Sýnir færslur með efnisorðinu Skaftártunga. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Skaftártunga. Sýna allar færslur
sunnudagur, 11. mars 2018
Skaftfellingamessa
Í dag var haldin Skaftfellingamessa. Kirkjukórar frá Vík og úr Skaftárhreppi komu til Reykjavíkur og tóku þátt í messuhaldi í Breiðholtskirkju í Mjóddinni. Við félagar í Söngfélagi Skaftfellinga í Reykjavík tókum þátt í söng í messunni og síðan vorum við með létta söngsyrpu í kaffisamsæti. Að austan komu um 30 manna hópur til þess að eiga þessa stund með okkur. Þetta er þrettánda árið sem Skaftfellingamessa er haldinn. Upphafsmaður hennar er sr. Gísli Jónasson en hann var áður prestur í Vík í Mýrdal. Gaman að minnast þess að pabbi tók þátt í þessu messuhaldi í nokkur, ár en Skaftfellingamessan var fyrst haldin árið 2006 síðasta árið sem hann var sóknarprestur að Ásum í Skaftártungu. Svona stund nærir sálina og gleður, endurvekur gömul kynni við fólk fyrir austan. Fyrir okkur söngfélaganna er ljúft að eiga þess kost að skemmta fólki með söng og er góður ávöxtur vetrarstarfsins nú þegar senn hallar vetri og vorar.
fimmtudagur, 18. febrúar 2016
Fyrirlestur um Skaftárhlaup
Fór á fyrirlestur hjá FÍ um Skaftárhlaup og áhrif þeirra á gróðurfar í Skaftárhreppi Mjög fróðlegur fyrirlestur um þá gríðarlegu krafta sem felast í þessum reglubundnu hlaupum. Áhrif á gróðurinn eru að sjálfsögðu mikil og vandséð hvernig tjón á gróðri verður bætt. Fyrirsjáanlegt er að loftmengun í Skaftártungu munu aukast á næstu árum, þó ekki nema vegna síðasta hlaups sem var stærsta hlaup sem mælingar ná yfir. Erindi fluttu Tómas Jóhannesson eðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands og Sveinn Runólfsson frá Landgræðslu Íslands. Það sem situr sérstaklega í manni eftir þennan fyrirlestur eru lýsingar af þeim hamförum sem hafa átt sér stað eftir gos í Kötlu og Öræfajökli. Í einu Kötlugosi á fyrri hluta 18. aldar nánar tiltekið 1721 komu heilu jöklarnir niður á sandinn t.d. Höfðabrekkujökull sem var þar í 80 ár. Að ég tali nú ekki um þegar gaus í Öræfajökli árið 1362 og jökulhettan kom í heilu lagi niður á láglendi. Þetta er eitt mannskæðasta gos á Íslandi og heilu byggðarlögin sem fóru í eyði.
Labels:
Náttúra,
Skaftártunga,
Vatnajökull
sunnudagur, 21. júní 2015
Meðallandsganga 2015
Í gær laugardaginn 20. júní 2015 gékk ég frá Botnum í Meðallandi í átt að Flótum í sömu sveit ásamt göngufélögum í gönguhópnum Skálm.. Leiðin liggur meðfram hraunjaðri Skaftáreldahrauns og um ægifagurt vatnasvæði Mávavatna og svo Eldvatns. Þetta er ganga á jafnsléttu alls um 16 km löng og tók okkur um fimm tíma að ljúka göngunni. Víðátta er gríðarleg í Meðallandi og í góðri birtu er mikil fjallasýn. Tigarlegast í góðri veðri er tveggja jökla sýni, þegar sér til Mýrdaljökuls í vestri og Öræfajökuls í austri. Gróður er mikill á svæðinu en þarna var áður mikið sandfok.
Labels:
Ferðalög,
Náttúra,
Skaftártunga,
Vatnajökull
sunnudagur, 14. júní 2015
Rafstöðvarvandræði
![]() |
| Við Valdimar að eiga við rafstöðina |
Fyrir hádegi á laugardaginn fórum við Valdimar austur á Klaustur í leit að kunnáttumönnum. Fyrst fórum við á bensínsöluna. Þeir höfðu engin ráð en bentu okkur á bifreiðaverkstæðið væri opið. Við fórum þangað en verkstæðisformaðurinn vildi lítið við okkur tala og sagði okkur þó að skipta um bensín það væri örugglega ónýtt. Aftur var farið á bensínsöluna og nú var okkur hjálpað við að skipta um bensín. Við settum á nýtt bensín en ekki fór gripurinn í gang. Á bensínstöðinni hittum við Pál á Fossi á Síðu, sem við áttum skemmtilegt samtal við og ráðlagði hann okkur að tala við Jón á Fossi á Síðu. Hann vissi allt um rafstöðvar. Við fórum þangað en Jón sagðist hættur svona stússi en hjálpaði okkur að athuga kertisbúnaðinn sem reyndist vera í góðu lagi.
