þriðjudagur, 6. apríl 2010
Eftir páska
Páskafríið búið. Þurfti að púrra mig upp í gírinn að nýju. Það er verst við svona löng frí að erfitt getur verið að koma sér í gang aftur. Maður er í súkkulaði- og sykursjokki eftir ofát á þessum andskotans páskaeggjum. Ágætt að hefja "eftir páska hrotuna" á því að mæta á kóræfingu og fínslípa lögin sem verða sungin á tónleikum 2. maí næstkomandi í Seltjarnarneskirkju. Það er búið að vera mikið gaman í kórnum í vetur og góður hópur sem hefur mætt vel á æfingarnar. Afraksturinn af þessu starfi verður svo kynntur á umræddum tónleikum. Ef nafn kórsins hefur farið fram hjá einhverjum þá er ég að tala um Söngfélag Skaftfellinga.
föstudagur, 2. apríl 2010
Austurferð í samanþjöppuðu máli.
Skírdagur, nýr dagur, frí, indælt, innkaup, matur, kaffi, kökur, bíltúr. Austur, Fljótshlíð, gos, mökkur, spenna, sólin brosir, kaffisopi, kökur, frábært útsýni, áfram austur, yndislegur dagur, gos frá Skógum, meira gos frá Gatnabrún. Vík í Mýrdal aur í kassann, vinningur, tap í sömu andrá. Áfram austur, Mýrdalssandur, góð dagsbirta kl. 20.00. Skaftártunga, kólnandi veður, gasofn, upphitun, kvöldverður, "minnernas kamin", kólnandi veður, svefn, nótt, vakna, enn kólnandi veður, vaxandi norðanátt, nýstandi kuldi. Föstudagurinn langi, kaldur norðan garri, upphitun, samt kalt, morgunverður, lestur, frágangur, gestabókin geymir minninguna, gamlar minningar, gleði og sorg eru systur - boðskapur páskanna? Útvarp, hlustað, horft til jökulsins ógurlega, heimför, Mýrdalssandur, Messa í útvarpi, faðir vor, ægináttúra, maðurinn má sín ekki mikils. Vík, Reynisfjall, Gatnabrún. Gossúlan ekki eins flott og í gær, sól en gluggaveður undir Eyjafjöllum, Eyjarnar í heiðskíru, tilkomumiklar, gossúlur, vangaveltur um jarðfræði,hraungos, sprengigos, vaxandi umferð í austurátt. Eru allir að flýja höfuðborgina? Þorsmörk, Fljótshlíð, Hvolsvöllur, pulsa og kók hinum megin. Áfram í vesturátt, andstreymis við umferðaþungann. Holtin, Þjórsá nei sko snjómugga í vestri og snjór á númerum bíla. Selfoss meiri snjómugga, vaxandi umferð, eitt þúsund bílar, tvö þúsund bílar, þrjú þúsund bílar? Gæti verið. Hellisheiðin, Bláfjallaafleggjari, Lækjabotnar, græna Kópavogsskiltið - Stór Kópavogssvæðið, efri byggðir, hálka, keyra varlega, kominn heim. Þetta gékk nú bara nokkuð vel... og svo komu páskar.
Á föstudaginn langa.
Vorum að koma úr Skaftártungunni. Þar var heiðskírt en í nótt kólnaði mikið og í morgun sagði hitamælirinn að væri fjögurra stiga frost. Við ákváðum að halda heim á leið. Keyrðum í fallegu gluggaveðri áleiðis í bæinn. Á Selfossi var komin hríðarmugga og þannig var veðrið heim á hlað í Kópavoginn. Í gær fórum við aftur inn Fljótshlíðina og virtum fyrir okkur gosið sem nú er öllu kraftmeira. Mikil umferð var í austurátt frá Reykjavík á Suðurlandsvegi.
sunnudagur, 28. mars 2010
Blúshátið í Reykjavík 2010

Blúshátíðin í Reykjavík 2010 stendur nú yfir og um að gera að nýta sér það mikla framboð af tónlist sem þar er á boðstólum. Hátíðinni stýrir eins og áður blúsarinn Halldór Bragason. Við fórum í kvöld í Fríkirkjuna í Reykjavík og hlustuðum á dífurnar fjórar flytja nokkur lög. Fyrst steig á svið Brynhildur Björnsdóttir og söng nokkrar ljúfar vögguvísur. Næst söng Kristjana Stefánsdóttir jass/blús lög. Þá tók við Ragnheiður Gröndal sem bæði söng og spilaði á flygilinn, þar á meðal sín eigin lög og loks tók Deitra Farr nokkur gospel lög. Undirleikari hjá Brynhildi, Kristjönu og Deitru var Davíð Þór Jónsson sem spilaði bæði á flygilinn og á banjó í einu lagi með Deitru. Píanóleikarinn er mikill stuðbolti og átti sinn þátt í að lífga upp á stemninguna á tónleikunum. Allir lögðu listamennirnir sitt í að gera þessa stund í kirkjunni eftirminnilega, hver á sinni forsendu. Stundin var í senn gleðivekjandi og einlæg og við fórum út í hrollkalda nóttina með ljós í sinni. Takk fyrir þetta.
