þriðjudagur, 3. mars 2009
Hugurinn fyrir vestan
Hugurinn er hjá Vestfirðingum sem bíða þess nú að ofankomunni létti og hættan af snjóflóði líði hjá. Var annars að koma af söngæfingu með Sköftunum. Alltaf gott að syngja í lok dags fyrir svefninn. Við erum að æfa þrjú prógrömm. Í fyrsta lagi fyrir Skaftfellingamessu 15. mars. Söngferðalag á Snæfellsnes í apríl og svo fyrir lokatónleika í maí. Kveðja.
sunnudagur, 1. mars 2009
AGGF tuttugu ára.
Labels:
Hagfræði,
Íþróttir,
Ráðstefna,
Samfélagsmál
sunnudagur, 22. febrúar 2009
Spurningin og svarið sem ég fékk
Í gær spurði ég hver væri tilgangur lífins og lét þar við sitja. Í morgun hringdi vinur minn og svaraði spurningunni. Er þetta hugsanaflutningur, tilviljun eða hvað? Nú og hvern taldi hann vera tilgang lífisins, kann einhver að spyrja. Svarið sagði hann vera fólgið í hamingjunni. Maðurinn ætti að leita hamingjunnar. Tilgangurinn er að elska og vera elskaður. Hann er að eignast afkomendur. Forðast eigingirni. Hann er að finna ástæðu til að takast á við neikvæða atburði í lífinu og læra af þeim og sætta sig við það sem verður ekki breytt. Hann er að fylla tilfinningarlegt tómarúm með jákvæðri hugsun. Hann er að njóta stundarinnar því lífið er núna. Hann er að fyrirgefa og sleppa takinu. Hér með er þessu komið áleiðis, ef vera kynni að einvher annar sem hér lítur við væri að hugsa eitthvað svipað. Nú eða hefur eitthverju við þetta að bæta.
laugardagur, 21. febrúar 2009
Endurreisn og endurhæfing
Ég var mættur í Valhöll í dag til þess að taka þátt í starfi endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins. Þetta hefur verið skemmtilegt og krefjandi verkefni og ánægjulegt að taka þátt í því. Hópurinn kom saman eftir vinnu í gær og gerði sér dagamun og hlustaði á formanninn fara yfir stöðu mála. Starfnu er skipt upp í hópa og hver hópur fjallar um ákveðna málaflokka. Nálgast má upplýsingar um þetta verkefni á heimasíðu flokksins á næstu dögum. Sirrý er í helgarfrí frá Hveragerði. Hún hefur náð miklum árangri á stuttum tíma og verður búin að henda hækjunum innan skamms. Sigrún er að lesa undir próf og fer allur hennar tími og orka í það þessa dagana. Annars hefur dagurinn hjá okkur farið í helgarinnkaup og ýmislegt smálegt. Kveðja.
fimmtudagur, 19. febrúar 2009
Í fyrsta sinn norður
Göngugatan. Fyrsta skipti sem ég fór norður í land var í skólaferðalagi á vegum Gagnfræðaskóla Kópavogs árið 1969. Ég man ekki nákvæmlega hvaða mánuð var farið en það hefur verið snemma sumars líklega í lok maí. Fyrsta daginn fórum við að Hólum í Hjaltadal og sváfum í skólanum fyrstu nóttina. Ráðsmaður einn hafði gert sér dagamun og var að leita eftir félagsskap um kvöldið meðal skólasystranna við lítinn fögnuð. Umsjónakennarinn í ferðinni hann Guðmundur Oddsson stuggaði við honum. Næsta dag var farið til Akureyrar og gistum við þar eina nótt í skóla - líklega gagnfræðaskólanum upp af brekkunni. Fyrir utan ungu stúlkurnar sem sýndu okkur strákunum úr Kópavoginum nokkurn áhuga þóttu okkur brúnu mjólkurflöskurnar afar athyglisverðar. Hvolpavitið var nú ekki þroskaðra en svo. Að sjálfsögðu var borðað á Hótel KEA. Næsta dag var farið í Mýtvatnssveit. Stoppað var á hótelinu í Reynihlíð og þar var borðaður nýr silungur með kartöflum og smjöri, hvílíkt lostæti. Þá var grjótagjáin heimsótt og tekin nokkur sundtök í henni og Dimmuborgir skoðaðar áður en Mývatnssveit var kvödd. Eftir Kröflugosið hefur ekki verið óhætt að lauga sig í gjánni. þar sem hitastigið hækkaði of mikið. Rútubílstjórinn í þessari ferð var að sjálfsögðu rútubílstjóri okkar Kópavogsbúa hann Teitur Jónasson. Hann var hrókur alls fagnaðar og oft sungum við lag sem fjallaði um hann. Viðkvæði í laginu var: Teitur vildi það og Teitur skyldi það. Trallalla.... Mig minnir að það hafi verið í kaupfélaginu í Miðfirði sem fengust forláta skrautpípur með tinloki sem margir keyptu sér. Ég tímdi því ekki og sá lengi vel mikið eftir því. Þetta er það sem ég man helst.Kveðja.
