Leiðsögumaðurinn. Í gær fór ég ásamt félögum í Söngfélagi Skaftfellinga í gönguferð um Eyrarbakka. Við slógumst í för með tveimur söngfélögum sem búa á Bakkanum. Gengið var um elsta hluta bæjarins og húsin skoðuð og saga Eyrarbakka rifjuð upp enda af mörgu að taka. Má þar nefna mikilvægi staðarins fyrir verslun á öldum áður, tónlistariðkun og fleira og fleira. Enduðum þetta skemmtilega rölt söngfélaganna á veitingarstaðnum Hafið bláa við Ölfusárósa og fengum okkur þar góða humarsúpu sem óhætt er að mæla með.
Sýnir færslur með efnisorðinu Eyrarbakki. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Eyrarbakki. Sýna allar færslur
miðvikudagur, 16. júní 2010
Arkað um Eyrarbakka
Leiðsögumaðurinn. Í gær fór ég ásamt félögum í Söngfélagi Skaftfellinga í gönguferð um Eyrarbakka. Við slógumst í för með tveimur söngfélögum sem búa á Bakkanum. Gengið var um elsta hluta bæjarins og húsin skoðuð og saga Eyrarbakka rifjuð upp enda af mörgu að taka. Má þar nefna mikilvægi staðarins fyrir verslun á öldum áður, tónlistariðkun og fleira og fleira. Enduðum þetta skemmtilega rölt söngfélaganna á veitingarstaðnum Hafið bláa við Ölfusárósa og fengum okkur þar góða humarsúpu sem óhætt er að mæla með.
laugardagur, 15. ágúst 2009
"Ég er eins og annar krakki"
Ford T módel. Í dag fórum við á "aldamótadaga" á Eyrarbakka. Við vorum sein fyrir og vorum á Bakkanum um hálf sex. Áttum allt eins von á því að dagskráin þennan dag væri tæmd. Það fyrsta sem við rákumst á fyrir austan var þessi fallegi uppgerði Ford T módel. Ég kannaðist strax við þennan bíl. Þetta var gamli Fordinn hans afabróður míns, Guðmundar Gunnarssonar. Ég á yfir fimmtíu ára gamla barnæsku minningu þar sem ég, pabbi og Gunnar afabróðir og bróðir Guðmundar erum að skoða þennan bíl. Það var árið 1958 eða árið sem Þórunn systir fæddist. Bifreiðin var þá ansi lúinn en ég þykist muna að Gunnar hafi sagt við þetta tækifæri að hann væri enn gangfær. Einhver hefur orðið svo fyrirhyggjusamur að gera bifreiðina upp til minningar um liðinn tíma. Eitt virðulegasta verkefni hennar var að keyra fólk á Alþingishátíðina á Þingvöllum 1930. Bifreiðin stóð einmitt fyrir framan Gunnarshús þegar ég sá hana á Bakkanum í dag. En það hús átti langafi minn og langamma. Satt best að segja varð ég eins og annar krakki við að sjá þennan gamla "ættingja" minn. Eins og segir í Eyrarbakkaljóðinu.
Vignir Stefánsson og Guðlaug Ólafsdóttir. Næst lá leiðin í Gónhól en þar er kaffistofa og listagallerí. Þar var boðið upp á gott kaffi og vöflur. Meðan við sátum við á Gónhól mætti Vignir Stefánsson pínaóleikari og góðvinur Söngfélags Skaftfellinga og spilaði á hljómborð og píanó nokkur lög sem Guðlaug Ólafsdóttir söng undurljúft. Þar á meðal voru nokkur lög eftir Sigfús Einarsson tónskáld og fleiri. Sigfús var fæddur á Eyrarbakka árið 1887. Að loknum tónleikunum skoðuðum við safn fornbíla sem voru til sýnis á öðrum stað í þessu húsi. Við enduðum heimsókn okkar á Bakkan með því að fara á veitingastaðinn Rauða húsið áður en við héldum heim á leið. Þetta var óvænt og ánægjuleg síðdegisskemmtun. Takk fyrir okkur. Siðasta lagið sem söngkonan söng á tónleikunum var þetta ljóð:Elskulegi Eyrarbakki
aftur kem ég heim til þín.