Næst var farið á Klaustur og snudduðum við aðeins í kringum verkstæðið í von um góð ráð, en fengum flóknar leiðbeiningar sem ég sagðist ekki getað lesið öðruvísi en að við ættu að hipja okkur með gripinn í bæinn. Verkstæðisformaðurinn kom aftur á staðinn en hann hafði brugðið sér frá. Nú vildi hann enn minna við okkur tala. Nánast skellti á okkur hurðinni. Við náðum þó að segja honum að ráð hans hefði ekki dugað. Þá spurði hann okkur hvort við hefðum hreinsað blöndunginn um leið og hann lokaði á okkur dyrunum.
Nú voru góð ráð dýr. Við snérum við og vorum svolítið daufir í dálkinn. Þegar við keyrðum framhjá Ásum sáum við kvikan mann á ferð og reyndist þetta vera Ármann Daði yngsti sonur Dóra í Ásum. Við ákváðum að taka hann tali. Þar kom að við sögðum honum frá vandræðum okkar. Hann bauðst til að kíkja á vélina en jafnframt bauð hann okkur að láni rafstöð til þess að nota í millitíðinni. Það lifnaði heldur betur yfir okkur feðgum. Ármann Daði kom með okkur í bústaðinn með rafstöð og við gátum klárað verkið og vorum hinir ánægðustu.
Í morgun sunnudag kemur svo Ármann Daði til okkur með okkar rafstöð og var búinn að finna út úr því hvað var þess valdandi að hún hafði ekki startað. Sagði að það hefði tekið sig tíu mínútur! Nú getum við horft til framtíðar með rafstöðina okkar til staðar í sumarhúsinu sem hefur alla tíð verið án rafmagns. Við sáum fyrir okkur bíslagið, rafljósin, helluborðið og rafmagnsofninn sem við ætlum að tengja við þessa rafstöð í framtíðinni.
fimmtudagur, 14. maí 2015
Andi lífsins
Þykkvabæjarklausturskirkja. Langt nafn á lítilli kirkju. Fyrir 25 árum í dag uppstigningardag fórum við Sirrý með pabba og mömmu að skoða kirkjurnar þrjár í Ásasókn. Hinar voru Gröf í Skaftártungu og Langholt í Meðallandi.Pabbi hafði sótt um stöðu sóknarprests. Þetta var fyrsta kirkjan sem við komum að. Þegar við gengum inn í kirkjuna var það fyrsta sem mætti okkur eitt blað á orgelinu með sálmi eftir afa Sirrýjar, Valdimar Jónsson skólastjóra í Vík í Mýrdal og bónda á Hemru. Sálmurinn heitir "Andi lífsins." Þetta hafði mikil áhrif á okkur fjögur. Fyrir einskæra tilviljun vorum við Sirrý stödd við kirkjuna í dag. Veður var að vísu ekki jafn fallegt og daginn góða fyrir 25 árum. En almættið var heldur ekki að munstra nýjan liðsmann í sveitina eins og þá. Hér á eftir má lesa ljóð Valdimars. Lag við þetta ljóð hefur gert Sigurjón Hannesson.
Labels:
Fjölskylda,
Kirkja,
Sálmur,
Skaftártunga,
Strandarkirkjuganga
þriðjudagur, 10. júlí 2012
Hólmsá frá Flögulóni að Strútslaug.
Við gengum fjóra daga með fram Hólmsá
í Vestur – Skaftafellssýslu í ár, félagar í gönguhópnum Skálm. Ýmist var gengið
um áfrétti Álftvers eða Skaftártungu. Ásamt okkur Skálmurum var fríður hópur helstu
náttúrufræðinga landsins með í för. Hann kunni skil á flestu sem fyrir augun
bar. Ónefndur er enn sá er fyrstan skyldi telja sjálfur farastjórinn Vigfús
Gíslason frá Flögu í Skaftártungu. Það fór ekki milli mála að þar fór maður sem
þekkti leiðina eins og lófann á sér. Jafnt fjalla- og dalasýn,
árgil, fossa og dýralíf. Víða mátti sjá helsingja- og grágæsahópa í sárum.
Þetta er fjórða skiptið sem ég fer í óbyggðagöngur með Skálmurum. Mitt helsta vandamál fram til þessa hefur verið að bitmýsvargurinn. Hann hefur lagst á mig og dregið úr mér kraft vegna sterkra ofnæmisviðbragða við þessum kvikindum sem kalla á slævandi ónæmislyf. Nú brá svo við að ég slapp alveg við bit.
