sunnudagur, 7. júní 2009
Sjómannadagsþankar
Óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er ávallt fyrsti sunnudagur í júní, nema hann beri upp á hvítasunnu þá færist hann til um viku. Það er ánægjulegt hvað vegur þessa dags hefur aftur farið vaxandi. Veðrið hefur verið einmuna gott um þessa helgi og ekki hefur það skemmt fyrir hátíðarhöldum. Í gær var því fagnað að 65 ár voru frá innrásinni í Normandý sem markaði þáttaskil í seinni heimstyrjöldinni og var upphafið að endalokum nasismans. Það var áhrifaríkt að sjá alla þessa öldnu hermenn mætta til að taka þátt í hátíðarhöldunum í sjónvarpinu. Þeir söknuðu Elísabetar drottningar sem var ekki boðið. Hún er eini eftirlitfandi þjóðhöfðinginn sem gékk í sama einkennisbúningi og hermennirnir eins og þeir orðuðu það gömlu mennirnir og táruðust. Nú hefur G. Brown þurft sviðið til þess að treysta stöðu sína gagnvart almenningi, en frægðarsól hans þverr nú óðum að sögn fjölmiðla. Þarna var mættur nýr forseti Bandaríkjanna, Obama. Það minnir mig aftur á Icesave málið sem nú er verið að semja um fyrir luktum dyrum. Merkilegt að það skuli ekki enn liggja fyrir hverjir beri ábyrgð á því að landsmenn séu orðnir ræðarar á breskum og hollenskum skuldagaleiðum svo notað sé líkingamál.
Labels:
Sjávarútvegur,
Sjómannadagurinn,
Stjórnmál
laugardagur, 6. júní 2009
Í afmælisveislu Lilju
Við Sirrý og Sigrún fórum í afmælisveislu hennar Lilju okkar í dag. Stúlkan er orðin tveggja ára gömul. Í fyrsta skipti heyrði ég hana segja afi Svenni. Svo kann hún að nefna marga liti sú litla og fer málþroska hennar ört fram. Nú opnaði hún af áhuga alla afmælispakkana enda var Sveinn Hjörtur frændi hennar ekki til staðar til þess að taka að sér það verk eins og síðast. Kveðja.
Söde skovbær og sure sild
Saga Gärde.Mikið er yndislegt að enda vinnuvikuna á því að setjast inn í Norræna húsið á föstudagskvöldi. Fá sér eitt kælt vínglas og hlusta á flotta söngkonu taka nokkur sænsk vísna- og jazzlög. Þetta ætti maður að gera oftar. Tónleikarnir báru yfirskriftina "Söde skovbær og sure sild" eða "Sæt skógarber og kæst síld". Sænska leik- og söngkonan Saga Gärde söng eins og engill við undirleik feðganna Anders Ahnfelt - Rönne á píanó og harmóníku og Lars Rönne á kontrabassa. Það var bara eins og Monica Cetterlund væri endurfædd. Framburður og túlkun var mjög góð og söngurinn lírískur. Maður verður svo þakklátur og mjúkur eftir svona fallegan og ljúfan söng. Hluti af efnisskránni voru jazz útsetningar eftir Jan Johannsson og svo ýmsar sænskar perlur eins og Ak Värmland du sköna, Monica´s vals, Trubbel, Om natten m.m. Kveðja.
fimmtudagur, 4. júní 2009
Út í Eyjum.
Fór um hádegisbilið út í Eyjar á ráðstefnu sem þar var haldin um fyrningu aflaheimilda í sjávarútvegi. Þetta var fjölmenn ráðstefna með alls um 200 þátttakendum víða að komnum til þess að hlíða á fróðleg erindi og taka þátt í pallborðsumræðu. Mikil andstaða kom fram við þessa leið á fundinum og allflestir fundarmenn vöruðu við henni. Þessi lítt útskýrða hugmynd felst í því að taka af útgerðum veiðiheimildir og ráðstafa þeim á pólitískum forsendum eða bjóða þær hæstbjóðanda til sölu. Maður hefði talið að mikilvægari verkefni væru á dagskrá stjórnvalda sem glíma við mikinn fjárhagsvanda heimila og fyrirtækja, gríðarlegt atvinnuleysi og vaxandi vonleysi fólks. Er þetta ekki stjórnmálaumræða í hnotskurn? Forðast að ræða um það sem skiptir máli, en láta umræðuna snúast um það hvernig megi auka óhagræði í sjávarútveginum, þeirri atvinnugrein sem stendur undir stórum hluta gjaldeyrisöflunarinnar og þarf nú sem aldrei fyrr að ganga eins vel og kostur er. Miðað við gang mála býð ég ekki í framhaldið á næstu mánuðum.
