fimmtudagur, 8. maí 2008
Sumarið kom með störrum og próflestri.
Það er komið sumar. Hér í Fossvogsdal er logn, heiðskírt og sól á lofti í dag. Sambýlisfólkið er ýmist að lesa undir próf eða lesa yfir próf. Maður verður að haga sér í samræmi við það. Meira að segja páfagaukurinn hann Hermann verður að láta farið lítið fyrir sér. Spilaði fyrir hann Föðurland mitt eftir tékkneska tónskáldið Smetana. Honum þótti það svo fallegt að hann söng hástöfum undir þar til nemandanum á heimilinu þótti nóg komið. Nú bíður hann í ofvæni eftir því hvort ég spili fyrir hann plötuna að nýju. Kveðja.
þriðjudagur, 6. maí 2008
Það helsta........
Í dag var í fyrsta sinn tekin inn kona sem félagi í Rótarýklúbb Kópavogs. Síðastliðin 47 ár hafa eingöngu verið karlmenn í klúbbnum. Þessi ákvörðun stjórnar er í samræmi við það sem almennt hefur verið að gerast innan hreyfingarinnar á undanförnum árum. Nú annars er frá litlu að segja héðan. Maður er svona rétt að jafna sig á tímamuninum eftir að hafa verið í Kanada. Kveðja.
mánudagur, 5. maí 2008
Heim í heiðardalinn.
Jæja þá er maður kominn til baka í heiðardalinn. Nú er sumarið örugglega komið. Ferðin heim frá Kanada gékk vel. Merkilegt að maður skuli geta tollafgreitt sig hjá bandarískum yfirvöldum á flugvellinum í Montreal. Við hefðum ef til vill átt að bjóða upp á þetta líka hér um árið. Það hefði einfaldað þessar endalausu gegnumlýsingar á hverjum áfangastað. Ég missti af lokatónleikum Skaftanna þann 1. maí síðastliðinn. Það hefði verið gaman að "mússisera" með flotta bandinu og kórnum. Ég held að síðasti mánuður toppi alla aðra mánuði í lífi mínu varðandi tónlistariðkun, upplifun og þekkingaröflun. Pistlar í apríl bera þess glöggt merki og er þó ekki allt talið með s.s. fyrirlestur hjá Jónasi Ingumundarsyni í Rótarý um tónlist. Nú verður pása hvað það varðar allavega fram á haustið nema eitthvað ófyrirséð dúkki upp. Kveðja.
föstudagur, 2. maí 2008
Kveðja frá Montreal
Labels:
Ferðalög,
Kanada,
Kirkja,
Sjávarútvegur
laugardagur, 26. apríl 2008
Austur í Skaftártungu.
Hemra í Skaftártungu. Við skruppum austur í Tungu í dag. Á þessari mynd sést gamla ættaróðalið sem Valdimar Jónsson (1892-1948) afi Sirrýjar átti. Íbúðarhúsið var byggt árið 1930. Fyrir aftan íbúðarhúsið sést að hluta í eldra íbúðarhúsið sem faðir hans Jón Einarsson (1852-1922) hreppstjóri byggði og mun vera elsta bárujárnshúsið sem byggt var austan Mýrdalssands. Það stendur ekki uppi lengur. Næst því er gamalt hlóðaeldhús. Við hlið þess er gamla hlaðan og yst er fjósið. Tók þessa mynd af gamalli mynd sem er í bústað Höllu. Hemran stendur enn þótt lúin sé orðin og kvisturinn hvarf í einu óveðrinu hér um árið. Þessi mynd minnir á þann tíma sem var og vekjur hjá manni pínulitla fortíðarþrá, þótt aldrei hafi maður dvalið þarna. Það er ótvírætt að vora en það var hvasst í Tungunni að þessu sinni. Göggubústaður var í góðu lagi eftir veturinn þar sem hann stendur á bökkum Tungufljóts í Hlíðarlandi.
Sirrý og Halla. Þessi mynd er tekin í stofunni í sumarhúsi Höllu móðursystur Sirrýjar sem stendur í Hemrulandi. Að baki þeim er myndin góða af Hemru.
Austur af Vík. Þessi mynd er tekin upp í kirkjugarðinum í Vík í austurátt og sýnir vel miklu sandströndina. Ágangur hafsins er mikill og sjórinn grefur jafnt og þétt inn í ströndina. Sumir segja að einungis framburður úr Kötlu gömlu geti spornað við vaxandi ágangi hafsins. Kunnugir segja að þegar komi hlaup í Kötlu sem fari niður Mýrdalssand sé flóðaldan allt að 11 metrar að hæð. Þannig að það eru rosaleg náttúruöfl sem leysast úr læðingi þegar hún vaknar og betra að vera þá ekki strandaglópur á Mýrdalssandi.
Reynisdrangar. Þessi mynd er einnig tekin frá kirkjugarðinum af Reynisdröngum. Við höfum reglulega komið við í þessum kirkjugarði síðastliðin 35 ár. Þarna hvíla afi og amma Sirrýjar þau Valdimar Jónsson sem var skólastjóri í Vík og bóndi í Hemru og Sigurveig Guðbrandsdóttir (1898 - 1988). Sigurveigu kynntist ég að sjálfsögðu vel árin frá 1970 er við hittumst fyrst. Eftirminnileg er lýsing hennar á upplifun á Kötlugosinu 1918 þegar hún var útivið og skyndilega varð svarta myrkur. Segir ykkur hana kannski seinna.Kveðja.
fimmtudagur, 24. apríl 2008
Götuóeirðir á Íslandi.
Götuóeirðir á Íslandi dag eftir dag þar sem menn slást við lögregluna. Þarf ekki að staldra við og greina mótmælin betur. Snúast þau enn um hátt eldsneytisverð eða er eitthvað fleira sem liggur að baki? Eins og þetta kemur fyrir í fjölmiðlum er lagt meira upp úr því að lýsa átökunum sjálfum en minna púðri í að greina ástandið.
miðvikudagur, 23. apríl 2008
Ó blessuð vertu sumarsól...
Lilja. Það er við hæfi að fagna sumri með sumarstúlkunni okkar henni Lilju með Svenna afa. Stúlkan tekur gjarnan þátt í söng ef hún heyrir eitthvað sem henni líkar. Ó blessuð vertu sumarsól eftir Inga T. Lárusson var spilað við skírnarathöfn hennar og er lag sem hún kann vel að meta í framhaldinu. Ánnállinn óskar öllum lesendum sínum gleðilegs sumars. Kveðja.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