Það var gengið um 10 til 18 km á dag og gist í tjöldum þrjár nætur. Björgunarsveit Skaftártungu trússaði í ferðinni og tókst það með ágætum. Veðrið lék við okkur allan tímann og ekki kom dropi úr lofti.
Þetta er fjórða skiptið sem ég fer í óbyggðagöngur með Skálmurum. Mitt helsta vandamál fram til þessa hefur verið að bitmýsvargurinn. Hann hefur lagst á mig og dregið úr mér kraft vegna sterkra ofnæmisviðbragða við þessum kvikindum sem kalla á slævandi ónæmislyf. Nú brá svo við að ég slapp alveg við bit.
Það var gengið um 10 til 18 km á dag og gist í tjöldum þrjár nætur. Björgunarsveit Skaftártungu trússaði í ferðinni og tókst það með ágætum. Veðrið lék við okkur allan tímann og ekki kom dropi úr lofti.
Fyrsta daginn var gengið þaðan
sem Öldufellsleið byrjar. Farið var meðfram Hrífunesheiði á Atlaeyjarmelum norður
fyrir Atley og þar farið á gúmmíbáti austur yfir Hólmsá og áð fyrstu nóttina í
Villingaskógum. Næsta dag var gengið að Hólmsárfossi áfram upp með ánni að
Tjaldgili þar sem við gistum alls rúmlega 17 km. Þriðja daginn var gengið framhjá
Axlarfossi. Brytalækir voru skoðaðir og gengið að Svartafellstanga. Fjórða daginn var svo
gengið í Rauðbotn meðfram Hómsárlóni og stoppað í Strútslaug þar sem hægt var
að skola af sér ferðarykið. Þá var gengið vestur fyrir fjallið Strút. Þangað
sóttu björgunarsveitarmenn í Skaftártungu og Álftaveri okkur og skiluðu okkur
aftur til byggða. Ferðalaginu lauk svo með sameiginlegri máltíð í Tunguseli á
sunnudagskvöldinu. Þetta var í einu orði frábær ferð.
sunnudagur, 14. ágúst 2011
Góð helgi að baki.
Við Sirrý fórum austur í Skaftártungu um helgina ásamt Lilju, dóttur Valdimars, Valdimar og Sigrúnu Huld. Við keyrðum austur um Þjórsárdal og fórum inn á Landmannaafrétt hjá Hrauneyjarfossvirkjun. Þangað er olíuborinn vegur og aðeins 26 km í Landmannalaugar á malarslóða. Í Landmannalaugum heimsóttum við Geimskutluna og Olgeir eiganda hennar. Keyptum okkur kaffi og klatta og nutum stundarinnar. Mikið var þarna af erlendum gestum eins og oftast áður á þessum tíma. Mikið moldryk var á afréttinum sem náði niður í byggðir. Síðan lá leiðin í Skaftártungu en þangað eru 56 km á malarslóða. Komin í Tunguna var grillað og Halla móðursystir Sirrýjar og Örn maður hennar komu í heimsókn. Í dag heimsóttu vinir okkar Ella og Júlli okkur ásamt Kristjáni syni þeirra og barnabörnunum Elinóru og Reginu sem eru lifandi eftirmyndir mæðra sinna. Síðdegis var haldið af stað í bæinn eftir frábæra helgarferð.
sunnudagur, 1. ágúst 2010
Heimsókn að Hnausum
Halla og Sirrý hlýða á Vilhjálm á Hausum Við vorum í Skaftártungu þessa Verslunarmannahelgi eins og svo oft áður. Gestur okkar í gær var Halla Valdimarsdóttir móðursystir Sirrýjar. Við erum örugglega búin að dvelja þarna þessa helgi síðan Z var skrifuð í orðinu verslun. Allavega mun lengur en hætt var að nota þennan staf sem auðkennisstaf fyrir bifreiðar í sýslunni. Að þessu sinni heimsóttum við hann Vilhjálm Eyjólfsson á Hnausum, fjölfróðan um sögu sveitarinnar og þá sérstaklega Meðallandið. Okkur langaði að hitta þennan nafntogaða höfðinga og sjálfsmenntaða fræðimann og koma að Hnausum en þar er að finna fjörgamalt bæjarstæði. Vilhjálmur er ef til vill flestum miðaldra og eldri lesendum Mbl kunnur sem fréttarritari blaðsins í sveitinni um árabil. Á myndinni hér að ofan má sjá þær frænkur í betri stofu eldri bæjarins á Hnausum hlýða á Vilhjálm segja frá sögu staðarins. Þarna dvaldi m.a. málfræðingurinn Rasmus Christian Rask er hann ferðaðist um Meðalland. Eitt af því sem við ræddum var af hverju svo mörg býli í Meðallandi bera nöfn með fleirtöluendingunni "ar" t.d. Botnar, Feðgar, Hnausar og Lyngar. Annað sem okkur þótti merkilegt í frásögn Vilhjálms var að Meðallandið hafi verið byggt fyrir a.m.k. 2400 árum og ýmsar menjar styrki þá skoðun hans. Þá var greiðfært til Íslands og góð lending í Skaftárósi og Meðalland í alfaraleið af hafi, þótt síðar yrði þetta eitt einangraðasta svæðið á landinu. Hann tilgreindi Heklugos sem nánast eyddi Skotlandi fyrir 2400 árum og það hefði vafalaust breytt aðstæðum í sveitinni.
