið. Yfirleitt hafa mætt um 28 manns á
æfingar. Æfingargjald fyrir hvora önn var 15.000.- Margrét Bóasdóttir kom á tvær æfingar til
þess að raddþjálfa kórinn, en kórstjóri í vetur hefur verið Friðrik Vignir
Stefánsson.
Í stjórn hafa verið í vetur Sveinn Hjörtur Hjartarson formaður,
Sigurlaug Jóna Sigurðardóttir, Kristjana Rósmundsdóttir, Helga Lilja
Pálsdóttir, Gísli Þórörn Júlíusson, Svanhildur Kristjánsdóttir og Þórunn
Jónasdóttir. Stjórnin hélt fjóra formlega stjórnarfundi. Meðstjórnendum er
þakkað gott samstarf á liðnum vetri.
miðvikudagur, 13. maí 2015
Eins og mynd í sandi
Hugleikin er sandmyndin sem búddamunkarnir frá Tibet teikna af mikilli natni í öllum regnbogans litum. Þegar verkinu er lokið sópa þeir sandinum saman og á næstu hátíð er teiknuð ný mynd og hún hlýtur sömu örlög. Man þegar ég sá þetta í fyrsta sinn og þótti þetta miður að eyðileggja svona fallegt verk. Auðvitað hefur þessi mynd og svo eyðing hennar ákveðinn tilgang. Ekkert mannanna verk varir að eilífu. Allt er í heiminum hverfult og svo framvegis.
Þessi minnig rifjaðist upp eftir frábæra tónleika Söngfélags Skaftfellinga um síðustu helgi. Við söngfélagarnir æfðum fjölda laga í allan vetur til þess að syngja á vortónleikum okkar. Þar með er lokamarkmiðinu náð. Eftir tónleikana lifir minningin ein og við bíðum þess að geta hafið æfingu á nýju lagavali næsta haust til þess að flytja á enn nýjum tónleikum. Tilgangurinn er að geta sungið fallegt ljóð og nært fegurðina eitt augnablik og veitt hana öðrum.
Við eigum stundina, er viðkvæði sem við erum reglulega minnt á. Við höldum áfram okkar daglega lífi og á vegferð okkar verður fólk sem við eigum samleið með um lengri eða skemmri veg. Hver er svo tilgangurinn með þessu öllu. Svo aftur sé leitað í skjóðu Dalai Lama er hann einfaldlega að vera hamingjusamur.
Hamingjan er hugarástand sem hver og einn verður að skilgreina fyrir sig. Hún er ekki ákveðin formúla eða skyndibiti. Hver og einn verður að öðlast hana eftir eigin forskrift og vinna að því að öðlast hana. Þetta eru nú sérdeilis hreinskiptin skilaboð og ekki víst að öllum líki. Samt erum við öll hugsandi verur að feta okkur fram í lífinu og spyrjandi þessara grundvallar spurninga um lífið og tilveruna, eins og þessarar.
Sumir segja að lífið sé frá upphafi til enda háð eintómum tilviljunum. Aðrir telja að lífshlaupinu sé meira og minna stýrt. Hvað er rétt í þessum efnum? Ég veit það ekki, en við eigum væntnlega öll sameiginlegan þennan efa um tilgang lífsins og tilveruna. Sagði ekki Kristur sjálfur á krossinum: "Elí, Elí, lama sabaktaní!" Það þýðir: "Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?" Þess vegna verðum við að trúa því okkur er ekki gefin vissan. Þetta átti nú aðeins að vera örstutt hugvekja um gildi söngsins en varð óvart hugvekja um tilgang lífsins enda uppstigningardagur á morgun. Það er gott að vita til þess að vakað er yfir okkur á himnum. Góða helgi.
Sumir segja að lífið sé frá upphafi til enda háð eintómum tilviljunum. Aðrir telja að lífshlaupinu sé meira og minna stýrt. Hvað er rétt í þessum efnum? Ég veit það ekki, en við eigum væntnlega öll sameiginlegan þennan efa um tilgang lífsins og tilveruna. Sagði ekki Kristur sjálfur á krossinum: "Elí, Elí, lama sabaktaní!" Það þýðir: "Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?" Þess vegna verðum við að trúa því okkur er ekki gefin vissan. Þetta átti nú aðeins að vera örstutt hugvekja um gildi söngsins en varð óvart hugvekja um tilgang lífsins enda uppstigningardagur á morgun. Það er gott að vita til þess að vakað er yfir okkur á himnum. Góða helgi.
miðvikudagur, 6. maí 2015
Söngfélag Skaftfellinga til Ísafjarðar.