Labels:
Akureyri,
Ferðalög,
Í fyrsta sinn,
Skóli
miðvikudagur, 18. febrúar 2009
Fyrsta sinn vestur
Catalina.Það koma tímabil að maður leggst í það að rifja upp lönguliðna atburði. Fyrsta flugferð mín var í Catalinu flugbát vestur á Ísafjörð í júní árið 1958. Tilefnið var 80 ára afmæli langafa míns Finnbjörns Hermannssonar (1878 - 1961). Þetta var í eina skiptið sem ég hitti langafa og langömmu mína Elísabetu Guðnýju Jóelsdóttur (1879 - 1963). Ég flaug vestur með föður mínum Hirti Hjartarsyni, en Stefanía systir hafði farið tveimur dögum fyrr með ömmu og afa á Baldursgötunni, þeim Jensínu Sveinsdóttur og Jóni Hirti Finnbjarnarsyni. Flugið var tíðindalítið og veður hið besta. Við millilentum á Patreksfirði á leiðinni vestur og ég man sérstaklega eftir aðfluginu að Patró. Við lendinguna á Patreksfirði og Ísafirði er minnisstæður hvítfyssandi sjórinn sem æddi upp eftir vélinni og sást ekki út um glugga við lendingu. Síðan var farið í lítinn vélbát, sem kom að flugvélinni. Ég man ekki hvar við bjuggum þarna fyrir vestan en pabbi telur að það hafi verið hjá langafa og langömmu að Skipagötu 7.
Skipagata 7Ég man óljóst eftir afmælinu og því þegar við hittum langafa og annað frændfólk, sérstaklega dóttur Grétu sem er á sama reki og ég, en pabbi og hún eru systkinabörn Ég sofnaði snemma í afmælinu á einhverjum bekk. Ég man eftir göngutúr um bæinn þar sem við gengum fram á tvo stráka sem voru að sigta sand. Pabbi kenndi þeim að nota stein í sigtið til þess að flýta fyrir sigtuninni. Þetta ráð festist mér í minni og oft notaði maður það í byggingarvinnu hér á árum áður. Mér hefur verið tjáð síðar að í afmælisveislunni hafi verið allir þekktustu verslunarmenn á Ísafirði frá fyrri árum. Þá voru þarna tveir bræður langafa þeir Guðmundar Luther Hermannsson bóndi á Sæbóli og Jón Sigfús Hermannsson bóndi á Læk í Aðalvík. Veislan var haldinn eins og áður segir hjá Margréti Finnbjarnardóttur í Hafnarstræti 6. Eiginmaður hennar var Kristján Tryggvason, sem var klæðskeri á Ísafirði. Margar ræður voru fluttar og mikið sungið.Kveðja.
Labels:
Ferðalög,
Fjölskylda,
Í fyrsta sinn
þriðjudagur, 17. febrúar 2009
Úr dagsins önn
Endaði daginn á söngæfingu með Sköftunum. Þar voru bæði sungnir slagarar og sálmar enda mikið sem stendur til í mars og apríl. Annars tíðindalítill dagur til þess að gera. Fór á rótarýfund í hádeginu og hlustaði á fangelsisstjórann á Litla Hrauni halda erindi um fangelsið, sem ég gerði að umtalsefni í síðasta bloggi. Þetta er kannski ekki jafn hræðilegur staður og ég hafði ímyndað mér. Allavega lýsti hún því svo vel hvernig reynt er að koma til móts við þarfir fanganna að maður fékk það á tilfinninguna þarna væri bara nokkuð gott að vera miðað við aðstæður. Svo vel er búið að þeim að útlendingarnir fást ekki til þess að láta framselja sig. Þeir vilja heldur dvelja hér á landi en fara til síns heima. Kveðja.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