Elsta sjúkrastofa á landinu? Yfir fjósinu á Hnausum er baðstofuloft og sagði Vilhjálmur okkur sögu þess. Þar dvöldu oft sjúklingar og deyjandi fólk af svæðinu. Stundum var skilið að með dulu sá hluti baðstofuloftsins þar sem fólk lá banaleguna. Sá síðasti sem lést á baðstofuloftinu var gamall maður sem hét Ólafur og var það árið 1943. Í köldum veðrum flutti heimilisfólk á Hnausum sig yfir á þetta baðstofuloft vegna þess hve þar var hlýrra. Þá sagði hann okkur af reimleikum í einu horni baðstofuloftsins en þar dvelur einhver sem á erfitt með að hverfa á braut.
Skipstjóraborðið Víða getur að líta muni úr skipum sem strönduðu í Meðallandsfjöru. Þetta borð sem Vilhjálmur kallaði skipstjóraborðið er úr skipi sem endaði upp í fjöru. Borðið er rúnnað á borðbrúnum til þess að varna skaða í veltingi. Ýmsa forvitnilega muni úr skipum sýndi Vilhjálmur okkur. Eftir 1935 fækkaði til muna skipum sem strönduðu í Meðallandsfjöru, líklega vegna þess að þá voru komnir til sögunnar dýptarmælar. Skipsströnd reyndust oft mikil búbót fyrir fólk á þessu svæði, svo sem þekkt er úr frásögnum.
Gamla stofan Að lokum er hér mynd af gömlu stofunni að Hnausum en hún var gerð upp í upprunalegt horf fyrir nokkrum árum síðan.
sunnudagur, 20. júní 2010
Úr Skaftárdal í Skál og Skálarheiði.
Gönguhópurinn 2010Þann 18. júní var komið að fyrri dagleið Skálmhópsins. Göngu frá Skaftárdal að Skál meðfram Skaftá í hlíðum Skálarheiði. Endastaðurinn var bærinn Skál, þar sem við höfðum góða aðstöðu á bænum. Leiðin er seinfarin og æði erfið á köflum. Sérstaklega er hún seinfarin þegar komið er að kjarrsvæði ofan Skaftár í snarbröttum hlíðum heiðarinnar. Veðrið var og gott til göngu og mikill hugur í göngufélögum. Leiðsögumaður okkar var Eiríkur Jónsson frá Skaftárdal, mikill göngugarpur. Við áðum við Á, það eru bæjartóftir eyðibýlis ofarlega í bröttum hlíðum en bærinn fór í eyði 1935.
Lambahagagil Áhugaverðir og fallegir fossar og skorningar urðu á leið okkar, Lambhagagil, Drífandi. Útsýni var yfir Skaftáreldahraun yfir í Svínadal og vel sást í Hemru - Stakk. Eldklerkurinn var ofarlega í hugum fólks og saga svæðisins. Með jöfnu millibili las félagi Gísli ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur til þess að næra hugann í bland við náttúrufegurðina. Alls vorum við níu tíma á leiðinni og var það nokkuð nærri þeirri áætlun sem við fylgdum. GPS mælirinn hann Péturs upplýsti okkur um að leiðin væri 16,2 km.
Rauðhóll Seinni daginn þann 19. júní var gengið upp á Skálarheiði sem er í allt að 500 metra hæð. Upp á heiðinni var fylgt gömlum slóða lengst af. Síðan var tekinn góður hringur um heiðinna og horft í höfðuðáttirnar þar sem gat að líta mörg frægustu fjöll Íslands: Mýrdalsjökul, Sveinstind, Vatnajökul og Pálstind og svo mætti áfram telja.
