Ólafur Ragnar Grímsson. Þessi afstaða forsetans kom ekki á óvart í ljósi þess sem á undan hefur gengið. Helstu lögskýrendur segja nú í ljósi reynslunnar af fjölmiðlafrumvarpinu að hann hafi ótvírætt vald til að fyrirskipa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Um sextíu þúsund manns skráðu sig á lista Indefence hópsins. Ég gerði það eftir að hafa horft á afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu. Eins og tugþúsundir annarra var ég ekki sannfærður um að okkur beri að greiða þessa skuld á þeim kjörum sem gerð er krafa um. Nú verða stjórnvöld að kynna okkur málið og afstöðu sína þannig að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun í framhaldinu. Nóg í bili. Kveðja.þriðjudagur, 5. janúar 2010
Forsetinn vill þjóðaratkvæði
Ólafur Ragnar Grímsson. Þessi afstaða forsetans kom ekki á óvart í ljósi þess sem á undan hefur gengið. Helstu lögskýrendur segja nú í ljósi reynslunnar af fjölmiðlafrumvarpinu að hann hafi ótvírætt vald til að fyrirskipa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Um sextíu þúsund manns skráðu sig á lista Indefence hópsins. Ég gerði það eftir að hafa horft á afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu. Eins og tugþúsundir annarra var ég ekki sannfærður um að okkur beri að greiða þessa skuld á þeim kjörum sem gerð er krafa um. Nú verða stjórnvöld að kynna okkur málið og afstöðu sína þannig að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun í framhaldinu. Nóg í bili. Kveðja.laugardagur, 2. janúar 2010
Mamma Gó Gó

Við fórum á nýju myndina hans Friðriks Þórs Friðrikssonar í kvöld, Mömmu GóGó. Myndin er einu orði sagt frábær. Hvet alla til að sjá hana. Nú fær Holliwood annað tækifæri til þess að veita Friðriki Óskarinn, ef þá hann vill þiggja hann. Ég ætla ekki að ræna ánægjunni af ykkur með því að fara segja frá efni hennar. En þessi mynd er vissulega þess virði að horfa á hana í góðum bíósal. Hér er engin amerísk "hamborgara framleiðsla" ala Holliwood á ferðinni. Friðrik heldur athygli áhorfandans allan tímann og kveður hann með margar spurningar og vangaveltur þegar upp er staðið. Leikur allur var fyrsta flokks. Kristbjörg Kjeld og Hilmir Snær Guðnason fara á kostum. Maður verður svo stoltur af því að vera Íslendingur þegar maður upplifir svona meistarverk. Til hamingju með þessa mynd Friðrik. Kveðja.
Nýársganga

Í dag gékk ég góðan hring um Furulund í Heiðmörk með skaftfellskum Skálmfélögum. Meðfylgjandi mynd er af göngufélögum við jólatré sem er skreytt í tilefni jólanna í þessum lundi. Þetta var fyrsta gangan á nýju ári og vonandi eiga þær eftir að verða margar á árinu. Miðað við bifreiðafjöldann í Heiðmörk í dag virðist fjöldi fólks nýta sér þessa aðstöðu, en lítið verður maður var við þetta fólk, enda trágróður víða þéttur og svæðið stórt. Ég efast um að margt sé betra til heilsubótar en að ganga rösklega í svona skógarrjóðri. Súrefnið, angan trjánna að ég tali nú ekki um félagskapur göngufélaganna. Veðrið til útiveru var mjög gott. Stillt veður, frost og heiðskírt. Eitt af markmiðum mínum þetta árið er að komast í góða göngu um óbyggðir Íslands á komandi sumri. (Mynd: Kristinn Kjartansson)
fimmtudagur, 31. desember 2009
Gleðilegt ár með þökk fyrir hið liðna.
Hjörtur Friðrik. Meðfylgjandi er gömul mynd af Hirti Friðrik á gamlárskvöld. Fáir hafa haft jafn gaman af sprengingum á gamlárskvöld í þessari fjölskyldu. Við Valdimar munum reyna að standa undir væntingum í þeim efnum þótt Hjörtur sé fjarri góðu gamni núna. Fyrir þá Fossvogsbúa sem ekki vita hver blæs stundum í lúðurinn í dalnum á þessu kvöldi þá er rétt að upplýsa að það er hann Valdimar okkar. Vonandi að Svíar fari varlega með sína flugelda svo Hjörtur hafi það rólegt á bráðamóttökunni á nýjársnótt. Óskandi að nýtt ár verði ár endurreisnar og velfarnaðar. Við þökkum ykkur öllum fyrir ógleymanlegt ár sem bauð upp á öll helstu blæbrigði lífsins. Sjáumst heil og fariði varlega með sprengiefni kvöldsins. "Lovja all."