Helgina 1. til 3. maí fór
Söngfélag Skaftfellinga í vorferð til Ísafjarðar. Haldnir voru tónleikar í
Ísafjarðakirkju 2. maí. Undirleikari var Pálmi Sigurhjartarson og stjórnandi
var Friðrik Vignir Stefánsson. Gist var að Hótel Núpi í Dýrafirði. Farið var í
heimsókn í Hraðfrystihús Gunnvör hf í Hnífsdal. Þar tók á móti okkur forstjóri
fyrirtækisins, Einar Valur Kristjánsson og fræddi okkur um sjávarútveginn,
fyrirtækið og nýtt skip Pál Pálsson ÍS sem kemur í rekstur á næsta ári. Keyrt
var um Súðavík, Ísafjörð, Bolungarvík og Flateyri.
föstudagur, 24. apríl 2015
Sunnukórinn á Ísafirði - Reykjavíkurför
Fyrir 70 árum eða árið 1945 kom Sunnukórinn á Ísafirði í söngferð til Reykjavíkur. Í minni fjölskyldu hefur þessi atburður verið í minnum hafður vegna þess að í þessari söngför tóku þátt bæði afi minn Jón Hjörtur Finnbjörnsson og systir hans Magrét Finnbjörnsdóttir. Þetta þótti hin mesta frægðarför á Ísafirði. Í Reykjavík var tekið á móti þeim við skipshlið af Dómkórnum og sungust kórarnir á þegar komið var til hafnar. Þrír tónleikar voru haldnir í Reykjavík í Gamla bíó við góðar undirtektir. Síðan var sungið í Hafnarfirði, Vífilsstöðum og á Selfossi. Þá var sungið inn á plötu fyrir Ríkisútvarpið. Nú er komið að því að endurgjalda þessa heimsókn með för Söngfélags Skaftfellinga til Ísafjarðar um mánaðarmótin. Allavega verður í hópnum afkomandi Jóns Hjartar sem er með þessa minningu í fartaskinu og hefur það að leiðarljósi að heiðra minningu afa síns með því að taka þátt í þessari söngferð. Margrét er önnur til vinstri í fremstu röð og afi annar frá vinstri í öftustu röð.
Vorferð Söngfélags Skaftfellinga til Ísafjarðar 1.til 3. maí 2015
Plakatið skýrir sig sjálft en ef einhverjir sem koma inn á þessa síðu verða á Ísafirði 2. maí eruð þið velkomin á þessa vortónleika Söngfélagsins í Ísafjarðarkirkju.
Labels:
Ísafjörður,
Kórinn,
Menning,
Tónlist
föstudagur, 4. apríl 2014
Vinir Skúla - sextett
Eitt af því skemmtilegra sem ég hef tekið þátt í undanfarna mánuði er sextettinn Vinir Skúla, sem stofnaður var í fyrra til þess að koma fram á þorrablóti Skaftfellingafélagsins í Reykjavík. Við höfum haldið áfram að syngja saman og komið fram við ýmis tækifæri. Á skemmtunum Skaftfellingafélagsins, Söngfélags Skaftfellinga, afmælisveislum, nú síðast í kirkjukaffi Skaftfellingafélagsins í Breiðholtskirkju 23. mars sl og þar áður í Borgarskjalasafni Reykjavíkur á Safnanótt í febrúar. Félagarnir eru: Skúli Oddsson, Hákon Jón Kristmundsson, Sveinn Hjörtur Hjartarson, Stefán Bjarnason, Helgi Gunnarsson og Gísli Þórörn Júlíusson.
laugardagur, 13. júlí 2013
Söngfélag Skaftfellinga fjörtíu ára.
Ávarp flutt á vorkaffi Skaftfellingafélagsins í Reykjavík þann 5. maí sl. í tilefni 40 ára afmælis Söngfélags Skaftfellinga.
Góðir
gestir.
Söngfélag Skaftfellinga
er fjörtíu ára í ár. Það er því vel við hæfi að minnast í nokkrum orðum upphafsins
og kórstarfsins.
Stofnár kórsins er
miðað við fyrstu söngæfingu þann 25. mars 1973.
Starfsemi Söngfélags
Skaftfellinga er samofin Skaftfellingafélaginu í Reykjavík. Kórinn hefur
alla tíð notið velvildar og stuðnings
þess. Allar götur frá 1980 hefur kórinn haft afnot af húsakynnum
Skaftfellingafélagsins, Skaftfellingabúð og það stutt við starfsemina
með margvíslegum hætti.