Á göngu. Eftirminnilegur er brennisteinsfnykurinn sem var fyrir vitum okkar á leiðinni upp Skálarheiði. Vísbending um að Skaftárhlaup væri í vændum, þótt ekki hefðum við gert okkur grein fyrir því þá. Í dag berast fréttir af því að hlaup í Skaftá sé hafið. Gangan var alls 15 km löng og mun þægilegri en fyrri daginn. Veður til göngu var hið besta og útsýni til allra átta. Við þetta tækifæri varð til þetta vísukorn: Hreykja sér á hæsta tindi, glæstir Skálmarar. Horfa vítt til allra átta, austur, vestur, norður og suður. Drekka í sig fegurð fjalla en í dalverpi bíður kjötsúpan ljúfa, hvílíkur friður. Þannig kvað lúinn hugur vísukorn við það eitt að teyga í sig fjallaloftið. Í lok ferðar var fararstjóra, skipuleggjendum og súpukokkum þökkuð sérstaklega þjónustan við Skálmara. Um kvöldið var sameiginleg kvöldvaka þar sem kjötsúpunni voru gerð góð skil. Kristinn Kjartansson lék á harmóníku, tekið var lagið og meira að segja nokkur létt dansspor stigin og svo sagði hann Broddi okkur sögur úr sveitinni bæði nýjar og gamlar. Þar með var þessari ferð Skálmara um Út - Síðu lokið og langþráðu takmarki. Ferðafélögum þakka ég samfylgdina og félagsskapinn.Myndir: Pétur H.R. Sigurðsson.
Labels:
Ferðalög,
Ganga,
Kórinn,
Skaftártunga
laugardagur, 1. maí 2010
Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga

Á morgun sunnudag 2. maí verða haldnir í Seltjarnarneskirkju vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga. Allir eru velkomnir á þessa tónleika. Þetta er endapunktur vetrarstarfsins í kórnum. Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson. Með kórnum leika á hljóðfæri Vignir Þór Stefánsson á píanó, Jón Rafnsson á bassa og Matthías Stefánsson á fiðlu. Einsöng með syngur Jóna G. Kolbrúnardóttir. Á dagskránni er fjölbreytileg lög þar á meðal Vorlauf eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, afskapalega fallegt lag.
fimmtudagur, 15. apríl 2010
Hver atburðurinn rekur annan.
Þorvaldseyri.Eyjafjallajökull ákvað að hætta þessum túristaspýjum sem við höfum verið að mynda undanfarna daga og sýna okkur alvöru gos. Eyðilegging þjóðvegarins er töluverð og eldfjallið hefur dreift ösku sinni um okkar fallegu sveitir Skaftártungu, Álftaver og Meðalland. Askan hefur líka gert það að verki að stór hluti flugumferðar í Norður - Evrópu liggur niðri vegna hættu af ösku frá gosinu í háloftunum. Nú í vikunni kom svo skýrslan um bankahrunið sem rannsóknarnefnd Alþingis tók saman. Ég á aðeins þrjú orð um hana/þær þetta eru níu hefti: Þetta er skelfilegt. Jæja læt þetta duga í bili. Kveðja. Mynd:Óskar Sigurðsson.
Labels:
Fjármál,
Náttúra,
Skaftártunga
laugardagur, 13. mars 2010
Austurferð
Loksins gafst tækifæri til að skjótast austur í Skaftártungu. Lagt var af stað úr bænum strax eftir vinnu klukkan sex í gær og vorum við komin austur rétt fyrir níu. Kvöldhimininn var stjörnubjartur og við vörðum dágóðri stund við stjörnuskoðun og reyndum að ráða í heiti stjarnanna. Því miður valda borgarljósin því að maður missir oft af stjörnubjörtum kvöldum. Setið var fram eftir með rauðvínsdreitil og franska osta og spjallað um glaðar og góðar stundir. Í dag var svo skotist yfir í bústað Höllu, Kambsgil og borðaður þar hádegisverður. Við lögðum af stað áleiðis í bæinn um tvö leytið með viðkomu í hér og þar. Yndislegur dagur og góð tilbreyting að skjótast út fyrir borgarmörkin í þessu sannkallaða vorveðri. Hitastigið í Skaftártungu var um níu gráður í plús um hádegisbilið, stilla og hið fallegasta veður. Kveðja.
laugardagur, 20. september 2008
Í góðan bíltúr
Reynisdrangar.Helgi vinur segir að ég sé eini maðurinn sem hann þekki sem nenni að fara í 500 km bíltúra. Hann er eini maðurinn sem ég þekki sem nennir að fara 6000 km vikuferð í sumarbústað og millilenda í Amsterdam. Í þessum dúr var spjall okkar þar sem ég var á miðjum Mýrdalssandi og hann að renna í hlað í Commesssey í Burgundy. Jæja við skruppum þrjú í ferð austur í Skaftártungu í dag. Stoppuðum aðeins í Vík og tókum eina af dröngunum því til staðfestingar.