Ég er eins og annar krakki
alltaf þegar sólin skín
(Höf.: Garðar Sigurðsson Eyrarbakka)
Labels:
Bilar,
Eyrarbakki,
Fjölskylda,
Í fyrsta sinn,
Menning,
Veitingahús
sunnudagur, 15. febrúar 2009
Í fyrsta sinn austur
Það var í júlí árið 1958 sem við fórum austur á Eyrarbakka með Jóni Höskuldssyni leigubílstjóra að hitta frændfólkið í Gunnarshúsi. Þetta rifjaðist upp í dag þegar ég var staddur austur í Hveragerði og stoppaði við kaffiskálann, sem ég man ekki lengur hvað er nefndur. Þá var leiðin svo löng og ströng á Bakkann að það þótti eðlilegt að stoppa og fá sér kaffisopa í Hveragerði. Ég man eftir því stoppi þegar ég kom inn í stóra veitingasalinn og fékk appelsín. Næst man ég eftir mér þegar við keyrðum fram hjá Hælinu eins og Litla Hraun var kallað. Það var einhver út í glugga og vínkaði okkur er við keyrðum framhjá. Það fór hrollur um mig þegar ég keyrði þarna sem barn og gerir það enn hálfri öld síðar. Af heimsókn minni í Gunnarshús man ég eftir gömlu blindu konunni sem sat og réri sér á bekk í eldhúsinu. Hún mun hafa heitið Helga og verið skjólstæðingur langömmu minnar sem tók hana upp á sína arma. Einnig man ég eftir flatkökunum sem Ásta afasystir mín bakaði á kolaeldavélina. Þær voru ekkert sérstakar nýjar en er þær höfðu jafnað sig voru þær mikið lostæti. Ég man eftir að hafa skoðað forlátann vörubíl ala Ford T módel, sem Gunnar afabróðir minn átti, held hann hafi ekki einu sinni verið gangfær.Þetta er í fyrsta skipti sem ég man eftir að hafa farið í bílferð út fyrir bæinn. Ég hafði þetta sama sumar mánuðinn áður farið í 80 ára afmæli langafa míns vestur á Ísafjörð í flugvél.
Labels:
Eyrarbakki,
Ferðalög,
Fjölskylda,
Í fyrsta sinn
laugardagur, 7. febrúar 2009
Fyrir austan fjall
Var fyrir austan fjall og fór um eitt uppáhaldssvæðið mitt, Eyrarbakka og Stokkseyri. Á Bakkanum var fáni við hálfa stöng víða í þorpinu vegna jarðarfarar. Samfélagið var í vetrarbúningi og okkur fannst að mörg hús þyrftu málingu. Keyrðum fram hjá gamla ættarhúsinu, Gunnarshúsi. Það virðist nú vera tómt eftir að veitingastaðurinn flutti í annað hús. Á Stokkseyri var einhver svo vinsamlegur að hafa skafið snjóinn af hundaþúfunni hans Páls Ísólfssonar sem sjá má nálægt Ísólfsskála. Við stoppuðum bílinn til þess að hlusta á öldurótið við Stokkseyri. Það brýtur á hrauninu sem liggur út í sjóinn á þessu svæði - gamalt Þjórsárhraun ef ég man rétt. Síðan fórum við Holtaveg nr.413 og komum upp á þjóðveginn fyrir austan Selfoss. Keyrðum fram á nokkur hestastóð á veginum sem voru í vetrarbúningi. Drukkum jurtaseið á Náttúrulækningaheimilinu í Hveragerði með hunangi og kruðurí. Þetta "heimili" er rekið af myndarskap og þangað leitar fjöldi fólks þjónustu. Gott að koma inn á hlýtt heimilið eftir útiveruna. Það var bjart yfir austurfjöllunum séð úr Flóanum en blikur á lofti í suðri. Líklega styttist í það að veður fari hlýnandi og þessum miklu frostdögum með allt að 12 °c frosti sé lokið í bili. Engar sáum við austantórurnar að þessu sinni en það munu vera rauðleit ský yfir austurfjöllum séð úr Flóanum.
Labels:
Eyrarbakki,
Ferðalög,
Í fyrsta sinn,
Náttúra,
Veður
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
