laugardagur, 13. júlí 2013

Söngfélag Skaftfellinga fjörtíu ára.


Ávarp flutt á vorkaffi Skaftfellingafélagsins í Reykjavík þann 5. maí sl. í tilefni 40 ára afmælis Söngfélags Skaftfellinga.

Góðir gestir.
Söngfélag Skaftfellinga er fjörtíu ára í ár. Það er því vel við hæfi að minnast í nokkrum orðum upphafsins og kórstarfsins.
Stofnár kórsins er miðað við fyrstu söngæfingu þann 25. mars 1973.
Starfsemi Söngfélags Skaftfellinga er samofin Skaftfellingafélaginu í Reykjavík. Kórinn hefur alla  tíð notið velvildar og stuðnings þess. Allar götur frá 1980 hefur kórinn haft afnot af  húsakynnum  Skaftfellingafélagsins, Skaftfellingabúð og það stutt við starfsemina með margvíslegum hætti.
 Ekkert félag og enginn kór getur lifað jafn kröftugu lífi nema fyrir það að að starfinu komi fjölmargir félagar sem halda starfseminni gangandi. Það væri of langt mál að telja þá alla upp.
Í átthagafélögum eins og Skaftfellingafélaginu í Reykjavík og Söngfélagi Skaftfellinga fer fram mikilvæg menningarstarfsemi. Þau tengja saman fólkið í gömlu átthögunum við brottflutta sveitunga og ættmenni. Þannig viðhalda þau tengslum og skilningi milli þéttbýlis og dreifbýlis sem sannarlega er mikil þörf á í okkar samfélagi.
Þær fjölmörgu tónleikaferðir sem kórinn hefur farið um Skaftafellssýslur og víðar allt frá stofnun í fjörtíu ár og þær góðu heimsóknir sem við höfum fengið þaðan er skýrt dæmi um þá eflingu menningarlífs sem félögin stuðla að.
Félagar í kórnum sem nú eru rúmlega fjörtíu talsins eru langflestir ættaðir úr annarri hvorri sýslunni. Síðan erum við nokkur sem erum ekki Skaftfellingar að langfeðratali en hefur rekið á fjörur þessa félagsskapar og kunnum því vel.
Söngfélagið hefur haft sína eigin stjórn frá 1974. Fyrsti formaður stjórnar var Jón Hilmar Gunnarsson. Núverandi formaður Söngfélagsins er Kolbrún Einarsdóttir.
Kórinn hefur frá upphafi haft fjóra söngstjóra: Jón Ísleifsson, Þorvald Björnsson, Víolettu Smid og núverandi kórstjóra Friðrik Vigni Stefánsson.
Violetta Smid var gerð að heiðursfélaga í Söngfélagi Skaftfellinga er hún hætti sem kórstjóri eftir aldarfjórðungsstarf. 
Stærsta verkefni kórsins á afmælisárinu var að syngja inn á nýjan disk en upptökum lauk þann fyrsta maí síðastliðinn. Tvívegis áður hefur kórinn gefið út plötu og disk. Þá voru sérstakir afmælistónleikar haldnir í apríl síðastliðinn sem voru vel sóttir og tókust mjög vel.
Fjórir kórfélagar eru stofnaðilar kórsins. Það eru þau Páll Jóhannesson tenór, altarnir  Bjarndís og Valgerður Sumarliðadætur og Einar Brynjólfsson bassi. Margir kórfélagar hafa verið með um áratuga skeið.
Ég vil að lokum óska okkur öllum til hamingju með árin fjörtíu í starfsemi kórsins. Allt er fertugum fært segir máltækið og megi það einnig eiga við um Söngfélag Skaftfellinga.
Þakka ykkur fyrir.



miðvikudagur, 10. júlí 2013

Laxá í Refasveit

Í Refasveit fyrir framan veiðihúsið
Fór með Helga norður í Refasveit um 29. júní til þess að taka þátt í opnun veiðitímabilsins í Laxá í Refasveit. Við fengum fjóra fína laxa á stöngina þennan dag og áttum góðan tíma í þessu fagra umhverfi þennan dag.

Gengið á Lómagnúp


Á Lómagnúpi með Vatnajökul í bakgrunni.


Ég gékk á Lómagnúp þann 4. júlí sl með félögum úr gönghópnum Skálmurum, sem er gönguhópur tengdur Skaftfellingafélaginu í Reykjavík. Lómagnúpur er 688 hátt standberg sem gnæfir yfir suður úr Birninum vestan Núpsvatna á Skeiðarársandi. Vestan við fjallið er bærinn og kirkjustaðurinn Núpsstaður. Þar bjó hinn kunni vatna- og leiðsögumaður Hannes Jónsson. Af honum eru til margar frásagnir og sögur en hann lést árið 1968. Gönguleiðin í þessari ferð á Lómagnúp var þessi: Gengið upp Hvirfildal að austan, upp að vörðunni, þvert yfir og gengið svo inn Núpinn. Gengið nánast inn að næsta fjalli sem er Björninn, þar vestur og yfir Núpsstaðaheiði. Farið niður rétt vestan við bæinn Núpsstað. Allt í allt tók þessi ganga rúma 10 tíma og vegaleiðin var um 20 km. Veður til göngu var gott en þegar leið á kvöldið kom skýjahula yfir svæðið og undir lokin fór að rigna. Fjallasýn og útsýni yfir sandana til beggja átta er ógleymanleg. Þannig segir í kvæðinu Áföngum eftir Jón Helgason:

Vötnin byltast að Brunasandi,
bólgnar þar kvikan gljúp;
landið ber sér á breiðum herðum
bjartan og svalan hjúp;
jötunninn stendur með járnstaf í hendi
jafnan við Lómagnúp, 
kallar hann mig, kallar hann þig...
kuldaleg rödd og djúp.