Sumarhúsið. Það er engin lygi að veðrið getur verið ansi gott austan sands þótt það sé ekkert til að hrópa húrra fyrir vestan sands. Haustlitirnir eru áberandi. Við áttum þarna góða stund í fínu veðri og svo var haldið af stað heim á leið enda spáin ekkert sérstök.
Í Landeyjum. Svona var nú skýjafarið á leiðinni til Reykjavíkur í dag. Hér má sjá sólina brjótast eitt augnablik í gegnum skýjaþykknið. Fremur kuldalegt svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Kveðja.
sunnudagur, 8. júní 2008
Brimströndin
Amma, pabbi og Svenni.Við fórum í dag austur í Tungu og ætluðum að gista í nótt, en veðrið var svo leiðinlegt að við fórum aftur heim. Það var ekki hundi út sigandi. Þetta er í fyrsta skipti sem Sveinn Hjörtur yngri kemur í kofann og er því fjórði ættliðurinn sem heimsækir Göggukot. Eigi að síður áttum við þarna góðan dag með þeim Hirti Friðrik og Sveini Hirti jr.
Brimströndin. Það er ekki alltaf sól og sumar á Íslandi. Gott dæmi um það er þessi mynd af Reynisdröngum. Brimaldan var kröftug þennan dag og betra að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Kveðja.
Labels:
Fjölskylda,
Skaftártunga,
Veður
laugardagur, 26. apríl 2008
Austur í Skaftártungu.
Hemra í Skaftártungu. Við skruppum austur í Tungu í dag. Á þessari mynd sést gamla ættaróðalið sem Valdimar Jónsson (1892-1948) afi Sirrýjar átti. Íbúðarhúsið var byggt árið 1930. Fyrir aftan íbúðarhúsið sést að hluta í eldra íbúðarhúsið sem faðir hans Jón Einarsson (1852-1922) hreppstjóri byggði og mun vera elsta bárujárnshúsið sem byggt var austan Mýrdalssands. Það stendur ekki uppi lengur. Næst því er gamalt hlóðaeldhús. Við hlið þess er gamla hlaðan og yst er fjósið. Tók þessa mynd af gamalli mynd sem er í bústað Höllu. Hemran stendur enn þótt lúin sé orðin og kvisturinn hvarf í einu óveðrinu hér um árið. Þessi mynd minnir á þann tíma sem var og vekjur hjá manni pínulitla fortíðarþrá, þótt aldrei hafi maður dvalið þarna. Það er ótvírætt að vora en það var hvasst í Tungunni að þessu sinni. Göggubústaður var í góðu lagi eftir veturinn þar sem hann stendur á bökkum Tungufljóts í Hlíðarlandi.
Sirrý og Halla. Þessi mynd er tekin í stofunni í sumarhúsi Höllu móðursystur Sirrýjar sem stendur í Hemrulandi. Að baki þeim er myndin góða af Hemru.
Austur af Vík. Þessi mynd er tekin upp í kirkjugarðinum í Vík í austurátt og sýnir vel miklu sandströndina. Ágangur hafsins er mikill og sjórinn grefur jafnt og þétt inn í ströndina. Sumir segja að einungis framburður úr Kötlu gömlu geti spornað við vaxandi ágangi hafsins. Kunnugir segja að þegar komi hlaup í Kötlu sem fari niður Mýrdalssand sé flóðaldan allt að 11 metrar að hæð. Þannig að það eru rosaleg náttúruöfl sem leysast úr læðingi þegar hún vaknar og betra að vera þá ekki strandaglópur á Mýrdalssandi.
Reynisdrangar. Þessi mynd er einnig tekin frá kirkjugarðinum af Reynisdröngum. Við höfum reglulega komið við í þessum kirkjugarði síðastliðin 35 ár. Þarna hvíla afi og amma Sirrýjar þau Valdimar Jónsson sem var skólastjóri í Vík og bóndi í Hemru og Sigurveig Guðbrandsdóttir (1898 - 1988). Sigurveigu kynntist ég að sjálfsögðu vel árin frá 1970 er við hittumst fyrst. Eftirminnileg er lýsing hennar á upplifun á Kötlugosinu 1918 þegar hún var útivið og skyndilega varð svarta myrkur. Segir ykkur hana kannski seinna.Kveðja.
sunnudagur, 9. mars 2008
Skaftfellingamessa.
Söngfélag Skaftfellinga. Seinni hluti ,,messunnar" var í safnaðarsal Breiðholtskirkju þegar söngfélag Skaftfellinga söng nokkur lög í kaffisamsæti fyrir kirkjugesti. Það voru alls sex prestar sem tóku þátt í þessari messu. Í kirkjukórnum voru örugglega sjötíu manns. Sr. Gísli prófastur taldi að um 250 manns hafi tekið þátt í messunni að þessu sinni að kórunum meðtöldum. Þetta er í þriðja sinn sem kórinn tekur þátt í Skaftfellingamessunni. Mikil fjöldi var komin austan úr Vík og frá Klaustri. Einnig var margt manna úr Reykjavík. Þessi hátíðardagur virðist vera að festa sig í sessi og er það vel til fundið.