Labels:
Sjávarútvegur,
Vestmannaeyjar.
miðvikudagur, 3. júní 2009
Gamlar myndir.
1967 Fékk þessa mynd senda á Facebook frá Jensínu Eddu Hermannsdóttur frænku minni. Hún er tekin á æskuheimili mínu á Víðihvammi 17 líklega sumarið 1967. Þarna er maður að æfa sig á píanóið sem unglingur.
2007 Þessi mynd er tekin fjörtíu árum síðar í Kópavogskirkju við skírn Lilju minnar. Enn er maður að rembast við þetta hljóðfæri með takmörkuðum árangri. Langaði að deila þessu með ykkur. Kveðja.
þriðjudagur, 2. júní 2009
Dalai Lama
Dalai Lama. Við Sirrý og Sigrún fórum út í hátíðarsal Háskóla Íslands að hlíða á Dalai Lama. Þegar við komum var fullt í salnum þannig að við tókum á móti honum og fylgdarliði á ganginum og hlýddum þar á hann. Við höfum lesið bækur hans að einhverju marki, séð kvikmynd og sjónvarpsþætti um líf hans og starf og fylgst með umfjöllun um málefni Tíbets. Hernám Kínverja á Tíbet og valdníðsla og er þeim til lítils sóma. Það er mikilvægt að Kínverjar fái áframhaldandi þau skilaboð að slík framkoma verður ekki liðin. Við þekkjum það orðið við fall sovétskipulagsins að það er ekki varanlega hægt að koma í veg fyrir að frelsið sigri að lokum. Frelsi er eitt af því dýrmætasta sem sérhver einstaklingur getur öðlast. Inn á þetta kom hinn aldni leiðtogi þegar hann var spurður um líf sitt sem flóttamaður og hvar hann ætti heima - það er betra að vera frjáls þess vegna er "heima" núna á Indlandi sagði hann. Dalai Lama kom inn á mikilvægi kærleikans og þess að bjóða óvini sínum hina kinnina þegar hann slær þig. Hafa það í huga að óvinur þinn væri til síðrum og síst líka maður. Hvernig sigrast megi á reiði og ótta með jákvæðum lífsviðhorfum. Hvernig trúin sé forsenda trausts manna í milli og undirstaða siðferðis í samskiptum manna. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að hann væri aðeins maður, búddamúnkur og gerði létt grín að titlatogi. Óformleg samskipti manna í milli hentuðu sér betur. Styrkur sérhvers manns fælist í lítillæti hans. Dalai Lama hefur sterka útgeislun og létt sinni hans auðveldar honum að ná til viðstaddra. Kveðja. (mynd:mbl.is)
mánudagur, 1. júní 2009
Blúsað upp um sveitir.
The Lame Dudes Í gærkvöldi á hvítasunnudag, á hátíð hins heilaga anda fórum við á tónleika upp í Fljótshlíð og hlýddum á hljómsveitina The Lame Dudes leika fyrir uppsveitunga Rangárvallasýslu. Þarna var góður hópur mættur til þess að njóta tónlistarinnar, þar á meðal fulltrúi hins þríheilaga. Ef almættið hefur skemmt sér jafnvel og við sem hlýddum á hljómfallið, þá hefur líka verið mikið fjör á himnum og því vel stofnað til þessara tónleika. Fátt hressir betur andann en lifandi flutningur tónlistar. Hljómsveitin endurflutti nánast öll lögin aftur undir dynjandi lófataki áheyrenda. Blúsinn á rætur sínar að rekja í trumbuslætti Afríku, striti og sliti bómullarakranna, þakkargjörð þeldökkra í guðshúsum og ölvímu á öldurhúsum í borgum og bæjum. Svo birtist hljómfallið öllum að óvörum í flutningi íslenskra manna á bjartri sumarnóttu, sem ná að túlka þessa dýpstu mótunarkrafta mannsins þannig að ekki verður betur gert og það með íslenskum formerkjum - hvílík snilld. Hvaðan koma þessir hæfileikamenn, hvert liggur leið þeirra? Allt á sinn tíma og sína stund svo mikið er víst að í gærkvöldi náðu þeir nýjum hæðum í túlkun sinni. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Við viljum meira af þessu.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