fimmtudagur, 24. desember 2009
Gleðileg jól
Jóhannes Ernir, Hjörtur Friðrik og Sveinn Hjörtur Gleðileg jól. Svona eru nú "Skype" jól haldin í dag. Tók þessa mynd af skjánum þegar drengirnir okkar í Kristianstad höfðu samband til þess að óska okkur gleðilegra jóla. Þessi samskipti minntu mig á gamla daga þegar námsmenn erlendis voru að senda kveðjur í gegnum ríkisútvarpið. Nú hefur tækninni fleygt fram og hægt að eiga þessi samskipti í gegnum tölvu á persónulegum nótum. Við sendum ykkur líka öllum bestu jólakveðjur og vonum að þið eigið góða jólahelgi nær og fjær. Annars hefur jólahaldið hjá okkur verið með hefðbundnu sniði. Við enduðum daginn á heimsókn til Þórunnar systur og hittum þar foreldra mína og systkini. Axel Garðar og fjölskylda voru vestur í Stykkishólmi. Á jólum fögnum við fæðingu frelsarans en hátíðin er ekki síður hátíð fjölskyldunnar. Við viljum hafa okkar nánustu í kallfæri og styrkja böndin og minnast saman liðinna stunda. Á Þorláksmessu fórum við í skötuhlaðborð á Hótel Loftleiðum eins og mörg undanfarin ár. Nóg í bili kveðja.
laugardagur, 19. desember 2009
Víti á jörðu.
Fergus Anckhorn. Ég hlustaði á viðtal við Fergus Anckhorn á Hardtalk hjá BBC í gær. Sama þátt og Geir Haarde var nýlega í viðtali og sagði þessu fleygu orð, "mabe I should have." Nú var viðtalið við aldinn stríðsfanga sem lifði af fangavist Japana í seinni heimstyrjöldinni við byggingu brúarinnar yfir Kwai fljót. Maðurinn lýsir því hvernig hann fyrir hreint kraftaverk lifir af þrjú ár í þessu helvíti Japana og hrottafengna meðferð þeirra á föngunum. Hvað þurfi til að lifa vist í víti á jörð. Þeir sem misstu lífsviljann við þessar aðstæður voru látnir nokkrum dögum síðar. Eins og vinur hans píanóleikarinn sem sagðist ekki geta lifað án tónlistar. Aðspurður hvort hann væri trúaður eftir þessa mannraun sagðist hann ekki trúa á Guð. Ef hann væri til gæti ekki verið að hann mundi láta svona atburð gerast án þess að grípa inn í atburðarrásina. Mikill meirihluti félaga hans hafi látið lífið í fangabúðunum. Ef það væri til almætti hefði það gripið inn í atburðarrásina. Það vakti athygli mína að þrátt fyrir ömulegar aðstæður var það eftirminnilegt í minningu mannsins að slíkar aðstæður kölluðu fram allt hið besta í fari félaga hans. Þrátt fyrir hrottaskapinn gátu Japanirnir ekki kæft æðstu gildi mannlegra samskipta meðal samfanganna. Aðspurður hvort hægt væri að réttlæta stríð svaraði gamli maðurinn því neitandi. Í lok átaka kæmu leiðtogarnir saman og skrifuðu undir pappíra og þar með væri málum lokið. Enginn mundi efitr fórnum hermannanna og hinna fölnu. Hann sagðist ekki skilja af hverju menn gætu ekki komið saman áður en til stríðs kæmi og skrifað undir pappírana. Þá væri hægt að komast hjá sjálfu stríðinu. Langði að horfa á viðtalið aftur en fann aðeins brot af því á vefsíðu BBC. Kveðja.
sunnudagur, 13. desember 2009
Upptaktur í undirbúningi jóla.
Þessari helgi hefur verið varið í heimsóknir og tiltekt. Það var víst orðið nauðsynlegt að takast á við óhreinindin, enda tuskur verið lítt handfjatlaðar hér á bæ um nokkurn tíma. Mikilvægari störf hafa verið tekin fram fyrir svo sem próflestur dótturinnar, söngur með söngfélögum mínum, göngur, tölvuhangs, sjónvarpsgláp og ýmislegt annað. Nú var verkefnið ekki umflúið lengur. Væntanlega kannist þið við þessi átök líka. Ég hef verið að skoða gamla cd diska með gömlum jólalögum. Þess vegna datt mér í hug fyrirsögn þessa pistils upptakur í undirbúningi jóla. Eftir því sem maður eldist aukast tregablandnar minningar og blandast saman við melódíur jólahátíðarinnar, kokteill sem rétt er að dreypa ekki of mikið af. Ætli uppáhaldslagið mitt sé ekki White Christmas með Bing Crosby en svo koma margir þar á eftir. Nú styttist í að Sirrý komi heim en hún hefur dvalist í Jönköping undanfarnar vikur við rannsóknir. Þá eykst umræddur upptaktur örugglega til muna. Jæja nóg í bili. Kveðja.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
