Ég las bók John Bolton þjóðaröryggisráðgjafa Trumps forseta. Hann starfaði 18 mánuði í þessu starfi og dreif sig í að segja starfi sínu lausu þegar hann taldi að Trump ætlaði að losa sig við hann. Hann á það allt skriflegt, en þá greinir á um hvort hann hafi sagt upp eða hvort hann hafi verið rekinn. Bolton var varaður við að hann mætti alls ekki skyggja á forsetann. Það væri ávísun á brottrekstur. Bókin fjallar á hlutlægan hátt um Trump og ljóst að Bolton rekur mörg mál sem hafa verið í fjölmiðlum á hlutlægan hátt. Eigi að síður liggur alltaf undir þessi undirtón að menn eru reknir hægri og vinstri. Nú styttist í forsetakosningarnar og ljóst að Trump virðist forðast beinar rökræður við Joe Biden. Hann fer þó víða um með uppslætti sína og fjölmiðlar endursegja það sem hann segir. Í rauninni er aðeins það eftir að bíða þess að talið verði upp úr kjörkössum í nóvember. Það virðist með öllu óljóst hvort hann hafi vinninginn eða ekki. Viðbót í febrúar 2021.Við vitum núna hvernig forsetakosningarnar í USA fóru. Joe Biden vann Trump. Trump stóð fyrir árás á þinghúsið sem kostaði 6 mannslíf. Hvarf á braut frá Wasington og sagðist koma aftur að 4 árum liðnum. Þannig fór sú saga. Nú er það spurningin hvort hann sé kominn í varanlegt skjól eða áfram verði sótt að honum í gegnum dómstóla.
þriðjudagur, 20. október 2020
sunnudagur, 6. september 2020
Sælgætisverksmiður í Hvömmunum í Kópavogi
Það sem margir ekki vita um Hvammana í Kópavogi, þetta jaðarsvæði á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, er að þar voru starfandi amk þrjár sælgætisverksmiðjur. Á góðum degi gat maður farið og keypt sér afganga til að gæða sér á. Ég var minntur á þetta í dag þegar ég kom við í einni af þessum verksmiðjum sem enn er starfandi, að vísu núna í Reyjavík. Elsta verksmiðjan var inn við sandgrifjur í Víbró húsinu, þar sem nú er Dalvegur. Hét hún Drift lakkrísgerð. Þá var það lakkrísgerðin á Hlíðarvegi, Kólus, sem nú er staðsett í Reykjavík. Þriðja verksmiðjan var í Reynihvammi og hét Alladín og framleiddi konfekt. Það var hann Þorvarður Áki Eiríksson sem var konfektgerðarmaðurinn. Það best ég veit er starfandi ein sælgætisverksmiðja í bænum í dag, sjálf Freyja. Ég er búinn að vera í nostalgíu stuði undanfarna daga og fór því í Kólus í dag og spurði um afganga. Þar var mér sagt í spjalli að Þorvarður Áki hefði aðstoðað Kólus við að þróa leiðir til þess að bræða saman súkklaði og lakkrís þegar slíkar vörur komu á markað. Þannig að sælgætisgerðamennirnir í Hvömmunum hafa haft með sér ákveðið samstarf. Annað er að sumir þessara framleiðenda voru menntaðir í Kaupmannahöfn í "konfekturgerð." Er ekki ráð fyrir okkur Kópavogsbúa að stuðla að því að sælgætisframleiðsla verði að nýju hafin til vegs og virðingar í bænum og Kópavogur verði að nýju sælgætisbær Íslands með stóru S - i. Eftir samningu þessa pistils var höfundi bent á að auki hafi verið brjóstsykurgerð í Víðihvammi. Alls fjórar verksmiðjur.
föstudagur, 28. ágúst 2020
Mister, mister,
Mister! mister! mister! Stop! sagði flugfreyjan í júgóslavnesku flugvélinni þegar Þorgeir stóð upp og ætlaði að æða út úr flugvélinni á Kastrup um opna afturhurðina. Vélin var biluð og beðið eftir varahlut frá Hamborg. Við nokkir Íslendingar höfðum setið hálfan daginn í vélinni, án nokkurra skýringa eða hressingar. Þorgeir var búinn að fá nóg og ætlaði að taka til sinna ráða. Þessi minning kom upp í hugann í dag þegar ég var að velta þessu COVID ástandi fyrir mér. Auðvitað langar okkur öll að taka til okkar ráða. Við höfum því miður bara engar útgöngudyr í bili eins og Þorgeir forðum daga er hann hreytti út úr sér: Ég tek ekki þátt í svona vitleysu lengur.
