Fullt tungl yfir Esjunni. Sigrún Huld tók þessa fallegu mynd af fullu tungli yfir Esjunni í desember rétt upp úr hádegi.Árið 2006 er á enda runnið. Þetta hefur verið viðburðarríkt og gjöfult ár fyrir okkur. Efst í huga er þakklæti fyrir allt það sem okkur hefur hlotnast á árinu. Stærsti viðburður ársins er að sjálfsögðu nýtt barnabarn, Jóhannes Ernir Hjartarson, sem fæddist í Kristianstad þann 11.nóvember sl. Þá eignaðist Hilda mágkona og Magnús sitt fyrsta barn, Valgerði Birnu og Þórunn systir sitt fyrsta barnabarn, Telmu Þórunni Árnadóttur. Annálsritunin stendur fyrir öðrum minnisverðum atburðum þessa árs. Við óskum ykkur öllum nær og fjær gleðilegs árs með þökk fyrir það gamla. Sérstakar kveðjur fær Hjörtur Friðrik sem í kvöld er á næturrvakt á slysavarðstofunni í Kristianstad í Svíþjóð. Mörg eftirminnileg og skemmtileg áramótin höfum við átt saman í gegnum tíðina. Við sendum líka kærar kveðjur til Borgnesinganna okkar, Ingibjargar, Sveins Hjartar, Jóhannesar Ernis. Valdimar og Stella verða með okkur í kvöld. Bloggvinir og aðrir vinir fá einnig sérstakar kveðjur fyrir skemmtileg og gefandi samskipti á árinu. Við vonum að kvöldið verði ykkur ánægjulegt, fariði varlega með eldfærin og sprengjurnar og enn og aftur gleðilegt ár.Hittumst heil á nýju ári 2007. Kveðja.


Hvít jól.
Sirrý og Vala.
Heimasætan.
Hilda og Magnús.
Valdimar, Unnur, Hjörtur og Júlíus.
Júlíus Geir.
Gleðileg jól
Í morgunmuggu á aðventu.
Kórinn.
Söngatriði
Sigrún Huld
Jensína Sveinsdóttir
Koparreynirinn okkar.
Nýliðinn

Framhlið
Bakhlið
Tónleikarnir í Kirkjuhvoli
Kvöldvökur
Skeiðarárjökull
Svínafellsjökull
Sungið fyrir góða vætti
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi
Angela Hewitt
Höfði í Reykjavík
Feðgarnir Helgi og Hörður
Í litaskoðun
Haustlitir
Spáð í skýin
Akureyri
Skaftártungan
Við hundaþúfuna
Smakkað á hrútaberjum
Fé af fjalli
Við altarið
Tungurollur
Sirrý
Skaftafell
Kvöldstilla
Strandarkirkja
Stórhöfði
Sólsetur
Guðbjörn, Ingunn og Helgi
Mýrdalurinn til austurs
Mýrdalurinn