sunnudagur, 12. febrúar 2012
Hässleholm í febrúar.
Höfum dvalið hér í Hässleholm yfir helgina. Það ríkir vetrarveður allt að 9 stiga frost og snjóföl yfir öllu. Við fórum til Lundar í gær og áttum þar góðan dagpart. Fórum m.a. í Akademi bokhandeln og á veitingahús. Lestarsamgöngur voru í ólagi þannig að við fórum með rútu frá Hässleholm til Eslöv og þaðan með lest til Lundar. Það var ágætis afþreying að keyra í rútunni um þennan hluta Skåne og sjá aðeins annað landslag og bæi. Í dag vorum við í 7 ára afmæli nafna míns í Kristianstad. Flott veisla með vinum þeirra Stjánastaðarbræðra. Annars höfum við haft það gott í "líunni" okkar og hún er alltaf að verða persónulegri og skemmtilegri. Fréttir eru sagðar frá vaxandi spennu í Grikklandi en þar er við mikla efnahagserfiðleika að stríða og svo eru fréttir af andláti söngkonunnar Whitney Huston fyrirferðamiklar í fréttum. Nú vill F. Reinfeldt forsætisráðherra Svía hækka eftirlaunaladurinn og virkja konur til aukinna dáða í atvinnulífinu. Kveðja.
Labels:
Hässleholm,
Kristianstad,
Svíþjóð
fimmtudagur, 26. janúar 2012
Vetrarríki í janúar
Undraveröld ElliðaárdalsVetrarríkið í janúar er orðið slíkt að það er ekki annað hægt en að minnast á það í þessum annál. Þessi mikli snjór og erfiða færð sem af honum hlýst setur strik í tilveruna. Þótt ekki geti maður kvartað með tvo 4x4 á hlaðinu og það á nöglum. Margir samborgararnir eru ekki jafn vel búnir til aksturs og það tefur umferðina. Maður reynir að halda sinni daglegu rútínu. Ein af þessum rútínum hafa verið gönguferðirnar um Elliðaárdal á miðvikudagskvöldum og Heiðmörk á laugardagsmorgnum. Heiðmörk er illfær þessa dagana þess vegna hefur verið gengið um Elliðaárdal tvisvar í viku. Í gærkvöldi gengum við Skálmarar um Elliðaárdal í þæfingi og snjóþungum dalnum. Það var stilla og frábært veður til göngu. Á gróðrinum var drifhvít snjóþekja og svæðið líkast undraveröld. Meðfylgjandi mynd sem einn göngufélagi minn tók lýsir stemningunni betur en þúsund orð.(Mynd Sigurlaug Jóna Sigurðardóttir)
sunnudagur, 1. janúar 2012
Á nýju ári.
Þá er 2012 runnið upp.Við höfum verið hér í Kristianstad í Svíþjóð yfir áramótin. Veðrið í gærkvöldi var stillt en það kólnaði með kvöldinu. Raketturnar hafa sjaldan í mínu minni þotið jafn beint upp í loftið. Afastrákarnir Sveinn og Jóhannes skemmtu sér vel við þessa iðju og afi þeirra líka. Það er stutt í barnið í manni þegar flugeldar eru annarsvegar. Áramótaheitin voru ekki merkileg í ár. Reyndar var ég búinn að ákveða að þetta yrðu áramót án loforða. Við áttum hér indæla kvöldstund með Hirti og Ingibjörgu og strákunum. Hér var líka góður vinur þeirra, Ingimundur ásamt okkur. Meira síðar....
Labels:
Fjölskylda,
Kristianstad,
Svíþjóð
laugardagur, 31. desember 2011
Gleðilegt ár!
Rétt til að segja gleðilegt ár. Takk fyrir gömlu árin. Höfum það fínt hér í Kristianstad.
Kveðja.
Kveðja.
föstudagur, 30. desember 2011
Köbenhavn - Hässleholm
Í dag fórum við til Kaupmannahafnar í dagsferð. Áttum góðan eftirmiðdag í höfuðborginni og röltum Strikið í mannmergðinni. Enduðum í Magazin og borðuðum þar. Ótrúlegur fjöldi var í miðbænum og heyrði í Dana sem undraðist mjög hvaðan allt þetta fólk væri komið. Þessi næstsíðasti dagur ársins hefur runnið ljúflega og engu við það að bæta.
fimmtudagur, 29. desember 2011
Hässleholm og nágrenni.
Við flugum utan með Iceland Express í gærmorgun. Þeir voru á tíma og eru nú með í leigu nýjar Airbus vélar. Kristian, Linda og Wilma voru með okkur suður á Keflavíkurflugvöll og voru í sömu vél út. Þau höfðu klukkutíma til að koma sér í vélina til Gautaborgar þ.e. tékka sig út og inn á Kastrup. Það tókst allt saman en mátti ekki tæpara standa. Við vorum komin til Hässleholm kl. 15.00. Lestarferðin tók innan við klukkutíma. Eftir viðkomu á Vallgatan fórum við til Kristianstad og vorum þar fram eftir kvöldi í góðu yfirlæti hjá Hirti og Ingibjörgu. Tókum "Pågatoget" fram og til baka en það tekur um 18 mínútur að fara á milli þessara tveggja bæja. Hér í Hässleholm er öll þjónusta við hendina. Bæði sérvöruverslanir, stórmarkaðir, veitingahús og kaffihús. Þannig að það þarf ekki að sækja þá þjónustu annað. Það tekur rúman klukkutíma í lest til Kaupmannahafnar og kostar ferðin ca 150 SEK. Svo eru hér bæir eins og Lundur, Kristianstad og Malmö. Við höfum verið að setja upp ljós og passa strákana þá Svein Hjört og Jóhannes Erni í dag. Þeir gista hjá okkur í nótt. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kappparnir eru ekki yfir nótt með mömmu og pabba.Við höfum átt hér glaða stund með þessum fjörugu piltum.
Labels:
Ferðalög,
Fjölskylda,
Hässleholm
mánudagur, 26. desember 2011
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