fimmtudagur, 25. mars 2010
Vorar í dal
Það vorar í dalnum okkar, Fossvogsdal. Sólin hækkar ört og dagurinn lengist dag frá degi. Senn líður að páskum og þess skammt að bíða að sumarið vermi okkur aftur. Við erum þegar farin að velta því fyrir okkur hvernig við verjum best þessum fáu sumardögum. Veturinn sem í raun var enginn vetur er að baki nema páskarnir færi okkur páskahretið sem getur verið illskeytt. En það varir aldrei lengur en þýsk Ardennasókn, stutt og dæmd til að tapast fyrir hækkandi sól. Vorið lífgar við gróandann í náttúrunni. Brumhnapparnir eru að sprynga út á trjágróðrinum, þótt birkið þráist aðeins við. Frost er að fara úr jörðu. Það eru komnir fuglar í dalinn. Fjær og austar er annar dalur, Elliðaárdalur sem er engu síðri og tilvalinn til útivistar. Veturinn í vetur hefur verið nýttur til reglulegrar útivistar. Í öllum afbrigðum vetrarríkisins hefur verið gengið um dalina. Það er svo merkilegt að í minningunni hefur veðrið alltaf verið gott á þessum gönguferðum. Það er sérstakt að þegar maður er búinn að klæða sig vel og lagður af stað virðist veðrið alltaf kjörið til útivistar. Það skiptir ekki máli hvort það sé kvöldstilla, frost og stjörnubjartur himinn eða slydda, snjókoma og lítið skyggni. Aðstæður eru alltaf góðar til útiveru. Þessvegna hef ég nú vingast við veturinn. Kveðja.
sunnudagur, 21. mars 2010
Eldgos í Eyjafjallajökli
Eyjafjallajökull. Á miðnætti aðfaranótt sunnudags hófst gos í Eyjafjallajökli sem kemur í raun ekki á óvart miðað við þær jarðhræringar sem verið höfðu á svæðinu um tíma. Annars hefur helginni verið varið við söng og skemmtan á vegum Skaftfellingafélagsins í Reykjavík. Í gærkvöldi var sameiginlegur kvöldverður með kórum frá Vík og Klaustri. Í dag var Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju þar sem kórarnir þrír sungu saman. Að lokinni messu var haldið í félagsheimili Skaftfellingafélagsins og þar voru sungin nokkur lög í kaffisamsæti félagsins. Þetta hafa verið góðir dagar í góðum félagsskap. Fólkið að austan var komið í bæinn fyrir gos. En við vissum af fólki að austan sem var snúið við vegna eldgossins í jöklinum. Nú eru kórfélagarnir að austan á leiðinni heim og keyra framhjá Eyjafjallajökli. Vonandi að leiðin sé greiðfær og þau eigi góða heimkomu. fimmtudagur, 18. mars 2010
Færsla nr. 999
Þetta er færsla númer 999 á þessari bloggsíðu. Það er engin frétt í sjálfu sér en fyrir þennan bloggara markar hún ákveðin tímamót. Eitt af markmiðum með þessu bloggi hefur verið frá upphafi að halda þessari síðu úti a.m.k. þar til eitt þúsund innslög væru komin á síðuna eða sjö ár liðin frá opnun hennar. Nú liggur fyrir að eitt þúsundasti pistillinn gæti verið nær í tíma en árin sjö. Efni síðunnar hefur byggt á hugleiðingum bloggarans í daglegu lífi. Tæplega fjögur hundruð færslur falla undir fréttir af fjölskyldunni. Vel á annað hundrað segja frá ýmsum ferðum. Veðrið í Fossvogsdal hefur verið hugleikið, menning, tónlist, kórfréttir, hagfræði, sjávarútvegur, íþróttir og ýmis pæling. Líklega hafa um fjörtiu þúsund síður verið skoðaðar á þessu tímabili og rúmlega tuttugu þúsund ip - tölur hafa heimsótt síðuna, ef eitthvað er að marka þessa teljara sem meta heimsóknir á síðuna. Að meðaltali eru um tvö hundruð einstaklingar sem heimsækja síðuna í mánuði. Rúmlega helmingur þeirra hafa heimsótt síðuna oftar en tvö hundruð sinnum. Ýmsir hafa haft samband við bloggarann um efni hennar. Yfirleitt eru það einhverjir úr fjölskyldunni, vinir eða kunningjar. Ef til vill væri ráð að við mundum leggja okkur eftir því að hittast oftar í stað þess að lesa blogg og fésfærslur. Á móti kemur að bloggarinn nær til fleiri aðila en hann gerði áður. Það er uppbyggilegt að setja saman efni á bloggið. Þannig gefst tækifæri til þess að draga saman hugsun sína og forma hana og birta. Það er einhver ögrun í því að birta bloggið með þessum hætti. Auðvitað ritskoðar bloggarinn sig, velur það sem hann birtir. Allt í allt er það þó svo að þegar bloggarinn nær að vera einlægur og opinn í máli snertir hann helst við lesendum. Það er allavega reynsla þessa bloggara. Jæja þetta er nóg í bili. Enn og aftur er lesendum síðunnar þökkuð samfylgdin og jákvætt áreiti á liðnum árum. Nóg í bili. Kveðja.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