Með foreldrunum. Sr.Hjörtur tók þátt í guðþjónustunni að þessu sinni og frú Unnur var að sjálfsögðu mætt með honum. Þarna var mikill fjöldi kunningja og samferðarfólks saman komið og gefandi að taka þátt í þessari hátíð. Það er mikilvægt fyrir kórinn að fá þetta tækifæri að koma fram og hann þarf fleiri tækifæri til að láta í sér heyra. Kveðja.
sunnudagur, 24. febrúar 2008
Austurferð á góu.
Hekla í hvítum feldi. Við tókum þá ákvörðun við morgunvarðarborðið að fara austur í Skaftártungu og líta eftir litla Göggubústaðnum. Lögðum af stað kl. 11.00 og vorum komin í Skaftártungu kl. 15.00. Útsýni var að venju ægifagurt. Hér má sjá Heklu í vetarbúningi. Við þreytumst aldrei að keyra þessa fallegu leið.
Hestastóð í vetrarbúningi. Fátt lýsir betur vetrarstemmningu en hross í þéttum hópi í haga. Einn æskudraumurinn var sá að eiga hesta, þótt ekki hafi hann orðið að veruleika enn. Hann er tígulegur þarfasti þjónninn þar sem hann stendur af sér vetrarveðrin í íslenskum frosthaga.
Reynisdrangar. Þeir eru myndrænt kennileiti á austurleið þegar komið er til Víkur í Mýrdal. Rúntuðum um staðinn sem heimasætan hefur orðið sérstakt dálæti á. Nú síðan snæddum við þjóðvegahamborgara í Víkurskála framreidda af pólskum stúlkum sem töluðu hrafl í ensku og íslensku. Eftirtektarvert var hversu mikið var af erlendum túristum í Víkurskála.
Sigrún og Sirrý. Við stoppuðum í rétt um klukkutíma í Tungunni. Nógu lengi til að hita upp bústaðinn og fá okkur kaffisopa. Kyrrðin í sveitinni var mikil, logn og blíða. Hitinn sveiflaðist um 10°C á leiðinni austur. Náðum smá stund til að hlaða batteríin áður en haldið var til baka úr Skaftártungu. Hér má sjá þær mæðgur á pallinum fyrir framan Göggubústað.
Við. Sigrún tók þessa mynd af okkur áður en haldið var til baka heim á leið. Við gátum keyrt bílinn að bakkaflötinni sem bústaðurinn stendur á og þurftum aðeins að ganga síðasta spölin. Það var minni snjór en við höfðum gert okkur í hugarlund. Við höfum nú komið í þennan bústað reglulega síðustu 25 ár. Það er mjög gaman að renna í gegnum gestabókina og rifja upp gamlar minningar frá þessum stað.
fimmtudagur, 23. ágúst 2007
Vísitasía biskups í Grafarkirkju.
Biskup í predikunarstól. Fór sem bílstjóri og fylgdarmaður sr. Hjartar og Unnar í Grafarkirkju í Skaftártungu til þess að taka þátt í Vísitasíumessu biskups Íslands í kirkjunni. Tilgangurinn var að hitta fyrrum sóknarbörn og kirkjustarfsmenn í sókn sr. Hjartar, en hann þjónaði í þessari kirkju frá 1990 til 1996. Hér má sjá biskup í predikunarstól Grafarkirkju og til hægri er altaristaflan. Það fer vel að hafa hana á myndinni því hann lagði m.a. út af henni. Biskup gat þess m.a. um hversu vel kirkjunni og kirkjugarðinum væri við haldið og velti upp ýmsum spurningum varðandi trúarlíf kristinna manna.
Biskup, prófastur, sóknarprestur og sóknarnefndin. Tók þessa mynd af embættismönnum kirkjunnar eftir messuna þar sem þeir stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. Sóknarnefndarformanninum Halldóri í Ytri Ásum er sýnilega létt eftir góða athöfn í kirkjunni. Eftir messu var boðið upp á kirkjukaffi í félagsheimili Skaftártungumanna, Tunguseli. Það var gaman að hitta fólk í sókninni sem maður hafði ekki séð í mörg ár.