Ekkert félag og enginn kór getur lifað jafn kröftugu
lífi nema fyrir það að að starfinu komi fjölmargir félagar sem halda
starfseminni gangandi. Það væri of langt mál að telja þá alla upp.
Í átthagafélögum eins
og Skaftfellingafélaginu í Reykjavík og Söngfélagi Skaftfellinga fer fram
mikilvæg menningarstarfsemi. Þau tengja saman fólkið í gömlu átthögunum við
brottflutta sveitunga og ættmenni. Þannig viðhalda þau tengslum og skilningi milli
þéttbýlis og dreifbýlis sem sannarlega er mikil þörf á í okkar samfélagi.
Þær fjölmörgu tónleikaferðir
sem kórinn hefur farið um Skaftafellssýslur og víðar allt frá stofnun í fjörtíu
ár og þær góðu heimsóknir sem við höfum fengið þaðan er skýrt dæmi um þá
eflingu menningarlífs sem félögin stuðla að.
Félagar í kórnum sem nú
eru rúmlega fjörtíu talsins eru langflestir ættaðir úr annarri hvorri sýslunni.
Síðan erum við nokkur sem erum ekki Skaftfellingar að langfeðratali en hefur
rekið á fjörur þessa félagsskapar og kunnum því vel.
Söngfélagið hefur haft
sína eigin stjórn frá 1974. Fyrsti formaður stjórnar var Jón Hilmar Gunnarsson.
Núverandi formaður Söngfélagsins er Kolbrún Einarsdóttir.
Kórinn hefur frá
upphafi haft fjóra söngstjóra: Jón Ísleifsson, Þorvald Björnsson, Víolettu Smid
og núverandi kórstjóra Friðrik Vigni Stefánsson.
Violetta Smid var gerð
að heiðursfélaga í Söngfélagi Skaftfellinga er hún hætti sem kórstjóri eftir
aldarfjórðungsstarf.
Stærsta verkefni
kórsins á afmælisárinu var að syngja inn á nýjan disk en upptökum lauk þann
fyrsta maí síðastliðinn. Tvívegis áður hefur kórinn gefið út plötu og disk. Þá
voru sérstakir afmælistónleikar haldnir í apríl síðastliðinn sem voru vel
sóttir og tókust mjög vel.
Fjórir kórfélagar eru
stofnaðilar kórsins. Það eru þau Páll Jóhannesson tenór, altarnir Bjarndís og Valgerður Sumarliðadætur og Einar Brynjólfsson
bassi. Margir kórfélagar hafa verið með um áratuga skeið.
Ég vil að lokum óska
okkur öllum til hamingju með árin fjörtíu í starfsemi kórsins. Allt er fertugum
fært segir máltækið og megi það einnig eiga við um Söngfélag Skaftfellinga.
Þakka ykkur fyrir.
þriðjudagur, 24. apríl 2012
Kórferðin í ár.
Kórferðalagið okkar í Söngfélagi Skaftfellinga í ár var til Hafnar í Hornafirði. Farið var af stað föstudaginn 20. apríl og komið heim sunnudaginn 22. apríl eftir frábæra skemmtun á Höfn í Hornafirði. Ég var síðbúinn í þessa ferð þannig að ég fór akandi á eigin bíl en kórinn fór með rútu. Á leiðinni austur og til baka var víða komið við og sungið. Aðaltónleikarnir voru á Höfn í Hornafirði á laugardeginum og var tekið til þess hve vel var mætt. Auk Söngfélags Skaftfellinga söng Samkór Hornfirðinga nokkur lög en kórfélagar í honum tóku vel á móti okkur. Um kvöldið var svo efnt til samsætis og með kvöldverði og söng og skemmtan. Ferðin austur gékk mjög vel. Veður var lengst af fallegt en eftir að komið var framhjá Skaftafelli var ísing í loftinu og rok kviður á köflum. Veðrið á laugardeginum og sunnudeginum var ágætt og heimferðin sóttist vel. Í stuttu máli má segja að þessi ferð verði ógleymanleg fyrir margra hluta sakir. Nóg í bili.
laugardagur, 25. febrúar 2012
Okkar er að upplifa og njóta.