Það voru þreyttir og ánægðir göngugarpar sem klöngruðust niður bratta hlíðina í ferðalok hjá Núpsstað. Enn einum stóráfanga var náð og ástæða til þess að fagna að allt gékk stóráfalla laust. Kveðja.


















miðvikudagur, 3. apríl 2013

Doktorsvörnin 8. mars 2013

Sirrý útskrifaðist sem doktor í öldrunarfræðum í mars sl. Hún varði doktorsritgerð sína við Heilsuháskólann í Jönköping þann 8. mars 2013. Við vorum rúmlega tuttugu ættingar og vinir sem mættum við vörnina. Hún stóð sig í alla staði vel í tæplega þriggja tíma yfirheyrslu. Um kvöldið var svo haldið veglegt hóf í tilefni þessara tímamóta á veitingastaðnum Guvernören. Annállinn óskar doktornum til hamingju með nafnbótina.

fimmtudagur, 21. febrúar 2013

Sirrý "spíkar"

Þann 15. febrúar á 8 ára afmæli Sveins Hjartar yngri negldi Sirrý doktorsritgerðina sína upp á vegg í skólanum í Jönköping. Lokavörnin fer fram þann 8. mars næstkomandi og verður haldin í skólanum.

sunnudagur, 5. ágúst 2012

Séra Hjörtur Hjartarson


Sr Hjörtur Hjartarson, fyrrverandi sóknarprestur er látinn, 81 árs að aldri.
Hjörtur var fæddur 8. desember 1930 og ólst upp á Ísafirði. Foreldrar hans voru Jensína Sveinsdóttir húsmóðir frá Gillastöðum í Reykhólasveit og Jón Hjörtur Finnbjarnarson prentari á Ísafirði.
Hjörtur lauk sveinsprófi í prentiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík 1954 og hlaut meistararéttindi í iðninni 1972. Hann starfaði við prentiðn framan af starfsævinni og var aðalféhirðir hjá Ferðaskrifstofu ríkisins frá 1976 til 1988.
Þá söðlaði Hjörtur um og hóf nám í guðfræði við HÍ. Hann vígðist til prests að Ásum í Skaftártungu 1990 og einnig þjónaði hann sem prestur í Kópavogi og í Grindavík.
Hjörtur var virkur í félagsmálum í Kópavogi og sat í bæjarstjórn þar frá 1974 til 1978. Hann var félagi í karlakórnum Fóstbræðrum og söng á sínum tíma með Fjórtán fóstbræðrum. Hann var ritstjóri Þjóðmála og Framsýnar, blaðs framsóknarmanna í Kópavogi. Þá ritaði hann greinar í blöð og tímarit um stjórnmál og guðfræðileg málefni.
Eftirlifandi eiginkona Hjartar er Unnur Axelsdóttir. Þau eignuðust fjögur börn, þrettán barnabörn og átta barnabarnabörn. (Mbl.is 28.7.2012)

þriðjudagur, 10. júlí 2012

Hólmsá frá Flögulóni að Strútslaug.

Við gengum fjóra daga með fram Hólmsá í Vestur – Skaftafellssýslu í ár, félagar í gönguhópnum Skálm. Ýmist var gengið um áfrétti Álftvers eða Skaftártungu. Ásamt okkur Skálmurum var fríður hópur helstu náttúrufræðinga landsins með í för. Hann kunni skil á flestu sem fyrir augun bar.  Ónefndur er enn sá er fyrstan skyldi telja sjálfur farastjórinn Vigfús Gíslason frá Flögu í Skaftártungu. Það fór ekki milli mála að þar fór maður sem þekkti leiðina eins og lófann á sér. Jafnt fjalla- og dalasýn, árgil, fossa og dýralíf. Víða mátti sjá helsingja- og grágæsahópa í sárum.

Þetta er fjórða skiptið sem ég fer í óbyggðagöngur með Skálmurum. Mitt helsta vandamál fram til þessa hefur verið að bitmýsvargurinn. Hann hefur lagst á mig og dregið úr mér kraft vegna sterkra ofnæmisviðbragða við þessum kvikindum sem kalla á slævandi ónæmislyf. Nú brá svo við að ég slapp alveg við bit.

Það var gengið um 10 til 18 km á dag og gist í tjöldum þrjár nætur. Björgunarsveit Skaftártungu trússaði í ferðinni og tókst það með ágætum. Veðrið lék við okkur allan tímann og ekki kom dropi úr lofti.   

Fyrsta daginn var gengið þaðan sem Öldufellsleið byrjar. Farið var meðfram Hrífunesheiði á Atlaeyjarmelum norður fyrir Atley og þar farið á gúmmíbáti austur yfir Hólmsá og áð fyrstu nóttina í Villingaskógum. Næsta dag var gengið að Hólmsárfossi áfram upp með ánni að Tjaldgili þar sem við gistum alls rúmlega 17 km. Þriðja daginn var gengið framhjá Axlarfossi. Brytalækir voru skoðaðir og gengið að Svartafellstanga. Fjórða daginn var svo gengið í Rauðbotn meðfram Hómsárlóni og stoppað í Strútslaug þar sem hægt var að skola af sér ferðarykið. Þá var gengið vestur fyrir fjallið Strút. Þangað sóttu björgunarsveitarmenn í Skaftártungu og Álftaveri okkur og skiluðu okkur aftur til byggða. Ferðalaginu lauk svo með sameiginlegri máltíð í Tunguseli á sunnudagskvöldinu. Þetta var í einu orði frábær ferð.