Sóknarnefndarformaðurinn og sr. Hjörtur. Hér stinga þeir saman nefjum félagarnir sr. Hjörtur og Halldór stórbóndi og sóknarnefndar-formaður. Það gékk erfiðlega að fá þá til þess að stilla sér upp fyrir hefðbundna myndatöku, þannig að þessi mynd verður að duga. Það er alltaf sami galsinn í þessum þjónum kirkjunnar þegar þeir hittast. Samband sem myndast milli manna sem unnið hafa mikið og vel saman. Þar að auki góðir grannar á árum áður.
Flaggað í fulla. Gaman að sjá að flaggstöngin góða sem þær systur Halla og Sigrún, dætur Valdimars í Hemru gáfu kirkjunni í minningu Jóns Einarssonar hreppstjóra, dannebrogmanns og afa þeirra kemur að góðum notum. Sól og mjög gott veður í Tungunni þennan dag. Veðrið á leiðinni var hinsvegar fremur leiðinlegt rok og rigning.
Foreldrarnir. Áður en haldið var til messu var komið við í Göggubústað sem er nálægt kirkjunni. Þar var helt upp á könnuna og snæddur hádegisverður áður en haldið var til messu. Allt var í stakasta lagi í bústaðnum.
Labels:
Ferðalög,
Fjölskylda,
Kirkja,
Skaftártunga
miðvikudagur, 8. ágúst 2007
Fréttir úr fríinu.
LakagígarSannast sagna er lítið að frétta þessa dagana. Nú fer að ljúka sumarfríi okkar. Þetta er búið að vera skemmtilegt sumar og viðburðarríkt. Við höfum verið þó nokkuð í kringum barnabörnin okkar og haft af því mikið yndi. Ferðir hafa verið þó nokkrar og má lesa frekar um þær í eldra bloggi. Nú eru þeir Sveinn Hjörtur og Jóhannes Ernir farnir til Svíþjóðar. Sveinn er orðinn það þroskaður að ég held hann sé búinn að stimpla okkur varanlega inn enda er kappinn kominn vel á þriðja árið. Jóhannes Ernir lærði að segja "afi" í sumar og vinka okkur bless. Hér kom blómastúlkan okkar hún Lilja ásamt foreldrum í gær. Hún dafnar hratt þessa dagana og er farin að brosa sínu blíðasta þegar hún er í stuði. Við fórum um síðustu helgi austur í Skaftártungu og vorum þar yfir verslunarmannahelgina. Tímann nýttum við til þess m.a. að fara upp að Laka, en þangað hefur Sirrý aldrei komið áður en ég kom þangað síðast fyrir um tuttugu árum. Við fengum frábært veður og útsýnið yfir gosstöðvarnar var tilkomumikið. Nú við buðum Höllu og Erni í holusteik að hætti Björns Dagbjartssonar þ.e. grafin hola, kveikt í kolum og innpakkað læri látið malla í holunni. Fórum svo í bæinn eftir helgina. Þórunn systir og hennar fólk er komið frá Gautaborg þar sem þau sóttu tónleika Rolling Stones. Það var víst mjög gaman.
Labels:
Ferðalög,
Fjölskylda,
Skaftártunga
sunnudagur, 1. júlí 2007
Borgarnes, Skaftártunga og Fjallabak nyrðra.
Jóhannnes Ernir og amma Sirrý. Við skelltum okkur upp í Borgarnes í dag til þess að heimsækja Svein Hjört og Jóhannes Erni. Okkur var boðið í kaffi til afa og ömmu Ingibjargar. Veðrið var hreint frábært þetta í kringum 20°C. Þeir höfðu mikla ánægju að hitta hvor annan sr. Hjörtur og Guðmundur. Margt og mikið skeggrætt.
Hjá gróðurhúsinu. Við skoðuðum blómin hennar Ingibjargar eldri í gróðurhúsinu og garðinum. Ótrúleg litaskrúð og fallegur garður. Það var mikið að gera há Sveini Hirti við að vökva blóm langömmu.
Svana - eða Álftavatn. Ég er ekki klár á nafninu. Þetta vatn er á fjallabaksleið nyrðri. Við skelltum okkur norður fyrir eftir stutta heimsókn í Skaftártunguna í gær til þess að ræða við Val bónda um leigumál og fleira því tengt. Fegurðin á þessari leið í svona veðri er ólýsanleg í orðum.
Skaftártunga. Hér er af hæsta tindi sem ég man ekki hvað heitir horft yfir Skaftártunguafrétt og víðar um Suðurland.
Við Höllubústað. Hér eru Örn og Halla, Gunnhildur, Sirrý og Björn í forgrunni. Við litum við hjá Höllu og Erni áður en við lögðum á fjallabakið.
Reynisdrangar. Þetta er falleg sýn. Kunnugir þekkja áhuga minn á þessu myndefni. Kveðja.
Labels:
Ferðalög,
Fjölskylda,
Skaftártunga
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