Seltjarnarneskirkja. Málverkið er eftir Kjartan Guðjónsson (1910 – 2010) listmálara og hangir nú á vegg í Seltjarnarneskirkju. Listamaðurinn er afkomandi sr. Bjarna Einarssonar prests í Álftaveri sem þjónaði Þykkvabæjarklausturskirkju á fyrrihluta 20. aldar. Myndin sýnir Krist lausan undan þjáningu krossins. Í bakgrunni er lítil íslensk sveitarkirkja, sem gæti vel táknað Þykkvabæjarklausturskirkju. Hér er mynd sem samvefur afskekkta sveit og trúarupplifun listamannsins. Þegar kórfélögum var bent á þessa tengingu myndarinnar við Álftaver gat kórstjórinn Friðrik Vignir Stefánsson að kirkjuvörðurinn hefði spurt hvort ekki væru einhverjir hávaxnir í kórnum sem gætu hengt myndina upp á veginn. Það varð úr að Friðriki til aðstoðar voru fengin til verksins þau kórfélagarnir Gísli Þórörn Júlíusson og Sigurveig Þóra Sigurðardóttir, sem bæði eru ættuð úr Álftaveri. Þar með var þetta orðin þríheilög tenging þ.e. við listamanninn, sveitina og söngfélagið. Kjartan hefði kunnað að meta þessa gleðistund. Einum kórfélaga varð að vísu á orði að enginn væri austurglugginn á Þykkvabæjarklausturskirkju. Því er þá til að svara að ekki var Jesús sjálfur heldur krossfestur þar. Myndmálið er eigi að síður skýrt og hughrifin kalla fram þessa hugsun. Gleðin í látbragði þeirra sem önnuðust verkið er einlæg og fölskvalaus. Ef til vill mun listamanninum síðar verða að ósk sinni og austurgluggi settur á kirkjuna. Það er eðli listarinnar að listamaðurinn hefur frjálsar hendur við sköpunina. Okkar er að upplifa og njóta. Kveðja.(Myndina tók Kristinn Kjartansson frá Þórisholti í Mýrdal.)
fimmtudagur, 23. febrúar 2012
"Lífið er stutt, lifðu því."
Lífið er stutt, lifðu því sagði vinur minn við mig í vikunni. Eftir því sem aldurinn færist yfir gerir maður sér betur grein fyrir því að ef vinna á úr "óskalistanum," þarf að gefa honum aukið gaum. Á mínum lista fyrir svona tíu árum var ýmislegt sem mig langaði, en fannst svolítið fyrir utan ramma hins daglega lífs þá. Syngja í kór, læra á píanó, grúska í nótum, fara í gönguferðir í óbyggðum. Ég ákvað þá að sinna þessum áhugamálum mínum. Nú þegar maður lítur til baka upplifir maður að margt á gamla listanum er orðið hluti af tilverunni.Það þýðir alls ekki að gömul áhugamál hafi öll verið lögð til hlutar. Það er eins og maður auki virkni almennt ef maður bryddar upp á nýjum verkefnum. Það skemmtilegasta við það að fylgja löngun sinni er að maður kynnist fólki sem deilir sömu áhugamálum. Maður öðlast nýja reynslu og eignast nýja vini. Maður má hinsvegar ekki þar við sitja. Það er nauðsynlegt að fara öðru hvoru yfir listann og kanna hvort ekki séu einhver ný atriði á listanum sem vert er að skoða betur. Læt þetta duga í bili. Datt þetta bara í hug, svona í tilefni dagsins. Kveðja.
(Myndin af fötunni er fengin að "láni" af netinu.)
mánudagur, 14. nóvember 2011
Æfingabúðir í Borgarnesi
Við í Söngfélagi Skaftfellinga fórum í æfingabúðir í Borgarnes um síðustu helgi. Æft var á laugardeginum frá því kl. 13.00 til 17.00 í Tónlistarskólanum í Borgarnesi, sem áður var apótekið á staðnum. Borðað var á "Bed and breakfast" í fyrrum kaupfélagsstjórahúsinu, glæsilegu húsi frá stórveldistíma Kaupfélags Borgnesinga. Við vorum flest sem gistum þar sem áður voru bæjarskrifstofurnar. Á sunnudeginum var æfingum framhaldið til hádegis og nú í kaupfélagsstjórahúsinu. Af framansögðu má ráða að margar byggingar í bænum hafa fengið nýtt hlutverk í ferðamannaþjónustu vegna breyttra áherslna í atvinnumálum. Borgarnes er hægt og bítandi að verða sannkallaður ferðamannastaður. Enda er bæjarstæðið og umhverfið eitt það fegursta og tilkomumesta á landinu. Á laugardagskvöldinu var efnt til kvöldverðarhófs og tókst það eins og best verður á kostið.
mánudagur, 9. maí 2011
Í söng.
Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga voru haldnir eins og til stóð í Áskirkju í gær. Þrátt fyrir brakandi blíðu var á annað hundrað manns mættir til þess að hlusta á kórinn. Tónleikarnir gengu vel fyrir sig og var gerður góður rómur að söng kórsins. Eftir tónleikana var haldið kaffisamsæti í Skaftfellingabúð. Þá bauð einn kórfélagi kórnum heim til sín svona til að ljúka deginum. Það er ekki laust við að maður sé þegar farinn að sakna þess að nú verði engar söngæfingar á þriðjudagskvöldum en æfingar hefjast ekki að nýju fyrr en í september. Kórfélögum eru þakkaðar samstarfið síðastliðinn vetur og frábært félagsstarf á vettvangi kórsins.
miðvikudagur, 4. maí 2011
Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga.
Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga verða haldnir í Áskirkju sunnudaginn 8. maí nk. kl.14:00. Að þeim loknum verður boðið upp á kaffi og kökur í félagsheimili Skaftfellingafélagsins í Reykjavík að Laugarvegi 178. Allir söngelskir eru hvattir til þess að koma á tónleikana og njóta með okkur afrakstrar vetrarstarfsins í tónum og ljóðum. Stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson. Einsöngvarar eru Jóna G Kolbrúnardóttir sópran og Stefán Bjarnason bassi. Undirleikarar með kórnum eru Jón Rafnsson kontrabassi, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Vignir Þór Stefánsson píanóleikari. Mætum öll!
sunnudagur, 10. apríl 2011
Tónleikar Goðalandi í Fljótshlíð
Tenórar Í gær hélt Söngfélag Skaftfellinga tónleika ásamt Hring, kór eldri borgara í Rangárþingi. Tónleikarnir voru haldnir að Goðalandi í Fljótshlíð og var fjölmenni mætt til þess að hlusta á kórana m.a. hópur eldri borgara austan úr Skaftárhreppi. Jón G Kolbrúnardóttir, sópran, ung og ný söngkona söng með kórnum nokkur einsöngslög. Hér er efnileg söngkona á ferðinni sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Lagt var af stað austur kl. 10.00 og keyrt upp Landsveit. Leiðsögumenn voru Guðni Olgeirsson og Kolbrún Einarsdóttir en bæði eiga ættir að rekja í Rangárþing. Farið var í hellaskoðun að Hellum í Landsveit. Um er að ræða manngerðan helgan helli, sem upphaflega var byggður af írskum Pöpum. Þá var heimsótt Heklusetrið að Leirubakka. Á báðum þessum stöðum var lagið tekið. Næst var brunað að Goðalandi í Fljótshlið þar sem tónleikarnir voru haldnir. Góður rómur var gerður að söng kóranna og þeir klappaðir upp til að syngja nokkur aukalög. Eftir tónleikana var haldið í heimboð í sumarhús til Kolbrúnar Einarsdóttur kórformanns og eiginmanns hennar Gísla Sigurþórssonar í Ketlubyggð í landi Ketilhúshaga. Þar var borðaður kvöldverður og haldið áfram í söng og gleði. Lagt var af stað í bæinn um ellefuleytið. Góður og eftirminnilegur dagur var að baki í góðra vina hópi.
mánudagur, 21. mars 2011
Skaftfellingamessa 2011
Söngfélag Skaftfellinga. Í gær var haldin hin árlega Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju. Söngfélag Skaftfellinga sá um sönginn að venju. Eftir helgihaldið var haldið kaffisamsæti í safnaðarheimili kirkjunnar og boðið upp á kaffi, kökur og söng sem kórinn annaðist. Skaftfellingamessa hefur nú verið haldin í nokkur ár og er hún ávallt mjög vel sótt. Nú er talið að um tvö hundruð manns hafi sótt messuna.
sunnudagur, 21. nóvember 2010
Það leiðist engum í söng
Í gær var ég á söngæfingu hjá kórnum mínum, Söngfélagi Skaftfellinga. Við æfum einu sinni í viku og tökum því einstaka sinnum langan laugardag til þess að taka ærlega á því. Æfingin stóð í fjóra tíma og svo var sameiginlegur kvöldverður kórfélaga í lok æfingar. Þetta var í alla staði hin skemmtilegasta æfing.Unnið er að vinna upp lagavalið fyrir næstu vortónleika og svo var aðeins farið yfir jólalögin. Fyrirhuguð er ferð til Svíþjóðar næsta sumar til að endurgjalda heimsókn sænska kórsins Östergök sem kom hingað síðastliðið vor.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




Kórinn á Höfn