miðvikudagur, 13. október 2004
Óvenjulegt veður.
Já, það er ekki hægt að segja annað en að veðrið er óvenjulegt fyrir þennan árstíma. 10 til 11°C hiti í október dag eftir dag. Sjómenn segja frá því að í Breiðarfirði sé fiskurinn ekki á hefðbundnum miðum, en hann megi sækja mun nær landi en menn hafi átt að venjast. Eins og einn sagði við mig þeir þurfa varla að fara út úr höfninni. Annars er allt frekar tíðindalaust þessa dagana og lítið fréttnæmt af okkur.
laugardagur, 9. október 2004
Dagur geðfatlaðra, geðveik hetja.
Það mun vera dagur geðfatlaðra í dag. Í tilefni af því selja Kiwanismenn K-lykilinn til styrktar geðfötluðum. Eigi þeir bestu þakkir fyrir framtakið. Ég las í Mbl. í dag 9.október 2004 grein eftir rithöfundinn Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur, sem bar yfirskriftina geðveik hetja. Ég hvet alla til þess að lesa þessa einlægu opinskáu grein. Grein hennar á erindi við okkur öll og er einu orði sagt mannbætandi lestur. Það er dýrmætt að á meðal okkar skuli vera fólk, sem er tilbúið að ganga fram fyrir skjöldu og miðla okkur af reynslu sinni með þeim hætti sem Elísabet gerir og leiða okkur þannig í átt til betri lífsgæða. Það sem fangaði hug minn varðandi þessa grein var upphafið er Elísabet lýsir því að hún hafi þurft að fara inn á geðdeild vegna andlegs álags af of mikilli pressu við að skila verkefni á tilsettum tíma, sem var of snemmt fyrir hennar getu. Þetta er nú nokkuð sem við glímum flest við frá degi til dags. Auðvitað getur slík endalaus pressa brotið okkur öll. Spurningin er einungis hvernig okkur tekst að vinna úr því. Hvort við náum að setja sjálf upp varnir eða þurfum til þess hjálp. Í niðurlagi greinarinnar segir Elísabet: "Geðsjúkdómur er stríð, stríð í höfðinu og kannski byrja öll stríð í höfðinu á einhverjum. En ég ætla að vera kærulaus, fara að sofa, lítill trúður sem málaði engla á geðdeild, hlusta á vindinn eða gera ekki neitt." Í þessum niðurlagsorðum gefur hún okkur lausnina, sem við þurfum til þess að búa til þessar varnir. Enn og aftur bestu þakkir.
sunnudagur, 3. október 2004
Píanóið í öndvegi..
Fór á píanódaga í Gerðubergi í dag þar sem píanóið var í öndvegi. Þetta var kynningardagur á píanónámi, píanóspili og svo hljóðfærinu sjálfu. Pökkuð dagskrá af efni, mjög athyglisverðu. Eftirminnilegt verður að hafa hlustað á 18 píanóleikara spila í einu boðhlaupi allar 24 prelodíur Chopins. Þetta var virkilega efnismikil dagskrá og til fyrirmyndar í alla staði. Hafi þeir sem að þessu stóðu mikla þökk fyrir framtakið. Það er með ólíkindum hvað tónlistarlífið í höfuðborginni er orðið fjölbreytilegt. Það rekur hver stórviðburðurinn annan á tónlistarsviðinu. Stórstjörnur í músíkinni koma nánast á færibandi frá útlöndum. Þetta hefur heldur betur breyst frá því sem áður var.
Labels:
Píanó,
Píanótónleikar,
Tónlist
miðvikudagur, 29. september 2004
Do,re,me,fa,so,la,ti......
| Ég fór fyrsta hljómfræðitímann í dag. Fyrsta verkefnið að lesa nótur á g - lyklinum. Ég veit hvað þær heita allar, en unglingarnir sem eru tæpum 40 árum yngri eru bara miklu fljótari. Úffff, hvað er ég nú að gera. C,D,E,F,G,A,H. Jú, jú ég kann þetta heilinn er bara orðinn svolítið stirður. ...I know I can do this better.... Svo slógum við taktinn 2/4,3/4 og 4/4. Svolítið stirt hjá mér og svolítið klaufalegt. Skyldu blessuð börnin sjá að kallinn er ekki allveg í takt, hefur reyndar aldrei verið það. OK, nóg af þessu rausi, en þetta var nú lífsreynslan í dag. |
mánudagur, 27. september 2004
Hauststillur...
| Mér verður tíðrætt um veðrið, en þetta ár er búið að vera með ólíkindum gott hér á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarna daga hafa verið undursamlegir stilludagar, eftir rokið sem ég talaði um í síðustu viku. Það er svo hressandi og nærandi að fá sér göngutúra í Fossvogsdalnum í svona veðri. Kóræfing var í kvöld. Við erum að æfa bæði ný lög og lög frá síðasta ári. Ætla að reyna að vera duglegur að mæta í vetur. Píanónámið lofar einnig góðu. Nú er bara spurning hvort maður hefur tíma til þess að æfa sig á báðum sviðum til þess að ná árangri. Tíminn lýður ótrúlega hratt þessa dagana. Október handan við hornið. |
Austanvindar og vetrarstarf....
| Haustvindarnir eru komnir. Í morgunn var hífandi rok hér á höfuðborgarsvæðinu, svo hvein í öllu og gerði öldur á haffletinum á sundinu. Vetrarstarfið er að byrja á fullu. Fór á fyrstu kóræfingu vetrarins hjá Skaftfellingakórnum í vikunni. Hef ákveðið að vera með í vetur. Þá er frá því að segja að ég hef hafið píanónám. Sæki tíma einu sinni í viku hjá Þorsteini Gauta Sigurðssyni. Ég er að hugsa um að fara í tónfræðitíma einnig , sem yrði þá á miðvikudögum. Þetta lítur út fyrir að verða mikill músíkvetur. |
sunnudagur, 19. september 2004
Helgin komin og farin og...
já og Hjörtur er kominn og farinn. Þetta er með ólíkindum hvað helgarnar líða hratt. Í gær fórum við á enn eina tónleikana á þessu ári. Í boði Háskóla Íslands hlýddum við á Jónas Ingimundarson og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran í Háskólabíó. Mjög skemmtileg og eftirminnileg stund með þessum tveimur tónlistarmönnum. Í efnisskránni var komið víða við og Jónas og Diddú fóru á kostum. Eftir tónleikana bauð Háskólinn starfsmönnum og mökum til móttöku í hátíðarsal háskólans. Í dag heimsóttum við Gljúfrastein og héldum svo á Þingvöll að skoða haustlitina. Þar fundum við litla laut með bláberjum og skjól fyrir vindinum. Sól í heiði og 13 stiga hiti. Hvet fólk til að skoða Gljúfrasteinn. Þetta er mjög góð viðbót í vaxandi safnaflóru landsins.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
